Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Side 42
Lavera eru lífrænt vottaðar vörur án aukaefna og
flestar eru þær einnig vegan-vottaðar, sem þýðir að
engar dýraafurðir eru í vörunni. Lavera var stofnað í
Þýskalandi fyrir 26 árum árum og er nú orðið stærsti
framleiðandi lífrænna húðvara í Evrópu. Lavera gefur
sig út fyrir gæði og gott verð.
Lavera hlaut verðlaun fyrir „grænasta
merkið 2012“ í Þýskalandi en Lavera
ræktar allar plöntur sjálft til þess að
tryggja gæði og lífræna framleiðslu.
Lavera-vörurnar eru fáanlegar í
Heilusuhúsinu, Lifandi markaði,
flestum Lyfjubúðum og fleiri stöðum. Rakakrem
2.600 kr.
Maskari
3.256 kr.
BB-krem
4.840 kr.
Lavera
Farði
3.572 kr.
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
Tíska
Maskari 5.990 kr.
Farði/
hyljari
6.990 kr.
Kinna- og
varalitur
6.990 kr.
Rose-Marie Swift hannaði Rms-snyrtivör-
urnar eftir að hafa starfað lengi og skapað
sér nafn í förðunarheiminum. Hún fann
fyrir óþægindum hvað varðar aukaefni í
snyrtivörum og ákvað því að hanna sína
eigin línu sem samanstóð af hágæða nátt-
úrlegum snyrtivörum án aukaefna. Rms-
vörurnar eru allar náttúrulegar og unnar í
ákveðinni „hrá“-stefnu. Vörurnar næra
húðina og eru uppfullar af ensímum, vít-
amínum og andoxunarefnum og algerlega
náttúrulegar.
Rms-vörurnar fást á vefversluninni freyja-
boutique.is.
Rms
U
ndanfarin ár hefur orðin ákveðin vitundarvakning í förðunarheiminum.
Lífrænar, aukaefnalausar snyrtivörur hafa notið vinsælda og virðist fólk
vera orðið meðvitaðra um áhrif aukaefna á húðina. Algeng tilbúin auka-
efni í snyrtivörum sem geta haft skaðlegar afleiðingar eru meðal annars
paraben, ceteareth, diethanolamine og diazolidinyl urea og svo lengi mætti telja.
Með því að kjósa lífrænt vottaðar snyrtivörur forðastu að líkaminn innbyrði þessi
skaðlegu efni en innihald snyrtivaranna sem við setjum á andlitið fer að sjálfsögðu
út í blóðrásina og því getur verið gott að velja lífrænt.
AFP
LÍFRÆNAR SNYRTIVÖRUR
Lífræn förðun
FLEST NOTUM VIÐ EITTHVAÐ AF SNYRTIVÖRUM DAGLEGA.
HVORT SEM ÞAÐ ER RAKAKREM OG SJAMPÓ EÐA FÖRÐUNAR-
VÖRUR. VIÐ ÞURFUM ÞVÍ OFT AÐ SPYRJA OKKUR HVAÐ VIÐ VILJ-
UM SETJA Á HÚÐINA OG KOMA LÍFRÆNAR SNYRTIVÖRUR ÁN
AUKAEFNA NÚ STERKAR INN Á MARKAÐINN.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Olía
3.820 kr.
Dásamleg, hrein, lífrænt
vottuð arganolía fyrir
andlit og hár sem vernd-
ar og græðir.
Primavera
ILIA-snyrtivörurnar eru allt að 85%
lífrænar. Umbúðirnar eru gerðar
úr endurunnu áli og einkenna
sterkir, endingargóðir og fallegir
litir þessa ómótstæðilegu og sí-
stækkandi snyrtivörulínu.
ILIA-vörurnar fást á vefversluninni
nola.is.
Maskari
4.900 kr.
Varagloss,
gypsy 4.799 kr.
Vara- og kinnalitur í
stifti 6.500kr.
ILIA
Maskari
2.050 kr.
Varalitur
2.140 kr.
Benecos
Benecos er tiltölulega nýtt
merki sem býður upp á líf-
rænar snyrtivörur á góðu
verði. Benecos er ákaflega
tískumiðað merki sem
býður upp á góðar lífrænt
og vegan-vottaðar vörur
sem eru ekki prófaðar á
dýrum og koma í ótal lit-
um og útfærslum.
Benecos-vörurnar fást
meðal annars í Heilsuhúsinu, Lif-
andi markaði, Systrasamlaginu,
Fjarðarkaupum, ýmsum apótek-
um og á fleiri stöðum.
Augnskuggapall-
etta 2.122 kr.
Púður
2.110 kr.BB-krem
2.500 kr.
Ljómi
7.490 kr.