Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til
styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi.
Íslenskt handverk. Fæst um land allt.
Þríkrossinn
Stuðningur til sjálfstæðis
Þ
egar búið er að finna réttu
fermingarfötin, sem oft get-
ur tekið á taugarnar og verið
tímafrekt, er næsta skref að
finna réttu skóna, til að fullkomna
heildarútkomuna. En það er ekki
nóg að skórnir séu flottir og passi vel
við fötin, allir skór þurfa að vera
þægilegir og best er ef ferming-
arskór eru þesslegir að auðvelt sé að
nota þá áfram inn í vorið og sumarið,
því fermingarbörn vaxa gjarnan
hratt upp úr skóstærðum. Hagnýt-
ing er því oft höfð til hliðsjónar því
góðir skór eru ekki endilega ódýrir
og því um að gera að vanda fjárfest-
inguna.
En tískan lætur ekki að sér hæða
og almenn unglingatíska ræður
mestu um hvernig skó ferming-
arbörnin velja, að sögn Brynju Dan
Gunnarsdóttur, markaðsstjóra hjá
skóversluninni Kaupfélaginu.
„Skótískan í ár er svipuð og í fyrra
reyndar. Strigaskór eru enn mjög
vinsælir og eins grófir og þykkir sól-
ar, hvort sem er á sandölum, spari-
skóm eða stígvélum. Svo er gaman
að segja frá því að támjóir skór eru
líka komnir aftur. Það er þá rétt sem
sagt er að tískan fari í hringi því ég
man vel eftir síðustu támjóu tísk-
unni!“
Brynja segir að einnig séu Nike-
skór vinsælir og „gömlu góðu Adidas
Superstar- og Stansmith-skórnir
eru að koma inn aftur svo fólk getur
bara skellt sér niður í geymslu og
fundið gamla parið því það er komið
aftur í tísku“.
En það er alltaf nokkur munur á
stráka- og stelpuskónum, og Brynja
viðurkennir að úrvalið sé oftast
meira fyrir stelpur en stráka. Og
þótt margar stelpur velji eflaust
strigaskó eru einnig á boðstólum
hinir klassísku hælaháu skór. „Fyrir
stelpurnar eru mest fylltir hælar í
boði en líka mikið af bæði opnum og
lokuðum skóm með grófum sólum.
Hvítir skór koma dálítið inn núna
þegar fer að vora og eru tilvaldir fyr-
ir fermingarnar, þeir eru þá til bæði
úr taui og leðri.“
Fyrir ungherrana eru hefð-
bundnir spariskór alltaf vinsælir og
nýtast oft vel og lengi áfram. Brynja
segir Kaupfélagið t.d. bjóða upp á
flotta Vagabond-spariskó fyrir
strákana „og svo eru að koma inn
svona fínni lokaðir strigaskór með
teygju (Vans-skór). Hins vegar held
ég að það verði margir strákar sem
velji sér strigaskó við ferming-
arfötin, t.d. Air Force 1- og Adidas
Superstar-skó en svo eru Converse-
skórnir klassískir og klikka seint“.
Grófir skór, fín föt
Oft fylgist fata- og skótískan að á
þann hátt að fínleg fermingarföt
kalla á fínlega skó en Brynja segir
að í ár, líkt og oft áður, stangist
þetta tvennt á. „Fötin eru fínleg og
skórnir grófir. Mikið af strigaskón-
um er fyrir bæði kynin og það er
alltaf eitthvað um að stelpur séu í
strigaskóm á fermingardaginn en
mikill meirihluti strákanna notar
netta strigaskó við jakkaföt, það er
bara töff!“
Það er ekki litagleðinni fyrir að
fara í skótískunni, Brynja segir
svarta og hvíta skó alltaf vinsælasta
þótt pastellitir komi aðeins við sögu í
skótískunni í vor. „En ég býst við að
svarti liturinn verði ríkjandi hvað
varðar leðurskó og hvíti liturinn í
strigaskónum.“
Eins og áður sagði er eitt af mik-
ilvægari atriðunum varðandi ferm-
ingarskó að hægt sé að nýta þá
áfram, enda um talsverða fjárfest-
ingu að ræða fyrir flest heimili og
því hagnýtari fermingarskór, því
betra. „Það er það góða við þessa
strigaskómenningu að það er ein-
