Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 38

Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 38
38 | MORGUNBLAÐIÐ Laugavegur 86, 101 Rvk, sími 511 2004, dunogfidur.is Glæsileg fermingartilboð Þorvaldur fermdist um miðjan tí- unda áratuginn, í Áskirkju. Árni Bergur Sigurbjörnsson heitinn ann- aðist athöfnina og minnist Þorvaldur hans sem ljúfs og góðs manns. „Ég og félagi minn vorum þeir lágvöxn- ustu í fermingarhópnum og ég held að ég hafi tekið vaxtarkippinn ári síðar,“ segir hann um þennan eft- irminnilega dag. Eggjalaust veisluborð Í minningunni var veðrið gott, bjartur og fallegur dagur. Ferming- arveislan fór fram á heimili fjöl- skyldunnar í rúmgóðri kjallaraíbúð við Laugateig. „Ég hafði mikið of- næmi fyrir eggjum sem barn og var því oft í þeim sporum í veislum að eiga í basli með að finna rétti sem ég gæti borðað. Í fermingarveislunni var þess hins vegar gætt að þetta væri minn dagur og á borðinu úrval eggjalausra aðal- og eftirrétta. Var bara ein kaka á borðinu sem innihélt egg.“ Á þessum aldri hafði Þorvaldur þegar stigið fyrstu skrefin á leiklist- arferlinum og komið fram í upp- færslum hjá Þjóðleikhúsinu. Hann segir að leiklistin hafi sennilega litað þá ákvörðun hans að klæðast þjóð- legum íslenskum herrabúningi á fermingardaginn. „Ég hafði á þessu skeiði mjög gaman af þjóðlegum hlutum, gömlu skáldunum og liðnum tíma. Kannski hef ég hugsað sem svo að fermingin væri ákveðin sviðsetn- ing, og við hæfi að hafa þjóðlegt yf- irbragð á deginum með rétta klæðn- aðinum.“ Þótti gott að fara í kirkju Ekki getur Þorvaldur munað eftir að hann hafi upplifað fermingardag- inn sem mjög stór tímamót. „Ég var nú ekkert að missa mig yfir þessu, en auðvitað var gaman að hitta alla ættingjana og fá nýja hluti til að leika sér með. Sem barn var ég ekki sérstaklega meðvitaður um trúna, en fannst samt alltaf gott að fara í kirkju og mótaði eflaust viðhorf mitt að systir pabba er prestur og af- skaplega góð manneskja. Fyrir mér Þ orvaldur Davíð Kristjánsson stendur í stórræðum þessa dagana. Eftir langan feril á leiksviði og í kvikmyndum hefur hann í fyrsta skipti fengið að spreyta sig á leikstjórahlutverkinu og stýrir sýningu Nemendamóts Verslunarskólans. Þá eru mörg járn önnur í eldinum, stór og smá. var trúin því alltaf einhvers konar staður hlustunar og kærleika.“ En fermingardagurinn reyndist mikill örlagadagur, eða öllu heldur átti aðalfermingargjöfin eftir að marka djúp spor. „Ég fékk mynd- bandsupptökuvél frá Panasonic, sem var með litlum spólum í sem hægt var að setja í stærri spólu og stinga í VHS-tæki. Markaði þetta upphafið að kvikmyndaferlinum því ég og Baldvin Albertsson félagi minn not- uðum þessa upptökuvél nær daglega næstu tvö árin og lékum okkur að því að gera stuttmyndir.“ Vantar stóru spóluna Enn á Þorvaldur pappakassa full- an af snældum frá þessum árum. „En því miður hef ég týnt stóru spól- unni sem þarf til að spila þessar upp- tökur og get þess vegna ekki horft á þær.“ Þorvaldur man einnig eftir að hafa fengið kvæðasafn Jónasar Hall- grímssonar og eintak af Fjallkirkju Gunnars Gunnarssonar. Þá hafði hann einhvern pening upp úr krafs- inu. „En myndbandsupptökuvélin var það sem stóð upp úr,“ segir Þor- valdur. Eins og vera ber á Þorvaldur frekar hallærislega fermingarmynd til minningar um daginn. „Ég held að það hafi verið í tísku hjá strákum á þessum tíma að setja skol í hárið og ég var með einhvern skringilegan svartan lit í hárinu. Ég skil ekki al- veg hvaða klipping var í gangi. Það má alveg setja spurningarmerki við tískustrauma þessa tímabils.“ ai@mbl.is Smávaxinn í þjóðlegum klæðnaði Panasonic-myndbands- upptökuvél var á meðal fermingargjafa Þorvalds Davíðs, og markaði senni- lega upphafið að kvik- myndaferlinum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Myndarpiltur Þorvaldur segir háralitinn hafa verið undarlegan, í tísku var að piltar settu skol í hárið. Þjóðlegur fatnaðurinn er ekki amalegur. Viðhorf „Sem barn var ég ekki sérstaklega meðvitaður um trúna, en fannst samt alltaf gott að fara í kirkju og mótaði eflaust viðhorf mitt að systir pabba er prestur og af- skaplega góð manneskja,“ segir Þorvaldur Davíð Krist- jánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.