Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
U
pphafsorð blaða-
viðtala eru oft nýtt í
það að draga upp
mynd af aðstæðum,
lesa í fas viðmæl-
anda eða lýsa andrúmslofti í viðtali.
Að þessu sinni verður eitthvað lítið
um hástemmdar lýsingar, því blaða-
maður og tónlistarkonana Greta
Salóme Stefánsdóttir mæltu sér mót
á netinu!
Aðstæðurnar eru því heldur
hversdagslegar … blaðamaður situr
við tölvu líkt og svo oft áður. Spjall-
forritið á samskiptasíðunni Face-
book er opið og Greta Salóme byrj-
ar á að senda broskarl :) engin
leiðindi framundan, svo mikið er
víst.
Tónlistarkonan Greta Salóme
Stefánsdóttir er 28 ára en ferill
hennar spannar nú þegar áhuga-
verða blöndu af klassík og poppi.
Hún hefur spilað með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og tekið þátt í
klassískum flutningi t.d. með ungum
einleikurum á Norðurlöndum. Hún
samdi og flutti lagið Mundu eftir
mér sem valið var sem framlag Ís-
lands til Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í Bakú í Aser-
baídsjan 2012 og gaf út sína fyrstu
sólóplötu sama ár. Undanfarið hefur
hún verið á samningi hjá Disney og
haldið tónleika á skipi þeirra, Disn-
ey Dream.
Greta Salóme hefur nú gert nýjan
samning við Disney-samsteypuna
sem felur í sér enn frekari ævintýri
um heimshöfin. Nú vill Disney frá
meira frumsamið efni frá Gretu Sal-
óme.
„Disney hefur boðið mér svokall-
aðan „headliner“-samning á skipinu
Disney Magic, sem siglir frá Am-
eríku og um Evrópu. Ég verð með
tónleikasýningu í Walt Disney
Theater um borð þar sem ég flyt
mitt eigið efni og svo annað efni í
mínum útsetningum. Ég er að vinna
með leikstjórum frá Disney, bún-
ingahönnuðum, grafískum hönnuð-
um og dönsurum. Þetta er klukku-
tíma sýning þar sem öllu er til
skartað þegar kemur að ljósum,
dansi, grafík og fleiru,“ segir Greta
Salóme.
Tilboðið kom á óvart
Umfang sýningarinnar er talsvert
enda er Walt Disney Theater
stærsta leikhúsið í skipinu (já þau
eru fleiri en eitt og fleiri en tvö!). Í
teyminu sem kemur að undirbún-
ingi sýningarinnar eru um tíu
manns, fólk sem gerir ekkert annað
en að vinna að sýningu Gretu Sal-
óme. Við þann hóp bætist svo fjöldi
tæknimanna þegar sýningin hefst
auk þriggja dansara sem standa
með henni á sviðinu.
„Það er mikill heiður að vera boð-
ið þetta, sérstaklega þar sem Disn-
ey Magic-skipið býður upp á vinsæl-
ustu siglingar Disney og þeir leggja
mjög mikið í að öll skemmtun sé
fyrsta flokks. Það kom mér þess
vegna mikið á óvart þegar ég fékk
tilboðið. Þeir gáfu mér mjög mikið
listrænt frelsi líka og ég er að vinna
með leikstjóra sem heitir Tom Vazz-
ana og er sýningarstjóri hjá Walt
Disney World Creative Entertain-
ment.
Hann hefur yfirumsjón með tón-
leikunum og leikstýrir þeim en ég
kem að leikstjórninni líka og hef
gert frá upphafi. Þeir leggja mjög
mikið púður í tónleikana og láta mig
meðal annars fljúga í lok tónleik-
anna á meðan ég syng og spila og
varpa norðurljósunum á kjólinn
minn á meðan. Margt svona
skemmtilegt sem þeir geta gert
hérna,“ segir Greta Salóme um sýn-
inguna.
Norðurljósaþemað er að sjálf-
sögðu vísun í uppruna Gretu sjálfr-
ar, en flestir sem taka þátt í sýning-
unni eru Bandaríkjamenn.
Nýtt lag kemur út í mars
„En það sem er skemmtilegast við
þetta var að þau báðu mig að semja
sérstaklega fyrir tónleikana sem ég
er búin að gera og er að vinna með
Daða Birgissyni og Þorvaldi Bjarna
Þorvaldssyni að því,“ segir Greta
Salóme.
Aðstaðan á skipinu er öll fyrsta
flokks og tónlistarkonan hefur að
eigin sögn nægt svigrúm til tón-
smíða og góða aðstöðu, meðal ann-
ars sérstakt æfingaherbergi með
flygli.
Auk vinnunnar fyrir Disney hefur
Greta Salóme unnið að eigin tón-
smíðum og í mars kemur út nýtt
lag eftir hana sem heitir Í dag og er
unnið af Daga Birgissyni.
