Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 12
Bragi Óskarsson dó ekki ráða-laus þótt hann væri of seinnað panta þar til gerða húfu
fyrir útskrift úr Verkmenntaskól-
anum á Akureyri. Hann smíðaði
sér eina slíka, enda völundur á ferð
og að ljúka námi í húsgagnasmíði.
„Það gekk ágætlega, en ég þurfti
reyndar að gera nokkrar tilraunir.“
Ári síðar kláraði hann húsasmíði
og gerði sér þá aðra húfu; þessa
með húsinu, sem hann skartar á
myndinni. „Það lá beinast við að
gera húfu með húsi fyrst ég var að
ljúka þessu námi og átti mótið frá
því árið áður. Ég á það til að fara
svolítið yfir strikið og gerði það
sennilega þarna …“ Hann segist
hafa stungið í stúf við útskriftina.
„Ég var eins og svarti sauðurinn.“
Braga þótti gaman að smíða í
grunnskólanum heima í Ólafsfirði á
sínum tíma, en það var ekki fyrr
en löngu seinni að hann fetaði
þessa braut. „Ég varð stúdent af
félagsfræðibraut frá VMA, áður en
ég áttaði mig á því að hægt væri
að læra húsgagnasmíði! Ég kláraði
svo tölvufræðibraut og íþrótta-
fræðibraut, fór eftir það í hús-
gagnasmíði og svo húsasmíði. Allt í
Verkmenntaskólanum.“ Hann lauk
meistaranámi í báðum smíðagrein-
unum frá sama skóla og fékk svo
kennsluréttindi í Háskóla Íslands.
„Ég var töluvert í fjarnámi með
vinnu og kunni því ágætlega,“ seg-
ir Bragi sem nú rekur eigið verk-
stæði og fæst aðallega við innrétt-
ingasmíð fyrir einstaklinga. Smíðar
nær eingöngu húsgögn fyrir eigin
fjölskyldu.
Lokaverkefni Braga í húsgagna-
smíðinni, árið 2009, má sjá á mynd-
unum að ofan. „Ég vildi búa til
sófaborð með eldstæði og endaði í
þessu flippi!“ segir hann og hlær.
Sló þar tvær flugur í einu höggi.
Langaði í arin en er illa við sótið.
„Ég hafði auðvitað séð ethanól-
stæði í vegg en vildi prófa að setja
svoleiðis í borðið. Það bæði hlýjar
og svo er mjög gott að geta grillað
sér sykurpúða!“
Borðið er úr hnotu, sem er í
uppáhaldi hjá Braga, og lirfusýkt-
um birkispón. Þegar borðfjölinni er
rennt í sundur kemur í ljós stein-
flís, Bragi lét vatnsskera í hana gat
þar sem loginn stendur upp úr og
þá lét hann sandblása mynd af
drekum í flísina og þeir eru spraut-
aðir í nokkrum litum.
Bragi hefur unnið sjálfstætt í
nokkur ár, sem fyrr segir, og
kveðst búa við lúxusvandamál.
„Það er brjálað að gera og hefur
verið frá fyrsta degi.“
AKUREYRI
Smíðaði eigin
útskriftarhúfu
ÓLAFSFIRÐINGURINN BRAGI ÓSKARSSON VISSI EKKI AÐ
HÆGT VÆRI AÐ LÆRA HÚSGAGNSMÍÐI FYRR EN AÐ
LOKNU ÝMSU ÖÐRU NÁMI Í VMA. HANN ER NÚ MEISTARI.
Lokaverkefni Braga í húsgagnasmíðinni. Forláta sófaborð …
Bragi Óskarsson með húfuna sem hann smíðaði fyrir útskrift úr húsgagna-
smíðinni frá Verkmenntaskólanum. Aðeins ein útfærsla kom til greina!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
… sem leynir á sér. Undir plötunni er steinflís sem í hafa verið sandblásnir drekar. Metanóltankur er þar undir og auðvelt að kveikja eld.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
* Ég á síður von á að önnur hver stúlka verði skírðKristján, þótt þessu verði breytt.Kristján Björnsson, formaður Prestafélags Íslands, óttast ekki þótt
ákvæði um karlmanns- og kvenmannsnöfn verði afnumin úr lögum.
UM ALLT LAND
GRINDAVÍK
Menningarvika Grindavíku
mars, verður með fjölþjóð
kemur fjölmenningarráð G
skipulagningu nokkurrra v
sinn. Einföld útgáfa af dags
pólsku, taílensku og ensku
fyrirtæki og stofnanir í Gr
íbúa Grindavíkur eru með VESTMANNAEYJAR
Þess verður minnst me
ár frá því konur100
Eyjum ætlar til dæ
Heimildavinn
FLJÓTSDALSHÉRAÐ
Staða forstöðumanns Menningarmiðstöðvar
Fljótsdalshéraðs hefur verið auglýst laus til umsóknar en
hlutverk miðstöðvarinnar er að bjóða upp á og efla lista-
og menningarstarf á Fljótsdalshéraði. Krafa er gerð um
nntg j , þ g gn arst órnunar ekkin o reyre nslu á sviði menni ynsla af menningarmálum alme
er mikilvæg og þekking á sviðslistum æskileg. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl
og stefnt er að því að nýr forstöðumaður hefji störf 1. júní.
DUR
lissandi eru
Kríubóli og he
bætur,arið er fram á úr
kórn. Hún te ur undir að aðg
ólanum sé ekki í nægilega góðu horfi, í síðustu
fjárhagsáætlun voru settir unir í að hefja vinnu við lagfæringar
þegar verið rætt við lands kitekt sem kemur á næstunni til að taka út svæðið
og í framhaldinu teikna up hugmyndir að breytingum.
AKUREYRI
Viking Heliskiing hefur fengið leyfi íþróttaráðs Akureyrar
til að bjóða upp á þyrluflug með skíðamenn um páskana.
fi m skilyr
ðarfjalls og umsagna verð
rðurlands og flugmála
fyrirtækið fljúga með skíðam
geti rennt sér niður, mun lengri leið en nú er