Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Qupperneq 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
„Veðrið leggst hræðilega í mig. Ég er ekki
bjartsýnn á að þetta fari að koma. Verður
svona að minnsta kosti fram yfir páska.“
Egill Guðjónsson, 59 ára.
„Sæmilega. Sumarið er ekki komið en ég veit
að það kemur. Þetta gerir vinnuna erfiðari
þar sem ég er mikið á ferðinni, allt tekur
lengri tíma.“
Kolbeinn Guðmundsson, 64 ára.
„Ekkert rosalega vel. Ég hlakka til að fá vorið
og ég finn að þetta hefur áhrif á mann. Maður
finnur það þegar kemur góður dagur á milli
hvað þetta munar miklu.“
Adda Bjarnadóttir, 27 ára.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
„Já, já, þetta er allt í lagi. Veðrið hefur ekki
haft mikil áhrif á mig og ég þoli alveg miklu
meira.“
Árni Þór Árnason, 42 ára.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
SPURNING DAGSINS HVERNIG LEGGST VEÐRIÐ Í ÞIG?
Þuríður Jónsdóttir sem-
ur um þessar mundir verk
fyrir Nicola Lolli og Dome-
nico Codispoti sem frum-
flutt verður á Listahátíð í vor.
Næstu tónleikar í 15:15
syrpunni í Norræna húsinu
um helgina eru helgaðir
Þuríði og flytur Caput-
hópurinn verk eftir hana.
Menning 56
Í BLAÐINU
Hvað er tískuviti (e. trend beacon)?
Tískuviti er samfélagsrýnir sem kryfur fortíð og nútíð til mergjar
og sýður saman spádóm tvö ár fram í tímann um hvers kyns
strauma og stefnur í tísku og hönnun.
Var erfitt að fá aðgang að þessum heimi?
Allar dyr opnuðust okkur eftir að við elduðum kvöldmat fyrir tísku-
vitana. Þeir sem fengu ekki að smakka neituðu að koma í viðtöl.
Hvað kom þér mest á óvart við gerð myndarinnar?
Það var hversu nákvæmir spádómarnir voru og aðferðafræðin aug-
ljós. Einnig leyndarhjúpurinn yfir þessum heimi, sem er falinn í
allra augsýn.
Stjórnumst við öll af þessum straumum og
stefnum sem aðrir hafa ákveðið?
Fyrst koma straumarnir og stefnurnar, síðan er þetta greint og gef-
ið út. Í fæstum tilvikum er þetta eitthvað sem einhver ákveður,
straumar og stefnur liggja í loftinu og koma fram.
Tollir þú í tískunni?
Ef tískan er marglaga kaka samsett úr mismunandi bragði og áferð
myndi ég sennilega teljast í neðsta laginu. Jafnvel myndi ég grein-
ast sem kökudiskurinn.
Veistu núna hvað verður í tísku eftir tvö ár?
Algerlega – og þeir sem sjá myndina í bíó verða með það á hreinu
líka.
Morgunblaðið/Eggert
ÞORKELL
HARÐARSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Spádómar
samfélags-
rýna
Forsíðumyndina tók
Antje Taiga Jandrig
Dómgreindarlaus tíst
hafa rústað lífi fólks og
viðbrögð á netinu þegar
fólk misstígur sig á slíkan
hátt má bera saman við
niðurlæginguna sem
fylgdi því að vera settur í
gapastokkinn fyrr á öld-
um. Netheimar 53
Fjögur ár eru liðin frá því að stríð braust út í Sýrlandi.
Börn sem fædd eru sama dag og átökin hófust, 15.
mars 2011, lýstu yfir stuðningi sínum við börn sem
ættu um sárt að binda í Sýrlandi og mættu á skrifstofu
UNICEF. Fjölskyldan 16
Lífrænar snyrtivörur virð-
ast vera að ryðja sér til
rúms víða. Mikil vit-
undarvakning hefur
orðið að undan-
förnu um áhrif ým-
issa aukaefna sem fyr-
irfinnast í venjulegum
snyrtivörum og geta ert húðina.
Tíska 42
Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson eru höfundar heimildarmynd-
arinnar Trend Beacons, sem sýnd verður í Bíó Paradís laugardaginn 14.
mars kl. 16 og sunnudaginn 15. mars kl. 20.