Morgunblaðið - 06.03.2015, Qupperneq 74
74 | MORGUNBLAÐIÐ
Lengir. Þykkir. Engar klessur.
Clump Defy Extension
Sölustaðir: Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli. HAGKAUP – Holtagörðum, Kringlunni, Smáralind, Skeifunni. Lyf og heilsa: Austurveri, Eiðistorgi,
Hringbraut, Kringlunni. Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Árbæjarapótek, Garðsapótek, Lyfjaver, Lyfjaval Bílaapótek, Nana Hólagarði,
Lyfsalinn Glæsibæ, Urðarapótek. Landið: Lyf og Heilsa: Glerártorgi, Hrísalundi, Hverargerði og Vestmannaeyjum. KS Sauðarkróki, Apótek Suðurnesja.
gegnum bloggið og eyðum meiri
tíma saman, sem er afar dýrmætt.“
Hollt veganesti
Sólveig bendir á að hún og dóttirin
hafi báðar kynnst hollum, næring-
arríkum og hreinum mat í æsku og
þar með hafi línan í rauninni verið
lögð. „Við bjuggum í mörg ár heima
hjá foreldrum mínum, Eiríki og
Hildi. Þau hafa stundað lífræna mat-
jurtarækt til heimilisins í hartnær 60
ár og því ólumst við mæðgur báðar
upp við fallegar hugsjónir og fullt af
fersku grænmeti. Afi Eiríkur og
amma Hildur eru fyrirmyndirnar
okkar beggja og ástæðan fyrir því að
lífræn ræktun er sú aðferð sem okk-
ur þykir eðlilegust við ræktun mat-
væla, bæði hvað snýr að okkur sjálf-
um og jörðinni okkar.“
Þær mæðgur eru sammála um að
matarblogg sé orðið að sérstöku list-
formi, þar sem fallegar myndir, góð-
ar uppskriftir og frásagnarlist flétt-
ist saman, og þar séu þær á
heimavelli. „Við mamma eigum það
líka sameiginlegt að hafa frá unga
aldri haft áhuga á listum,“ segir
Hildur. „Mamma lærði myndlist,
textíl og hannyrðir og ég lagði stund
á tónlist. Hún hefur mikla þekkingu
á matreiðslu heilsu- og hráfæðis og
ég er með BS-gráðu í næring-
arfræði. Við höfum báðar mjög gam-
an af því að framreiða fallegan mat
og stilla honum upp og elskum fal-
legar matarmyndir. Því njótum við
þess báðar að blogga um mat og
deila hugmyndum með öðru mat-
aráhugafólki.“
Dæturnar fermdar
Talið berst að veislu- og fjöl-
skylduhefðum og fermingu Hildar
fyrir 20 árum. „Við héldum fallegt
fjölskylduboð heima hjá foreldrum
mínum og buðum upp á frekar hefð-
bundnar veitingar, þar sem þó var
notað hollara hráefni en almennt
tíðkaðist,“ segir Sólveig. „Til dæmis
vorum við með pönnukökur bakaðar
úr heilhveiti, bláberjaköku þar sem
svampbotninn var sömuleiðis úr
heilhveiti, heimabakað brauð og
hummus svo eitthvað sé nefnt. Á
þessum tíma þótti þetta vera hálf-
gerð heilsuveisla.
Fjórtán árum síðar var ferming-
arveisla númer tvö á heimilinu. Þá
V
ið mæðgur eigum það sam-
eiginlegt að hafa brennandi
áhuga á matargerð, græn-
meti, lífrænni matjurtarækt
og umhverfisvernd og við eigum afar
gott með að vinna saman,“ segir Sól-
veig Eiríksdóttir, heilsumatarhönn-
uður og veitingakona, betur þekkt
sem Solla í Gló, en hún og dóttir
hennar Hildur Ársælsdóttir standa
að baki spennandi og fallegu nýju
matarbloggi sem ber hið viðeigandi
heiti Mæðgurnar.
