Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 60
60 | MORGUNBLAÐIÐ
Heimsóttu okkur á Facebook - “Lavera- hollt fyrir húðina”
Lífrænt vottaðar förðunarvörur
NÁTTÚRULEG FEGURÐ
MEÐ LAVERA
Útsölustaðir: Heilsuhúsin og Lifandi markaður
Fljótlegt og ljúffengt
ljúfmeti fyrir veisluna
Það er að mörgu að huga þegar fermingin er undirbúin
og þá þarf síst á tímafrekum og flóknum uppskriftum
að halda fyrir veisluna. Hér koma nokkrar vel valdar
uppskriftir að veisluréttum sem gæla við bragðlaukana
án þess að taka mikinn tíma eða fyrirhöfn
Fylltir ostar
Sniðugar hugmyndir að fylltum ostum til að nota
við ýmis tækifæri.
Aðferð:
Gullostur fylltur með rommlegnum rúsínum,
þurrkuðum apríkósum og sultuðum fíkjum. Síðan er
sætu apríkósumauki smurt yfir ostinn.
Stóri-Dímon fylltur með fersku basil, grilluðu
eggaldini og ofn- eða sólþurrkuðum tómötum. Pinn-
um með ferskum tómötum, basil og steyptum ítölsk-
um osti er síðan stungið ofan í ostinn.
Dala-brie með gráðaostafyllingu, þ.e. 2 msk. af
stöppuðum gráðaosti ásamt 2 msk. af mascarpone-
osti. Skreytið ostinn með pekanhnetum og hellið síð-
an hunangi yfir.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Litlar samlokur í veisluna
Aðferð:
Hér má sjá hugmyndir að áleggi á sniðugar litlar
samlokur sem henta vel í ýmsar veislur.
Með bræddum Óðalsosti, skinku, sætu sinnepi,
basil og papriku.
Með bláum Höfðingja, eggaldini og hráskinku,
sýrðum rjóma og basil.
Með heitum camembert, hálfum rauðum vínberj-
um, fínsöxuðu rós-maríni og svörtum pipar.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Brauðsnittur (bruschetta) með mozzarella,
tómötum og sólþurrkuðum tómötum.
snittubrauð
mozzarellaostur
rjómaostur með svörtum pipar
tómatar
sólþurrkaðir tómatar
Aðferð:
Skerið snittubrauð í sneiðar og bakið sneiðarnar
við 180°C í nokkrar mínútur eða svo þær verði
stökkar. Smyrjið sneiðarnar með rjómaostinum og
setjið sneið af tómat þar ofan á. Því næst sneið af
mozzarella og svo þar ofan á sneið af sólþurrkuðum
tómat.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson.
Brauðsnittur (bruschetta) með rækjum
og kotasæludressingu með avókadó
snittubrauð
rækjur
Dressing – innihald:
rifin piparrót eftir smekk
salt og nýmalaður svartur pipar
2 stk avókadó
1 msk sítrónusafi
300 g kotasæla
2 tsk dijonsinnep
Aðferð:
Skerið avókadóið í tvennt og fjarlægið steininn,
takið kjötið úr berkinum og saxið eða stappið saman
með 1 msk af sítrónusafa. Blandið saman við kota-
sæluna ásamt dijonsinnepi og piparrót og hrærið vel
saman. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum
pipar.
Höfundur: Árni Þór Arn-
órsson
Brauðsnittur
(bruschetta) með sætu
mangói og bökuðum
gullosti
snittubrauð
sweet mangó chutney
Gullostur
Aðferð:
Skerið snittubrauðið í sneiðar og bakið sneiðarnar
við 180°C í nokkrar mínútur eða svo þær verði stökk-
ar. Smyrjið sneiðarnar með sweet mangó chutney og
setjið sneið af gullosti þar ofan á. Bakið snittuna í 2-3
mín á 180°C eða þar til osturinn hefur bráðnað að-
eins.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Hráskinka með mozzarellaosti
og hvítlauksrjómaosti
Forréttur fyrir 6 eða sem hluti af hlaðborði
klettasalat
6 sneiðar hráskinka
1 stór kúla mozzarellaostur
50 g hvítlauksrjómaostur
Aðferð:
Skerið mozzarellakúluna í sex bita. Setjið klípu af
hvítlauksrjómaostinum á hverja sneið af parma-
skinkunni. Bætið klettasalati á hverja sneið af hrásk-
inku ásamt bita af mozzarellakúlunni, rúllið sneiðinni
upp. Gott sem léttur forréttur eða hluti af hlaðborði.
Gott er að skera rúllurnar í tvo bita ef þetta á að
vera hluti af hlaðborði, jafnvel að stinga í tannstöngli.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Kjúklingaspjót með
sveppaostasalati
600 g kjúklingabringur
125 g rjómaostur með hvítlauk
2 dl ab-mjólk
1 tsk rósmarín
1 tsk malaðaður svartur pipar
Salat – innihald:
500 g blandaðir sveppir
200 g rauðlaukur
100 g vorlaukur
150 g villisveppaostur
4 msk ólífuolía
1 stk hvítlauksgeiri
2 msk söxuð steinselja
1 msk saxað timjan
Aðferð:
Kjúklingur – aðferð: Skerið kjúklingabringurnar í
strimla og marínerið í rjómaostsblöndunni. Setjið á
spjót og bakið við 170°C í 12-15 mínútur.
Salat – aðferð: Skerið sveppina niður, ekki of
smátt, og steikið á pönnu í 2 msk af ólífuolíunni, kæl-
ið síðan sveppina. Skerið laukana í bita ásamt vill-
isveppaostinum, bætið saman við kælda sveppina,
hrærið saman ólífuolíu, hvítlauk, steinselju og timjan,
blandið saman við sveppablönduna.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
Tortilla með klettasalati, fetaosti og rjómaosti
Úr þessu nást u.þ.b. 36 bitar, 6 bitar úr hverri
rúllu
6 stk tortillukökur
125 g rjómaostur
300 g fetaostur
70 g klettasalat (70-100 g)
Aðferð:
Hitið tortillurnar á pönnu svo það sé auð-
veldara að vinna með þær. Raðið á bretti
eða borð. Smyrjið með rjómaosti, skiptið
klettasalatinu og fetaostinum jafnt á
milli. Rúlið þétt upp og kælið. Skerið í
sneiðar og setjið sýrðan rjóma á
toppinn.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
jonagnar@mbl.is
Girnilegt
Gott til að
narta í.
Hentugt Fallegt á borði.