Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.3. 2015
Menning
Fundum okkar Páls Rósinkranz ber sam-an í bílastæðahúsi Hörpu. Gjaldkassinner bilaður og við fyrir vikið lítið eitt
ráðvilltir. Þá heyrist kunnugleg rödd. „Sælir,
drengir!“ Björgvin Halldórsson er mættur á
svæðið. Eitt augnablik líður mér eins og ég
sé staddur í kvikmynd – með mafíuþema.
Þrír menn að hittast svo lítið ber á í bíla-
stæðahúsi og einn þeirra með barðastóran
hatt. Við rekjum raunir okkar fyrir Björgvini.
Hvar er næsti gjaldkassi? Því getur hann
ekki svarað en dregur farsímann mjúklega úr
pússi sínu. „Hafið þið ekki heyrt um leggja-
.is?“
Við höldum sem leið liggur upp á yfirborðið
enda þolir umræðuefnið alveg dagsljósið – og
rúmlega það. Senn slæst Bjarni Arason í hóp-
inn en þessir þrír gullbarkar verða í lok maí í
aðalhlutverkum í mikilli tónleikasýningu í
Hörpu – Elvis lifir. Tilefnið liggur í augum
upp, Kóngurinn sjálfur, Elvis Presley, hefði
orðið áttræður í ár. Hljómsveitarstjóri verður
Þórir Úlfarsson og félagar úr Gospelkór
Reykjavíkur leggja aðalsöngvurunum lið und-
ir stjórn Óskars Einarssonar.
Enginn Las
Vegas-búningur
„Við erum ekki að fara að herma eftir Elvis,“
segir Björgvin alvarlegur í bragði þegar við
höfum komið okkur fyrir. „Við ætlum ekki í
Las Vegas-búninginn.“
„Aldeilis ekki,“ bætir Bjarni við. „Það er
fullmannað í þeirri deild.“
„Markmiðið er að gera þetta af virðingu,
bæði fyrir manninum, Elvis Presley, og þess-
ari dásamlegu tónlist. Ekki má vanvirða Elv-
is, “ segir Björgvin.
Einmitt þess vegna ætla þremenningarnir
að syngja lögin með sínu nefi. „Við hintum í
karlinn en þykjumst ekki vera hann,“ segir
Páll.
Sungin verða lög frá öllum ferli Elvis og fé-
lagarnir viðurkenna að ekki verði auðvelt að
koma efnisskránni saman – af nægu sé að
taka.
„Fólk kemur ekki bara á svona tónleika til
að hlusta á góð lög, heldur ekki síður til að
upplifa líf sitt gegnum þau,“ segir Bjarni og
Björgvin tekur í sama streng. „Elvis sam-
einar kynslóðirnar og hvert lag á sér stað í
minni tónleikagesta. Þetta verður eins og að
fara á lifandi bíó.“
Það er engin tilviljun að Elvis er mikið
sunginn í jarðarförum og brúðkaupum. „Og
skilnuðum líka,“ laumar Bjarni að glettinn.
Hugmyndin er runnin undan rifjum tveggja
Eyjapeyja, Bjarna Ólafs Guðmundssonar og
Eiðs Arnarssonar, sem annast framkvæmd
tónleikanna. „Þetta er vel til fundið hjá þeim
félögum og gaman að gera þetta einmitt á
þessu afmælisári. Það er óvíst að maður eigi
eftir að gera þetta aftur,“ segir Björgvin.
Hann hefur unnið mikið með Bjarna og
Páli gegnum tíðina en þeir hafa aldrei staðið
þrír saman á sviði áður. „Það er virkilega
gaman að gera þetta þrír saman,“ segir
Björgvin.
Æðislegur söngvari
Hann hefur verið aðdáandi Elvis frá blautu
barnsbeini. „Eldri systkini mín bera ábyrgð á
því, þau voru alltaf að spila hann í partíum
meðan ég var pjakkur. Eins Little Richard,
Ricky Nelson, Fats Domino og þessa gaura.
Bítlarnir komu seinna. Ég hef alltaf verið
hrifinn af þessu gamla efni og maður hlustaði
mikið á það í Kananum. Elvis var æðislegur
söngvari og ein mesta stjarna sem heimurinn
hefur átt.“
Í tilviki Bjarna er málið einfalt, Elvis ber
ábyrgð á því að hann byrjaði að syngja.
Bjarni lærði ungur á trompet en þegar þeir
félagarnir í skólanum stofnuðu bílskúrs-
hljómsveit dugði brassið skammt og Bjarni
fékk sér gítar. Þeir rákust á nótnabókina
„Best of Elvis“ og eftir snarpt þinghald var
ákveðið að Bjarni myndi syngja. Þar með
voru örlög hans ráðin. Hann var fjórtán ára
og tveimur árum síðar vann hann Látúns-
barkakeppnina sem frægt er. Með þessa
djúpu og fullorðinslegu rödd, ekki ósvipaða
röddinni hans Elvis.
„Elvis hefur loðað við mig allar götur síðan.
Mér til mikillar ánægju. Elvis var bæði frá-
bær söngvari og túlkandi. Réttnefnd súper-
stjarna,“ segir Bjarni.
Páll kveðst hafa drukkið Elvis í sig með
móðurmjólkinni, sérstaklega gospelhlutann af
söngbók Kóngsins. „Ég er Hafnfirðingur eins
og Björgvin og afsprengi sömu menningar.
Elvis var auðvitað einstakur söngvari. Og svo
hef ég komið heim til hans,“ upplýsir hann.
„Ég líka,“ segir Bjarni og þeir Páll eru
sammála um að það sé mikil upplifun að
koma í Graceland.
Missti af Elvis 1975
Þar stendur Björgvin félögum sínum að baki.