„Í fyrrasumar ræddum við okkar
á milli að okkur langaði til að hittast
oftar og gera eitthvað skemmtilegt
matarkyns saman. Þannig fæddist
hugmyndin að mæðgnablogginu,
sem varð að veruleika síðastliðið
haust. Við erum ótrúlega þakklátar
fyrir frábærar og hvetjandi við-
tökur. Þetta er með því skemmti-
legra sem við gerum, við fáum útrás
fyrir sameiginleg áhugamál okkar í
bauð ég upp á litlar spínatbökur,
hýðishrísgrjóna-sushi, hráfæðis-
pitsur, hráfæðis-sushi, kúrbítsrúllur,
hráfæðiskökur og fleiri skemmtilega
hollustubita. Ég hef sjaldan fengið
jafnjákvæð viðbrögð og í þeirri
veislu. Í kjölfarið rigndi yfir mig fyr-
irspurnum þar sem veislugestir
báðu um uppskriftir að traktering-
unum. Ég útbjó þá uppskriftaskjal í
tölvunni og sendi pósta á vini og
vandamenn, sem voru að fara að
ferma eða halda minni veislur. Vin-
sældir „hollusturéttanna“ sýndu
svart á hvítu að það hafði orðið al-
vöru breyting á matarvenjum land-
ans, sem var auðvitað ákaflega gleði-
legt.“
Yngstu gestirnir
Aðspurðar segja Hildur og Sól-
veig það alltaf vera áskorun að útbúa
hollan og góðan bita fyrir yngstu
veislugestina. „Reynslan hefur sýnt
okkur að einfaldir réttir eins og litl-
ar speltpitsur með lífrænni tóm-
atsósu eru mjög ofarlega á vinsælda-
listanum hjá smáfólkinu. Sömuleiðis
slær það alltaf í gegn að hafa nóg af
niðurskornu grænmeti og ávöxtum.
Ef við værum að halda saman
fermingarveislu núna myndum við
bjóða til miðdagsveislu, með smá-
réttum og sætum bitum. Við mynd-
um leggja áherslu á litríkan, fallegan
og ferskan mat, hafa fullt af góm-
sætum litlum bitum, nóg af græn-
meti og ávöxtum og ekki má gleyma
fermingarkökunni. Markmiðið væri
ekki að halda „heilsuveislu“, heldur
bjóða upp á girnilegan veislumat úr
góðu hráefni. Við myndum útbúa
rétti sem okkur þykja góðir. Veislu-
matur á þeim nótum bragðast ekki
bara vel, heldur líður manni líka vel
af honum. Það er náttúrlega bara já-
kvætt.“
Kaka úr baunum
Mæðgunum finnst báðum mik-
ilvægt að úrvalið í fermingarveisl-
unni sé þannig að allir fái eitthvað
við sitt hæfi, líka þeir sem séu með
ofnæmi, t.d. fyrir eggjum, mjólk,
Morgunblaðið/Eggert
Í veislu hjá mæðgum
Sólveig Eiríksdóttir, heilsu-
matarhönnuður og veit-
ingakona, og dóttirin Hild-
ur Ársælsdóttir, með
BS-gráðu í næringarfræði,
halda úti vinsælu mat-
arbloggi þar sem áhersla
er lögð á hollan, ferskan og
fallegan mat – og einmitt í
þeim anda yrði ferming-
arboðið þeirra.
Gómsætt Mæðgurnar Sólveig og Hildur ásamt Ágústi ömmudreng: „Ef við værum að halda saman fermingarveislu myndum við bjóða til miðdags-
veislu, með smáréttum og sætum bitum. Markmiðið væri ekki að halda „heilsuveislu“, heldur bjóða upp á girnilegan veislumat úr góðu hráefni.“
’Finnið pönnu-kökumeistaranní fjölskyldunni