„Lagið er af nýrri plötu sem ég
er að vinna í núna. Það kveður við
nýjan tón hjá mér í þessu lagi sem
kannski má kalla smá „indie“. Ég
hef reyndar verið heppin með það
að fá að vinna við margar tegundir
tónlistar og tónlistarflutnings.
Ég hef aldrei litið á mig sem ein-
ungis hljóðfæraleikara eða einungis
söngkonu eða einungis lagahöfund
eða tónskáld. Ég lít á mig sem tón-
listarkonu. Menntun mín og bak-
grunnur hefur gert mér kleift að
starfa við klassískan tónlistarflutn-
ing á hljóðfærið mitt en hún hefur
líka gert mér kleift að hugsa út fyr-
ir kassann og semja mína eigin tón-
list og flytja hana. Þetta er allt
samtengt einhvern veginn. Laga-
smíðarnar mínar eru samt í aðal-
hlutverki núna en inn í þær fléttast
auðvitað að einhverju leyti bak-
grunnur minn.“
Disney vill þig –
hvenær kemstu?
En hvernig kom það til að þú byrj-
aðir að vinna fyrir Disney?
„Það var þannig að ég vann mikið
í því að koma efninu mínu á amer-
ískar umboðsskrifstofur í fyrra. Í
kjölfarið á því var efnið mitt sent í
rauninni fyrir hálfgerða tilviljun til
Disney og þar lenti það í réttum
höndum fyrir ennþá meiri tilviljun.
Þegar ég fékk email frá umboðs-
skrifstofunni minni stóð bara: „Þeir
hjá Disney eru mjög hrifnir af efn-
inu þínu og vilja fá þig til að koma
fram á Disney Dream-skipinu
þeirra, hvenær kemstu?“ Ég gerði
svo átta vikna samning við þá síð-
asta sumar og vann vel með þeim í
að þróa tónleikana mína um borð í
Disney Dream. Þeir framlengdu svo
samninginn minn og ég endaði á að
vera hjá þeim í tæpa fimm mánuði.
Sá tími var frábær og við náðum að
koma tónleikunum á þann stað sem
við vildum. Í hverri viku erum við
með 8.000 farþega – sem er eins og
nokkrar Eldborgir til að setja það í
samhengi,“ segir Greta Salóme. Þar
á hún að sjálfsögðu við Eldborgar-
salinn í Hörpu sem fullnýttur tekur
við um 1.800 manns í sæti.
Með Disney-sýningunum má því
segja að Greta Salóme fylli fjórar
Eldborgir vikulega og gott betur.
Greta Salóme er stödd um borð í
Disney Dream-skipinu á Bahama-
eyjum þegar viðtalið er tekið og
vinnur að því að undirbúa tón-
leikana á Disney Magic-skipinu.
„Það skiptir mjög miklu máli að
standa sig á hverjum tónleikum. Við
fengum svo jákvæð viðbrögð við
tónleikunum á Disney Dream að áð-
ur en ég fór heim eftir fyrsta samn-
inginn minn buðu þeir mér „head-
liner“-samninginn. Ég er búin að
vera úti núna á Disney Dream síðan
um miðjan janúar að undirbúa mig
og kem heim 20. mars í 10 daga og
fer svo út 1. apríl þar sem æfingar
byrja. Ég flýg til Grand Cayman
þar sem skipið tekur mig um borð,“
segir Greta Salóme.
Gott rými til að
semja um borð
Eins og nærri má geta eru dagar
tónlistarkonu á siglingu ekki eins og
hverjir aðrir.
„Daglegt líf á Disney-skipi hjá
mér er yfirleitt þannig að ég nýti
dagana í að vinna í stúdíóinu. Við
borðum svo á veitingastöðunum í
skipinu sem eru mjög margir þann-
ig að það er alltaf um nóg að velja.
Svo reyni ég nú að halda mér í
formi og æfi um borð. Á kvöldin er
ég svo annaðhvort með tónleikana
mína, stuttar „framkomur“ eða að
árita plöturnar mínar. Svo eftir
Óhrædd við
að stökkva á
tækifærin
TÓNLISTARKONAN GRETA SALÓME HEFUR GERT NÝJAN
SAMNING UM STÓRSÝNINGU MEÐ EIGIN TÓNLIST Á SKIPI
HJÁ DISNEY. HÚN HEFUR UNDANFARNA MÁNUÐI SIGLT
UM HÖFIN BLÁ OG LEIKIÐ EIGIN TÓNLIST OG TÓNLIST ÚR
DISNEY-MYNDUM EN MEÐ NÝJA SAMNINGNUM UM AÐ
VERÐA SVOKALLAÐUR „HEADLINER“ Í TÓNLISTARFLUTN-
INGI UM BORÐ VERÐUR SÝNINGIN EFTIR HENNAR HÖFÐI
OG MEIRA AÐ SEGJA NORÐURLJÓSIN KOMA VIÐ SÖGU.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Svipmynd