Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.03.2015, Blaðsíða 46
46 | MORGUNBLAÐIÐ Ljósin skína í Björtuloftum Ferming á hæstu hæðum Hörpu Fáðu tilboð: veislur@harpa.is eða 528 5070 Við sjáum um að útfæra fermingarveisluna með þér. Hvort sem þú kýst hádegisveislu, hlaðborð, síðdegiskaffi, kvöldverð eða eitthvað allt annað. Úrvals aðstaða, glæsilegir salir og hagstætt verð — og útsýnið er innifalið. Br an de nb ur g V insælt er að gefa heilsurúm í fermingargjöf. Sigurður Matthíasson, eigandi Svefns & heilsu, segir unglinginn oft eignast þá sitt fyrsta „fullorðinsrúm“ og rúmið gagnast unga fólkinu fram á fullorðinsár. „Rúm eru orðin mjög algeng ferm- ingargjöf. Á fermingaraldri er her- bergjunum oft breytt úr barna- herbergum í falleg persónuleg fullorðinsherbergi. Þegar ferminga- tímabilið nálgast fáum við góð við- brögð við fermingartilboðunum okk- ar og margir foreldrar leggja leið sína í verslunina með fermingarbarninu til að velja hentuga heilsudýnu.“ Sigurður segir mikla heilsuvakn- ingu í samfélaginu í dag og flestir séu meðvitaðir um hversu mikilvægt er að sofa vel á góðri heilsudýnu sem veitir góðan stuðning og stuðlar að þægilegum og góðum svefni. Sig- urður segir að það skipti ekki síður máli fyrir börn og unglinga en full- orðna að sofa í góðu heilsurúmi. Úthvíld og endurnærð „Góður svefn er eitt af und- irstöðuatriðum á uppvaxtarárunum. Ef dýnan er ekki í lagi gildir það sama með börnin og okkur fullorðna fólkið. Það er nauðsynlegt að vakna endurnærður og vel hvíldur og tilbú- inn að takast á við verkefni dagsins.“ Að sögn Sigurðar hafa ferming- arrúmin farið stækkandi. Í dag er al- gengast að fyrir valinu verði rúm sem eru 120 cm á breidd, og jafnvel farið allt upp í 140 og 150 cm. „Rúm sem er 120 cm á breiddina er nokkuð stórt einstaklingsrúm þar sem ungling- urinn getur látið fara vel um sig. Rúmin sem eru mest keypt hjá Svefni & heilsu eru 30 cm þykk heilsudýna með svæðaskiptu poka- gormakerfi og á sterkum íslenskum botni og fótum. Rúmin sem seld er á fermingartilboði kosta frá 79.900 kr. og fylgir vandað sængurverasett að eigin vali með í fermingartilboðinu.“ Við fermingaraldur breytast oft þarfir einstaklingsins. Dýnan verður oft helsti dvalarstaðurinn, þar sem finna þarf pláss fyrir skólabækur og fleira. Þegar vinirnir líta inn breytist dýnan síðan í gestasófa á meðan horft er á mynd eða spilaður tölvuleikur. „Fermingarrúmin koma með styrkt- um kanti svo að dýnan þoli betur að setið sé á dýnubrúninni löngum stundum við lærdóm eða leik,“ segir Sigurður. Hlífðardýnan nauðsynleg „Flestir hafa áttað sig á mikilvægi þess að eiga góða hlífðardýnu og enn brýnna að hlífðardýnuna vanti ekki á rúm unglingsins. Þetta efsta lag tek- ur í sig mikið af þeim óhreinindum og svita sem líkaminn losar frá sér með- an við sofum. Hrein og fín heilsudýna endist lengur ef notuð er hlífð- ardýna.“ Sigurður mælir með því að ferm- ingarbarnið fái að taka þátt í vali á heilsudýnunni. Þarfir hvers og eins eru ólíkar og vissara að kaupa dýnu sem barninu líkar vel við. Í leiðinni er hægt að skoða og prófa kodda og sængur sem geta bætt svefninn enn frekar. Á rúmið þarf svo að velja fallegt sængurverasett, hlífðardýnu og lak. Sigurður segir erfitt að benda fingri á tiltekna tísku í rúmfatnaðinum um þessar mundir; úrvalið sé breitt og smekkur hvers og eins ráði för. „Unglingunum þykir oft hentugt að velja flott lak og sængurver í sama lit þannig að rúmið lítur vel út án rúm- teppis. Ef eitthvað er, þá eru nátt- úrulitir á sængurfatnaði meira áber- andi á ljósmyndunum á síðum hönnunartímarita.“ Bendir Sigurður t.d. á alla gráa og grábrúna tóna. „Annars er allt í tísku. Marglituð sængurföt geta líka haft þann kost fram yfir þau einlitu að þau eru ekki eins skítsæl.“ ai@mbl.is Góður staður til að hreiðra um sig Á unglingsárunum er rúm- ið oft helsti íverustaðurinn og notað jafnt til skóla- bókalesturs, afþreyingar og hvíldar. Velja þarf vand- aða dýnu sem fellur rétt að líkamanum. Morgunblaðið/Eggert Tímasparnaður „Unglingunum þykir oft hentugt að velja flott lak og sængurver í sama lit þannig að rúmið lítur vel út án rúmteppis,“ segir Sigurður Matthíasson. Bækistöð Á unglings- árunum er rúmið not- að til lestrar, afþrey- ingar, og sem sæti fyrir gesti. Það fylgir unglingsárunum oft að verja löngum stundum uppi í rúmi, enda þægilegur staður til að hvílast, og herbergið oft fyllt af afþreyingartækni, skjám og tölvum. Sigurður bendir á að góð heilsudýna kostar minna en snjallsími og tíminn sem fólk ver í rúminu er mjög dýrmætur. „Flestir dvelja þriðjung ævinnar í rúminu og unglingarnir jafnvel enn lengur.“ Ef reikna má með að rúmið sé mikið notað við nám, vinnu og afþreyingu eru sumir sem velja þann möguleika að fjárfesta í stillanlegu rafmagns- rúmi. „Með stillanlegu rúmunum er hægt að tryggja betri líkamsstöðu þeg- ar setið er með t.d. skólabók eða fartölvu í fanginu. Með kaupum á still- anlegum botni má reikna með að rúmið verði tvöfalt til þrefalt dýrara.“ Stillanlegt rúm kemur í góðar þarfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.