Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 51

Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ | 51 Gjafabréf Icelandair gildir sem greiðsla upp í flugfar til allra áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Þú velur upphæðina. + Pantaðu fermingargjöfina á www.icelandair.is Gjafabréf Icelandair gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Vertu með okkur BROT AF HEIMINUM Í FERMINGARGJÖF virtu merkin, bæði vegna þess að þar má stóla á gæðin en einnig vegna þess að þar eru betri möguleikar á endursölu ef til þess kemur að ferm- ingarbarnið vill snúa sér að öðru hljóðfæri eða uppfæra hjá sér hljóð- færasafnið. „Af öllum þeim gjöfum sem börn eru að fá í tilefni af ferm- ingunni; fatnað, tölvur, snjallsíma og sjónvörp, þá er hljóðfæri það sem heldur best virði sínu. Halda vönduð hljóðfæri verðgildi sínu betur en flest annað og geta enn verið mikils virði eftir tíu eða tuttugu ára notk- un.“ Ef barnið er að stíga sín fyrstu skref inn í heim tónlistarinnar gæti verið óvitlaust að láta námskeið í tónlistarskóla fylgja með. Sindri seg- ir fátt geta komið í staðinn fyrir leið- sögn góðs kennara. „En ekki er held- ur hægt að neita því að í dag má komast mjög langt með hjálp nets- ins. Þar má finna vönduð kennslu- myndbönd þar sem farið er yfir t.d. gítarspil, eða hvernig nota má tölvur og stúdíótæki til að skapa tónlist.“ Enginn hávaði Tækniframfarir í hljóðfærasmíði þýða svo að ekki þarf að raska heim- ilisfriðnum þó unglingurinn á heim- ilinu fái brennandi áhuga á gítarleik, vilji berja trommusettið dægrin löng eða þeyta trompetinn út í eitt. „Í dag má fá búnað fyrir flest hljóðfæri sem stilla má þannig að hann að eyðir öllu hljóði og beinir beint í heyrnartól þess sem spilar. Gítarinn má tengja við snjallsímann og stýra spiluninni þaðan með alls kyns forritum, píanó- framleiðandinn Yamaha býður upp á „silent“ útgáfur og hægt að fá demp- ara á blásturshljóðfærin sem gleypir í sig hljóðin og sendir í heyrn- artólin.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Fjárfesting Hvern langar ekki að eiga almennilegan gítar? Þá vantar bara hljómsveitina. Tónar Arnar Freyr Gunn- arsson og Sindri Heimisson. „Í dag má fá búnað fyrir flest hljóðfæri sem stilla má þann- ig að hann að eyðir öllu hljóði og beinir beint í heyrnartól.“ Riff Góðir hátalarar tilheyra rafmagnshljóðfærum. Þeir sem fengið hafa að læra á hljóðfæri og mennta sig í tónlist geta vitnað um það að hljóðfæri er gjöf sem skilur mikið eftir sig. Sindri segir þekkingu á tónlist víkka sjóndeild- arhringinn. Hljóðfæri í fermingargjöf getur þannig verið lykillinn að nýjum menningarheimi, og mann- bætandi áhugamál. Fyrir suma getur hljóð- færið jafnvel leikið mikilvægt félagslegt hlut- verk og verið límið sem bindur saman bílskúrsband skólafélaga, og eldsneytið sem nærir stóra drauma sem gera lífið meira spennandi. „Tónlist er öllum holl og auðgar andann. Að læra á hljóðfæri eða hljóðupptökutæki er skemmtileg iðja og uppbyggileg, gefandi og hvetjandi.“ Stórir draumar í bílskúrnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.