Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 70
70 | MORGUNBLAÐIÐ
K
ra
ft
av
er
k
Hágæða heyrnatól sem hlotið hafa
marg-víslegar viðurkenningar fyrir hljómburð
og hönnun. Hægt að tengja saman þannig að 2 eða fleiri
geti hlustað úr sama tækinu.
Fjarstýrð símsvörun og hljóðnemi fyrir „hands free“ símtöl.
Tvær gerðir og ótal litir...
U R B A N E A R S • H Á G Æ Ð A H Ö N N U N • H L J Ó M F Y L L I N G & G Æ Ð I
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090
www. minja.is • facebook: minja
TVÆR GERÐIR:
PLATTAN kr. 10.800
HUMLAN kr. 9.900
Þ
að er að ótalmörgu að
hyggja ef halda á ferming-
arveislu með öllu tilheyr-
andi, boðskortum, kertum,
gestabók, servíettum, borðskrauti,
hárskrauti og jafnvel skóskrauti!
Það er því ekki að undra þótt margir
fari þá leið að láta prenta boðskort
og kaupi skrautið tilbúið en það er
alltaf ákveðinn hópur sem hefur
bæði tíma og ánægju af því að leggja
á sig vinnuna við að föndra sem
mest af veisluefninu. Þannig verða
boðskortin t.d. aðeins persónulegri
og oft ennþá skemmtilegri og dýr-
mætari minjagripur um ferming-
ardaginn.
Í versluninni Föndru er boðið upp
á allt milli himins og jarðar til að
búa eitt og annað til fyrir ferm-
inguna. „Við erum með allt í boðs-
kortin, skreytiefni, dúkaefni og
renninga, styttur á veisluborðið og
fermingartertuna, servíettur og
margt, margt fleira,“ telur Björg
Benediktsdóttir verslunareigandi
upp. Og ef litast er um í búðinni í
dag er greinilegt að fermingar eru á
næsta leiti, búið er að setja upp dúk-
uð borð með skreytiefnum og vefn-
aðarvörudeildin er úttroðin af nýj-
um og fallegum efnisströngum fyrir
fermingarkjólinn, slæður eða fatnað
annarra fjölskyldumeðlima en ferm-
ingarbarnsins.
Björg segir að í ár sé meiri mýkt í
skreytingunum en verið hefur und-
anfarin ár, meira um náttúruleg efni
og dálítil nostalgía jafnvel þar sem
gamaldags lausnir séu notaðar. „Það
er meira um blúndur og mýkt og
mikið t.d. verið að skreyta krukkur
til að nota undir kerti á borðinu.“
Ekkert dregið úr föndrinu
Það er ekki beinlínis
litadýrðinni fyrir að
fara þetta árið í
skreytingunum en
Björg segir að svo-
kölluð „natur“-lína
sé ríkjandi og ef
notaðir séu litir séu
það helst fuschia-
bleikur og petrol-
túrkísblár en þeir
tónar eru báðir mun
dýpri og ekki eins
skærir og hreinn
bleikur og túrkísblár
og setja því aðeins fág-
aðri og fullorð-
inslegri blæ á
skreytingarnar
þótt fólk velji litagleðina.
Að sögn Bjargar hefur ekkert
dregið úr því að fólk föndri boðskort
og annað fyrir ferminguna þótt
tölvutæknin og prentþjónustur geti
sparað manni tíma. „Nei, það er
ekkert minna föndrað nú en áður og
okkur finnst meira um að ferming-
arbarnið hafi sjálft skoðanir og velji
sjálft liti og þema fyrir veisluna.“
Hún hefur fulla trú á að allir geti
föndrað og búið til eitthvað persónu-
legt og fallegt fyrir veisluna og seg-
ist hafa allt til þess. „Það er alltaf
vinsælt hjá fermingarbarninu að
gera kertið sjálf(ur) en einnig að
gera veifur til að skreyta með. Þá er
mjög einfalt að gera nokkurs konar
„bolta“, þá er bandi vafið um blöðru
og það svo bleytt með stífelsi og
þegar blaðran er sprengd sitja eftir
mismunandi skemmtilegir boltar
sem eru t.d. tengdir saman með
bandi eða borða. Einnig er vinsælt
að mála pappamassastafi, nafn eða
upphafsstafi fermingarbarnsins, og
láta standa á veisluborðinu.“
Þetta segir Björg alla geta gert og
er starfsfólk Föndru reiðubúið að
segja fólki til og veita leiðbeiningar
um vörurnar sem eru þar til sölu. Þá
heldur verslunin einnig kerta- og
skreytinámskeið sem taka eina
kvöldstund.
Heimasaumaðir kjólar og
rúmföt
Fyrir þá sem vilja
fara alla leið og sauma
fötin fyrir ferm-
inguna eða jafnvel
fermingargjafirnar
kennir ýmissa
grasa í vefn-
aðarvörudeild
Föndru. „Við erum
með efni í fatnað,
silkisatín, blúndur
og fleira í ferm-
ingarkjólana en
einnig damask því það
er mikið verið að
gera damask-
rúmföt til að gefa
í fermingargjöf.“
Skraut frá höfði niður á tær
Fallegar skreytingar og kerti setja svip sinn á veislu-
borðið í fermingarveislunni og ekki skemmir ef hand-
bragðið er fermingarbarnsins sjálfs, eða einhvers úr fjöl-
skyldunni. Að auki skapar það skemmtilega stemningu
að koma saman og föndra dálítið mitt í öllum ferming-
arundirbúningnum.
Morgunblaðið/Kristinn
Gamalfínt „Í ár er meiri mýkt í skreytingunum en verið hefur undanfarin ár, meira um náttúruleg efni og dálítil nostalgía,“ segir Björg Benediktsdóttir eigandi Föndru.