Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 38

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 38
38 Um bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands Þórhildur S. Sigurðardóttir Sameining Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands voru sameinaðir í eina stofnun þann 1. júlí 2008. Samtímis var deildum innan HÍ skipt á fimm fræðasvið: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Menntavísindasvið hýsir nokkurn veginn sömu námsleiðir og áður voru í Kennaraháskóla Íslands að viðbættri m.a. uppeldis- og menntunarfræði sem flyst yfir á Menntavísinda- svið í haust en var áður innan Félagsvísindadeildar HÍ. Sviðið nýtir sama húsnæði og KHÍ áður, við Stakkahlíð, í Skipholti og á Laugarvatni. Þegar farið var að undirbúa sameiningu HÍ og KHÍ voru stofnaðar verkefnishópar um ýmsa þætti sameiningarinnar. Þeirra á meðal var verkefnishópur um upplýsingatækni, safnþjónustu og kennsluþróun og var Kristín Indriðadóttir, þá framkvæmdastjóri Menntasmiðju KHÍ, formaður hópsins. Hópurinn skilaði skýrslu og tillögum í október 2007 og lagði m.a. til að þegar í stað verði ráðist í að greina þarfir sameinaðs háskóla á sviði upplýsingatækni, safnþjónustu og kennsluþróun og að á grundvelli þeirrar greiningar og núverandi stöðu móti HÍ sér stefnu til framtíðar. Hópurinn lagði einnig fram tillögur til skemmri tíma í 17 liðum. Til dæmis var lagt til að starfseiningarnar sem fjallað var um í skýrslunni störfuðu áfram með sama sniði og áður þar til stefnumótunarvinnu væri lokið. Þær ættu jafnframt að leitast við að finna leiðir og lausnir til að samþætta starfsemi sína og til að þjóna nemendum og starfsfólki hins sameinaða háskóla. Verkefnisstjórn sameiningar fjallaði um tillögur hópsins og lagði áherslu á að sú öfluga stoðþjónusta sem veitt var í KHÍ, einkum á vettvangi Menntasmiðju, yrði ekki skert við sameininguna heldur fengi að þróast í takt við áherslur nýs Menntavísindasviðs. Raunar taldi verkefnisstjórnin fyrirkomulag þjónustunnar í Menntasmiðju vera til eftirbreytni fyrir fræðasvið hins sameinaða háskóla. Í sameiningarferlinu lögðu nemendur og kennarar KHÍ einmitt mikla áherslu á að halda í stoðþjónustuna í Stakkahlíðinni, ekki síst í þjónustu Menntasmiðju, þ.e. safns og smiðju, enda ljóst að ekki yrði flutt strax vestur á Mela í nágrenni við þjónustustofnanir HÍ. Svo fór að ákveðið var að bókasafnið yrði, a.m.k. fyrst um sinn, rekið áfram á Menntavísindasviði með svipuðu sniði og verið hefur og er það nú með sérfjárveitingu innan sviðsins. Nokkrar breytingar hafa hins vegar orðið á verkefnum og þjónustu í smiðju (sem nú er kölluð Menntasmiðja). Bókasafn Menntavísindasviðs HÍ Bókasafn Menntavísindasviðs HÍ er sem áður sérfræðisafn á sviði kennslu, uppeldis, umönnunar og þjálfunar og á einkum að þjóna starfsliði og nemendum sviðsins en er jafnframt, sem eitt af söfnum HÍ, opið öllum starfsmönnum og nemendum skólans sem og öðrum sem eiga erindi við efniskostinn. Og sem áður er stefnan að bókasafnið og starfsmenn þess sé ávirkur bakhjarl sem styður með margvíslegum hætti við rannsóknir og kennslu á sviðinu. Í bókasafninu er sérstakt kennslugagnasafn sem m.a. hýsir sýningu á öllu námsefni frá Námsgagnastofnun og bókasafnið er einnig miðstöð samstarfs verkefnastjóra vettvangsnáms við heimaskólana sem eru samstarfsskólar Menntavísindasviðs. Kunn eru markmið Háskóla Íslands að komast í hóp hundrað bestu háskóla heimsins. Til að ná þeim markmiðum þarf Háskólinn öfluga stoðþjónustu, m.a. bókasafn eða bókasöfn sem hafa á að skipa kröftugu og meðvituðu starfsfólki sem með sinni sérfræðiþekkingu greiðir leið kennara og fræðimanna að rannsóknum og upplýsingum alls staðar að. Forseti Menntavísindasviðs hefur t.d. lagt sérstaka áherslu á að starfsmenn bókasafnsins finni og kynni norrænar rannsóknir á sviði uppeldis- og menntamála. Brýnt

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.