Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 50
50 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
egar kemur að vali á ferm-
ingargjöf þá er besta gjöf-
in oft sú sem kennir og
þroskar og ferming-
arbarnið býr lengi að.
Hljóðfæri er slík gjöf og segir
Sindri Heimisson, framkvæmda-
stjóri Hljóðfærahússins, að margir
leggi leið sína í verslunina í leit að
gítar, trompet eða trommusetti í
fermingarpakkann.
Fyrsta „alvöru“ hljóðfærið
„Vinsælust eru hljóðfæri á borð
við kassagítar og rafmagnsgítar og
blásturshljóðfæri s.s. trompetar og
flautur. Þá selst ýmiskonar tækja-
búnaður til upptöku og tónsmíða. Í
sumum tilvikum er verið að kaupa
gjöfina handa barni sem er að læra á
hljóðfærið í fyrsta skipti, en í öðrum
verið að fjárfesta í „alvöru“ hljóðfæri
fyrir þá sem eru lengra komnir, t.d. í
blásturshljóðfærunum og farið að
vanta fullorðinshljóðfæri.“
Sumir fá hljóðfæri eða upp-
tökutæki að gjöf, en aðrir koma í
búðina eftir fermingarveisluna og
nota fermingarpeninginn til að fjár-
festa í hljóðfæri. „Krakkarnir í síð-
arnefnda hópnum virðast gjarnari á
að kaupa sér dýrari vöru og vita
mjög greinilega hvað þeir vilja.“
Sindri segir það mikinn misskiln-
ing að of seint sé í rassinn gripið að
hefja tónlistarnám þegar komið er á
unglingsár. Þó sannað sé að tónlist-
arnám sé þroskandi og styðji við
annað nám má ekki líta svo á að þeir
sem ekki hófu námið á barnsaldri
séu þar með úr leik. „Sú rang-
hugmynd er sem betur fer á und-
anhaldi að ef tónlistarnámið hefst
ekki á fyrstu árum grunnskólagöng-
unnar þá sé barnið búið að missa af
lestinni. Er löngu búið að afsanna
þessa mýtu og má finna fjölmörg
dæmi í tónlistinni um fólk í allra
fremstu röð sem byrjaði ekki að spila
fyrr en um fermingu og jafnvel
seinna.“
Stelpurnar sækja á í tónsmíðum
Greina má kynjaskiptingu í hljóð-
færavalinu. „Því miður eru strák-
arnir enn nánast einráðir í gítörum
og trommum en stelpurnar virðast
leita meira í klassísku hljóðfærin;
blástur og strengi. Eru stelpurnar í
seinni tíð að koma sterkari inn í stúd-
íóbúnaðinn og nota tölvuna til jafns
við strákana til að búa til alls konar
tónlist og brjótast þar inn í heim sem
lengi hefur verið mikið karlaveldi.“
Að sögn Sindra er unglingurinn
yfirleitt hafður með í ráðum við
hljóðfærakaupin og sárasjaldgæft að
gjöfinni sé skilað. Finna má vönduð
hljóðfæri í öllum verðflokkum og
spannar þannig kassagítarsúrvalið
frá u.þ.b. 20.000 kr. upp í 300.000 kr.
„Ef valið er hljóðfæri frá virtum
framleiðanda má stóla á að sama
hvaða verðflokkur verður fyrir val-
inu er barnið að eignast vandaðan
hlut sem nýtist því um langt skeið.“
Er þannig hægt að finna hljóðfæri
sem fellur vel innan eðlilegra verð-
marka fyrir fermingargjöf en fyrir
stærri og dýrari hljóðfæri eru fjár-
mögnunarmöguleikar í boði. „Korta-
lánin létta mörgum kaupin og síðan
eru tveir aðilar á lánamarkaði sem
bjóða upp á hljóðfærakaupalán til
allt að fimm ára.“
Sindri segir gott að halda sig við
Undur Í versluninni er að finna úrval hljóðfæra.
Gjöf sem
stækkar
sjóndeildar-
hringinn
Hljóðfæri frá virtum framleiðanda er gjöf sem heldur
verðgildi sínu vel og skapar verðmæt þroskatækifæri.
Gjafir sem gleðja
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Fermingagjafir
á frábæru verði
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Verð 6.950,-Verð 4.700,- Verð 5.800,-
Verð 6.700,-Verð 11.500,-
Verð 17.900,-
Verð 8.200,-
Verð 5.900,-Verð 5.900,- Verð 7.500,-