staklega þægilegt að nota þessa skó
hvort sem er fínt eða hversdags. Það
er hægt að klæða skóna upp eða nið-
ur fyrir mismunandi tilefni. Vaga-
bond- og 67-skórnir koma þar sterk-
ir inn sem skór sem hægt er að nota
meira en bara á fermingardaginn.“
Fjölskyldusamráð
Væntanleg fermingarbörn fara
gjarnan í verslunarleiðangur með
mæðrum sínum til að finna ferming-
arfötin og þegar kemur að vali á
skóm eru mæðgin eða mæðgur ekki
endilega alltaf sammála. „Mömmur
stelpnanna eru vanalega að leita að
skóm sem eru ekki of háir og ekki
með of grófum sólum og vilja frekar
pena, fínlegri skó en ég held nú að
fermingarbarnið hafi alltaf lokaorðið
eða þá að millivegur finnst sem báðir
aðilar eru sáttir við. Strákarnir eru
vanalega afslappaðri í skoðunum og
því frekar auðvelt að finna fatnað
sem bæði þeim og foreldrunum lík-
ar. Ég gæti trúað því að sumir for-
eldrar eigi erfitt með að sjá þá fyrir
sér í strigaskóm við jakkafötin en
þannig er bara tískan.“
Unglingar líta oft upp til fræga
fólksins þegar kemur að tísku og þar
sem ýmsar stjörnur auglýsa helstu
strigaskómerkin telur Brynja að að-
dáun á þeim gæti haft áhrif á val
fermingarbarna á skóm. „Bæði tón-
listarmaðurinn Pharrell Williams og
fótboltagoðið David Beckham eru á
samningi hjá Adidas og golfarinn
Tiger Woods og fótboltakappinn
Ronaldo auglýsa Nike. Kylie og
Kendall Jenner eru líka mjög vin-
sælar þegar kemur að tískunni en ég
held samt að aðalinnblásturinn komi
frá tískubloggurum eins og Victoriu
Törnegren, Fanny Lickman og fleir-
um.“
Ekki detta!
Verslanir Kaupfélagsins eru bæði
í Kringlunni og Smáralind og nú
hafa fermingarskórnir verið teknir
upp á báðum stöðum og búðirnar því
troðfullar til að mæta eftirspurninni
á næstunni en Brynja segir að þrátt
fyrir að verslanirnar auki úrvalið og
auki lagerinn á þessum árstíma sé
ekki um að ræða þessi miklu og eig-
inlegu fermingarskóinnkaup sem
skóverslanir áður fyrr lögðu svo
mikla áherslu á.
Hún segir að nú til dags sé í raun
dálítil tímaskekkja að tala sér-
staklega um fermingarskótísku
stúlkna því bilið á milli aldurs-
skiptrar skótísku sé alltaf að
minnka. „Áður var stórt bil á milli
fermingarstúlkna og 20-30 ára
kvenna og svo kannski 50 ára og
eldri en í dag er fullt af skóm sem
henta bæði 14 ára stelpum og fimm-
tugum konum. Konur eru líka
„yngri“ lengur en í gamla daga. Og
konur á öllum aldri kaupa sér skó í
Kaupfélaginu, ekkert síður sextugar
og eldri.“
En skyldi Brynja luma á ráðlegg-
ingum handa fermingarstúlkunum
sem margar hverjar eru að kaupa
sína fyrstu hælaháu skó? Hún hlær,
„Já, „Go big or go home“-mottóið á
alls ekki við! Ég myndi segja að það
skipti mestu máli að skórnir væru
þægilegir og stöðugir. Það er svo-
sem ekki mikið um pinnahæla hvort
eð er en ég mæli með aðeins lægri
skóm og flottum „platform“-skóm
eða þykkum sóla frekar en að detta á
leiðinni upp að altarinu.“
ingibjorgrosa@gmail.com
Fínir fermingarskór
Það virðist af sem áður var
að svartir lakkskór með
reimum og hvítir lakkskór
með slaufu gægist undan
fermingarkyrtlunum,
strigaskór og groddalegir
sandalar fá nú frekar að
njóta sín við kyrtilfaldinn.
Morgunblaðið/Eggert
Skótískan Flestir velja hagnýta skó sem geta nýst sem oftast, segir
Brynja Dan Gunnarsdóttir, markaðsstjóri hjá Kaupfélaginu.
Six Mix Svart er sígilt. Vans Flottir og þægilegir. Sixty Seven Hælar fyrir dömuna.
Vagabond Alltaf vinsælir. Nike Air Force Það er nauðsynlegt að eiga hvíta skó. Converse Klassík.