Morgunblaðið - 06.03.2015, Side 32
32 | MORGUNBLAÐIÐ
F
ermingin markar mikilvæg
tímamót í lífi einstaklingsins.
Fermingardagurinn er hátíð-
legur dagur sem gaman er að
festa á mynd og íslensk hefð að ferm-
ingarbarnið heimsæki ljósmynda-
stúdíó og láti mynda sig í tilefni dags-
ins. Fermingarmyndirnar skipa oft
heiðurssess á veggjum og í hillum
heimilisins og eru verðmæt heimild
um æviskeið þegar unglings- og full-
orðinsárin voru rétt handan við horn-
ið.
Harpa Hrund Bjarnadóttir ljós-
myndari (http://www.harpahrund.is/
www.harpahrund.is) segir fermingar-
myndirnar oft með verðmætustu eig-
um fólks og eitthvað sem ekki má
sleppa. „Þegar ég fermdist sjálf var
látið duga að taka myndir af mér úti í
garði með heimilismyndavélinni. Mér
fannst ég sleppa ósköp vel og var á
þessum aldri ekki mjög spennt fyrir
að vera mynduð, en sé í dag mjög eft-
ir því að eiga ekki faglega teknar
fermingarmyndir.“
Gott að mynda með fyrirvara
Að sögn Hörpu er algengt að ferm-
ingarmyndirnar séu teknar 3-4 vikum
fyrir fermingardaginn. Er þá búið að
kaupa fermingarfötin á unglinginn,
hægt að mynda bæði hann og fjöl-
skyldumeðlimi og hafa myndirnar til-
búnar og til sýnis í fermingarveisl-
unni. „Sú tíð er liðin að barnið sé
drifið með hraði til ljósmyndara strax
eftir fermingarathöfn og svo haldið
rakleiðis í veisluna, enda hefur fólk í
mörgu öðru að snúast á þessum degi
og gott að losna við umstangið.“
Stúlkurnar eru oft með vandaða
hárgreiðslu þegar þær eru fermdar,
en yfirleitt er gerð prufugreiðsla
nokkru áður og hægt að taka ferm-
ingarmyndirnar við það tækifæri.
„Þá getum við líka tekið hluta mynd-
anna með hárið tekið niður, með
hversdagsgreiðslu, til að eiga fjöl-
breyttari myndir af fermingarstúlk-
unni,“ útskýrir Harpa.
Enginn asi
Það er ávísun á betri myndir að
taka fermingarmyndirnar í tíma,
þannig að allir séu afslappaðir og
enginn asi á myndatökunni. „Streita
og áhyggjur eiga það til að skína í
gegn á myndunum. Ef fólk er rólegt
og ekki í tímaþröng nást fallegri
myndir jafnt af fermingarbarninu
sem og öðrum fjölskyldumeðlimum.“
Er það út af þessu sem Harpa ráð-
leggur viðskiptavinum sínum að gefa
sér góðan tíma í myndatökuna og
velja ljósmyndatilboð sem gerir ráð
fyrir nægilegum mínútufjölda. „Það
er mikill munur á fermingarmynda-
töku sem tekur kortér eða hálftíma
annars vegar, og einn og hálfan til tvo
tíma hins vegar. Þegar ljósmyndari
og fyrirsæta geta gefið sér betri tíma
verður andrúmsloftið mun rólegra,
svipbrigði eðlilegri og fallegri og út-
koman betri. Stundum er ekki einu
sinni hægt að byrja að smella af fyrr
en fimmtán til tuttugu mínútur eru
liðnar, til að gera þann sem situr fyrir
afslappaðan og rólegan og fá hann til
að „gleyma“ myndavélinni.“
Hvíti kyrtillinn hverfur
Í fermingarmyndatökunni er al-
gengt að blanda saman myndum af
barninu og svo ýmsum myndum af
fjölskyldumeðlimum, einum og sér
eða saman. Harpa segir suma velja
að skipta myndatökunni í tvennt, þar
sem teknar eru fermingarmyndir í
aðdraganda athafnarinnar og svo aft-
ur að fermingarbarnið er myndað um
sumarið. „Mjög hefur dregið úr því,
en þekkist samt enn, að fólk vilji fá
þessa dæmigerðu fermingarmynd af
barninu, í hvítum kyrtli og með
sálmabók. Frekar vill fólk fá nokkurs
konar tískumyndir af ferming-
arbarninu í sparifötunum og í hvers-
dagsfatnaði. Einnig fjölgar börnum
sem fermast borgaralega og þá á
kyrtillinn ekki við. Er líka algengt að
taka myndir sem tengjast áhugamáli
barnsins. Taka börnin t.d. með sér
fótboltabúninginn sinn, eða fá lánaða
vandaða ballettbúninga frá dansskól-
anum sínum,“ segir hún.
