Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 4

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 4
4 Mikil uppbygging á sér stað á framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Eru nú um 2000 nemar skráðir í framhaldsnám á meistarastigi við skólann (Háskóli Íslands, 2009a). Árið 1993 var fyrst tekið að bjóða upp á framhaldsnám í bókasafns- og upplýsingafræði en það ár hóf greinin að bjóða upp á rannsóknatengt meistaranám eins og flestar aðrar greinar innan félagsvísindadeildar. Nám á meistarastigi í bókasafns- og upplýsingafræði hefur tekið umtalsverðum breytingum undanfarin ár og hefur námsframboðið þróast og aukist verulega. Í Kennsluskrá Háskóla Íslands fyrir framhaldsnám fyrir háskólaárið 2009-2010 kemur fram að boðið er upp á þrjár námsleiðir í bókasafns- og upplýsingafræði: diplómanám, MLIS nám (Master of Library and Information Science), og rannsóknatengt meistaranám (Háskóli Íslands, 2009b). Ætlunin er að fjalla hér um þessar námsleiðir. Diplómanám Diplómanám hófst á haustmisseri 2008 en það er viðbótarnám í bókasafns- og upplýsingafræði til 30e sem gert er ráð fyrir að hægt sé að ljúka á einu háskólaári. Námið er sérstaklega hugsað sem styttri námsleið fyrir fólk sem hefur ef til vill ekki áhuga á að ljúka MA prófi en vill samt bæta við sig í námi. Í boði eru eftirtaldar áherslulínur: stjórnun og stefnumótun, upplýsinga- og skjalastjórn og rafræn samskipti hjá skipulags heildum, og upplýsingafræði og þekkingarmiðlun. Inntökuskilyrði í námið er BA próf eða sambærilegt próf með lágmarkseinkunn 7,25. Nemar sem ljúka diplómanámi hljóta ekki námsgráðu en þeir fá diplómablað um að náminu hafi verið lokið. MLIS nám (Master of Library and Information Science) MLIS nám (Master of Library and Information Science) hófst haustið 2004 og var við skipulagningu þess meðal annars tekið mið af alþjóðlegum viðmiðunarreglum (Anne Clyde, 2004). MLIS nám er tveggja ára meistaranám (120e) sem er ætlað fyrir nema sem hafa lokið grunnnámi í annarri námsgrein en bókasafns- og upplýsingafræði. Að öðru leyti eru inntökuskilyrði þau sömu og almennt er gerð krafa um innan Háskólans, eða að meðaleinkunn sé ekki lægri en 7,25. Þrjú atriði vógu einkum þungt þegar tekin var ákvörðun um að bjóða upp á MLIS nám í bókasafns- og upplýsingafræði. Í fyrsta lagi var það stefna Háskóla Íslands um að auka nám á framhaldsstigi en greinin vildi taka þátt í þeirri þróun sem var í gangi þar sem aðrar háskólagreinar voru í vaxandi mæli að móta og setja upp nám á framhaldsstigi. Í öðru lagi hafði verið nokkuð um það að nemar sem höfðu lokið grunnnámi í annarri grein en bókasafns- og upplýsingafræði innrituðust í námið. Þessum nemum, sem hafði farið heldur fjölgandi, hafði boðist að taka svokallað starfsréttindanám sem var tveggja ára nám á BA stigi (Anne Clyde, 2003). MLIS náminu var því ætlað að leysa starfsréttindanámið af hólmi og bæta jafnframt stöðu nemanna því með því bauðst þeim að ljúka námi á framhaldsstigi í stað grunnnáms. Í þriðja lagi lágu fjárhagslegar ástæður til grundvallar en með útskrift framhaldsnema hafa greinar fengið fjárveitingu sem eru mun hærri en með útskrift BA nema. Nemar sem innritast í MLIS nám hafa engan grunn í grein- inni, öfugt við þá sem innritast í rannsóknatengt MA nám. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að í gegnum námið öðlist þeir styrka undirstöðu í grunnatriðum greinarinnar sem sé ekki síðri en sú þekking sem nemar sem ljúka BA námi í greininni tileinka sér. Þetta gerir það einnig að verkum að mögulegt er að samkenna MLIS námið að hluta til með BA náminu en að sjálfsögðu eru gerðar auknar kröfur til MLIS nemanna varðandi lesefni, próf og verkefnavinnu, auk þess sem þeir sækja fleiri tíma í flestum námskeiðum. Þetta fyrirkomulag þekkist jafnframt víða, bæði í öðrum námsgreinum við Háskóla Íslands og einnig í námi í bókasafns- og upplýsingafræði við háskóla erlendis. Skipulag MLIS námsins hefur þróast og tekið töluverðum breytingum Framhaldsnám á meistarastigi í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands Dr. Ágústa Pálsdóttir, dósent í bókasafns- og upplýsingafræði, félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.