„Þegar ég var með Gunna Þórðar í Holly-
wood 1975 bauðst okkur að sjá Elvis en þáð-
um það ekki. Á þeim árum vorum við hippar
og Elvis einfaldlega ekki okkar tebolli. Ég sé
mikið eftir þessu í dag.“
Björgvin mun þó bæta sér þetta upp í
haust en þá fer hann í leiðangur til Memphis,
Nashville og New Orleans ásamt góðu fólki.
Og mun að sjálfsögðu koma við í Graceland.
Aðspurðir segjast þremenningarnir ekki
kunna alla textana í söngbók Elvis en marga
þó. „Ég hef alla tíð verið með Elvis-lög á
mínu prógrammi,“ segir Björgvin og Bjarni
hefur haldið heilu tónleikana með lögum sem
Elvis söng.
„Elvis er alls staðar,“ segir Páll. „Jet Black
Joe spilaði meira að segja Elvis-lög á sínum
tíma á böllum. Hound Dog og Love Me Ten-
der. Frasi úr Are You Lonesome Tonight,
Bring the Curtain Down, hljómaði líka undir
hjá okkur. Ætli megi lögsækja okkur fyrir
það? Þá fría ég mig allri ábyrgð, Gunni
Bjarni átti hugmyndina.“
Hann hlær.
Alveg óþolandi!
Talið berst að því að mikið hafi verið um
heiðurstónleika á Íslandi undanfarin misseri.
„Já, þetta er alveg óþolandi. Það er nóg að
hafa eitt tribjút og þrjá söngvara fyrir þrjú
hundruð þúsund manna þjóð,“ segir Björgvin
sposkur á svip. „Ég rakst á Friðrik Ómar um
daginn, sem hefur verið duglegur að skipu-
leggja svona tónleika, og sagði honum að ég
ætlaði að gera Björgvin Halldórsson-tribjút í
haust og vera í því sjálfur.“
Þeir hlæja.
„Nei, að öllu gríni slepptu þá er þetta
straumur sem rennur í bransanum og ekkert
nema gott um það að segja. Elvis er dáinn,
Freddie Mercury er dáinn og Bítlarnir hætt-
ir. Svona heiðurstónleikar eru næsti bær við
og hvers vegna ætti fólk ekki að fá að njóta
tónlistar þessara miklu listamanna á sviði?“
spyr Björgvin.
Hann segir skýringuna líka liggja í minnk-
andi plötusölu. Fyrir vikið sé lifandi músík að
rísa upp eins og Fönix úr öskunni og muni
skilja eftir sig nýja byrjun í bransanum.
„Og svo endurspegla þessir heiðurs-
tónleikar auðvitað smekk manna,“ segir Páll.
Geispaði Paul golunni?
Hann skiptir skyndilega um umræðuefni. „Nú
segir Ringo að Paul hafi dáið 1966 og sigur-
vegari í einhverri look alike-keppni tekið við
og reynst betri en Paul sjálfur.“
„Var þetta í Herald Tribune?“ spyr Björg-
vin.
„Veit það ekki,“ segir Páll, „en þetta er úti
um allt á samskiptamiðlum þessa dagana.“
Engum við borðið þykir þetta trúlegt en
allir eru á hinn bóginn sammála um að endi-
lega þurfi að flytja Paul McCartney inn til
landsins meðan hann er ennþá í fullu fjöri.
„Lengi lifir í gömlum glæðum,“ segir Páll.
„Ég sá Kris Kristofferson á tónleikum nýlega
og hann er ennþá þrælgóður, 78 ára gamall.
Einn með gítarinn. Hann kveðst ekki vera
besti söngvarinn, ekki heldur besti gítarleik-
arinn en „ef þið eruð komin til að hlusta á
sögur eruð þið á réttum stað“. Kris Krist-
offersson er mikill sögumaður.“
„Og ágætis leikari. Betri en Elvis,“ bætir
Bjarni við.
Hvorki honum né Páli þykja kvikmyndir
Kóngsins eldast vel en Björgvin segir þeim
ekki alls varnað. „Sumt af þessu er ágætt en
þetta var á köflum ansi mikil færibanda-
vinna.“
Einmitt það.
Miðasala á tónleikana 30. maí er hafin og
ekki er annað á söngvurunum að heyra en
þeir séu opnir fyrir viðbótartónleikum verði
eftir því óskað. „Vilji fólk meira fær það
meira,“ segir Björgvin.
Og Bjarni botnar samtalið: „Það stendur
ekki á okkur!“
Fremur en endranær.
Páll Rósinkranz, Björgvin Halldórsson og Bjarni Arason bera allir mikla virðingu fyrir Elvis Presley.
Morgunblaðið/Eggert
MINNAST ELVIS PRESLEY Á ÁTTRÆÐISAFMÆLINU
Eins og að fara á lifandi bíó!
ELVIS LIFIR! ER YFIRSKRIFT TÓNLEIKASÝNINGAR SEM FRAM FER Í HÖRPU 30. MAÍ NÆSTKOMANDI. ÞAR KOMA ÞRÍR AF ÁSTSÆLUSTU SÖNGVURUM ÞESS-
ARAR ÞJÓÐAR SAMAN OG SYNGJA LÖG SEM KENND ERU VIÐ KÓNGINN SJÁLFAN, ELVIS PRESLEY, EN ÁTTATÍU ÁR ER NÚ LIÐIN FRÁ FÆÐINGU HANS.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON, BJARNI ARASON OG PÁLL RÓSINKRANZ HAFA EITT ÖÐRU FREMUR AÐ LEIÐARLJÓSI: VIRÐINGU FYRIR MIKLUM LISTAMANNI.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is