Harpa mælir með því að ferming-
arbarnið fái sjálft að ráða hvaða fatn-
að og „leikmuni“ það tekur með í
myndatökuna. Þannig fáist oft
skemmtilegasta útkoman og per-
sónuleikinn skíni í gegn. „Mér er
minnisstæður einn strákurinn sem
valdi að koma til mín í vinnugall-
anum, en hann stundar það að gera
upp bíla, og komu mjög flottar mynd-
ir úr þeirri töku. Í önnur skipti hef ég
t.d. lagt leið mína upp í hesthús og
myndað fermingarbörn með uppá-
haldshestinum, í essinu sínu.“
Stífari í sparifötunum
Myndir í hversdagsfatnaði virðast
líka oft breyta líkamsburðum og smá-
atriðum í svipbrigðum fólks. „Spari-
fötin eru varasöm að því leyti að fólki
hættir stundum til að stífna þegar ný-
straujuð skyrtan og bindið eru komin
um hálsinn.“
Að sögn Hörpu eru litmyndir farn-
ar að verða meira áberandi. „Á tíma-
bili voru svarthvítar myndir mjög í
tísku og kannski sjö svarthvítar
myndir teknar fyrir hverjar þrjár lit-
myndir. Nú hefur hlutfallið snúist við
og fólk biður um fleiri litmyndir en
svarthvítar í hverri töku. Fyrir
nokkrum árum virtust allar myndir
vera bara með ýmist svörtum eða
hvítum bakgrunni, en í dag eru not-
aðir bakgrunnar í öllum litum og af
ýmsum gerðum. Sjálf er ég með átján
bakgrunna til taks í mínu stúdíói.“
Myndirnar í appi
Ýmsir valkostir eru í boði hvað
varðar afhendingu myndanna. Sumir
vilja fá prentað albúm, aðrir stakar
myndir til að ramma inn, og aðrir
vilja fá stafrænt afrit til að nota eftir
eigin höfði. „Ég gæti þess að veita
mínum viðskiptavinum allar mynd-
irnar, ef þeir kjósa það, í prent-
upplausn, svo þeir geta prentað þær
og notað eftir eigin hentugleika. Sum-
ir vilja t.d. endilega nota myndir úr
fermingarmyndatökunni á jólakortin
og gegnir kortið þá tvöföldu hlutverki
sem jólakort og þakkarkort til þeirra
sem komu í veisluna. Myndirnar mín-
ar geta þeir sótt m.a. í gegnum snjall-
símaforrit og deilt þar með vinum og
ættingjum.“
ai@mbl.is
Betri myndir ef allir eru afslappaðir
Harpa Hrund ljósmyndari
segist hafa dregið mjög úr
fermingarmyndum af
barninu í hvítum kyrtli með
sálmabók. Í staðinn vill
fólk myndir sem sýna
áhugamál og persónuleika
fermingarbarnsins.
Sú tíð virðist liðin að unglingar séu erfitt myndefni, hræddir
við myndavélina og vandræðalegir. „Þökk sé snjallsímanum
eru börnin dugleg að taka sjálfsmyndir og eru líka mikið
mynduð af vinum sínum og félögum. Þegar kemur að ferm-
ingunni eru þau orðin mjög vön myndatökum og mörg þeirra
búin að finna „sinn svip“ fyrir myndir,“ segir Harpa.
Alvön myndavélum
Skapandi Harpa Hrund segir gott
að fermingarbarnið ráði förinni.