Morgunblaðið - 06.03.2015, Síða 63

Morgunblaðið - 06.03.2015, Síða 63
B örnin nú til dags virðast stundum vera að drukkna í alls kyns leikföngum og tækjum. Það er af sem áð- ur var þegar þótti framúrskarandi flott að fá eins og eitt reiðhjól í fermingargjöf, til að geta skotist á milli torfbæja. En hvað á að gefa ferming- arbarninu sem virðist ekki vanhaga um nokkurn hlut? Og gefum okkur um leið að sádi-arabískur olíufursti fáist til að taka þátt í að borga fyr- ir gjöfina, eða að Víkinga- lottómiðinn skili loksins fyrsta vinningi. Sunreef 90 Ultimate Öll fermingarbörn ættu að eiga snekkju. En snekkjur eru ekki all- ar skapaðar jafnar. Þessi forláta tvíbytna frá Sunreef er mikið meistaraverk hönnunar og tækni, gerð úr koltrefjum og sólarsellum. Er um að ræða seglbát, svo að ekki þarf að hafa of miklar áhyggjur af bensínreikningnum þegar litli ætt- arlaukurinn skellir sér í hringferð um Hvalfjörðinn. Er svefnpláss fyrir marga gesti um borð og stofan rúmgóð. Fremst í snekkjunni er heitur pottur og nóg af góðum stöðum til að slaka á í sólbaði. En hvers vegna tvíbytnu? spyrja lesendur eflaust. Jú, tvíbytnur hafa þann eiginleika að vera stöðugri á sjónum, vagga ekki svo mikið og ná meiri hraða. Reikna má með að snekkjan myndi kosta á bilinu einn til tvo milljarða fullkláruð. Rolls Royce Wraith Fram að bílprófi kalla unglings- árin á mikið skutl. Ef illa gengur að finna tíma fyrir allt skutlið er upplagt að gefa fermingarbarninu Rolls Royce Wraith. Þannig er tryggt að röð sjálfboðaliða bíði fyr- ir framan húsið, í þeirri von að fá náðarsamlegast að setjast undir stýrið á þessum eðalvagni, til að koma ungmenninu á fótboltaæfingu eða í tónlistarskólann. Wraith er sportlegasti bílinn í Rolls Royce-línunni, en mikill dreki á veginum og klassískur í bak og fyrir. Meðal sérkenna eru hurð- irnar sem opnast „öfugum megin“. Þá má vitaskuld panta útgáfu með nuddsætum og kæli fyrir kampa- vín. Wraith kostar frá um 40 millj- ónum vestanhafs, en er væntanlega mun dýrari þegar búið er að bæta við aukabúnaði og flytja drossíuna til landsins. Handteiknaður Tinni Er ekki ungt fólk hrifið af myndasögum? Og eru ekki sög- urnar um Tinna heimsbókmenntir? Þeir sem segja já við báðum spurn- ingum ættu að skoða uppboð Sotheby’s í París 7. mars, en þar verða seldir munir tengdir teikni- myndasagnagerð. Einn verðmæt- asti munurinn á uppboðinu er skissa eftir Hergé, af forsíðukápu. Er matsverðið á bilinu 450.000 til 480.000 evrur. ai@mbl.is Fermingargjafir handa barninu sem á allt Dreki Flest börn fara í skólann á 30 milljóna króna Volvo strætó. Af hverju ekki 30 milljóna Rolls Royce? Frelsi Rúmgóð snekkja er til margra góðra hluta nytsamleg. Verðmæti Skyssur eftir Hergé á uppboði Sotheby’s kosta glás. MORGUNBLAÐIÐ | 63 KASUAL Á FACEBOOK | KASUAL SMÁRALIND S: 588 1444 KASUAL FERMINGAFÖT Á STELPUR & STRÁKA Jakki kr. 21.900 Skyrta kr. 7.990 Buxur kr. 9.990 Jakki kr. 9.900 Bolur kr. 7.900 Buxur kr. 9.900 Grænn kjóll kr. 21.900 Jakki kr. 23.990 Vesti kr. 12.900 Buxur kr. 9.990 Kjóll kr. 9.900 Hálsmen kr. 8.900
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.