Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 20

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 20
20 bókasafnið skapandi hátt“ (bls. 9). Miðað við Pragyfirlýsinguna (2003) vantar þarna áherslu á hinn mikilsverða þátt að meta upplýsingar. Án öflugrar kennslu í upplýsingalæsi verður ekki séð að ofangreind markmið náist. Í maí 2008 var sett fram ný stefna Ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið sem tekur til áranna 2008-2012 og ber heitið Netríkið Ísland. Þar er megináherslan lögð á aðgengi að upplýsingum og að alla opinbera þjónustu verði hægt að nálgast á Netinu. Áhersla er lögð á upplýsingatækni en ekki er rætt um upplýsingalæsi. Ætla má að menntamálaráðu- neytið gefi í framhaldinu út nýtt stefnumótunarrit og æskilegt væri að sjá þar stefnumörkun í eflingu upplýsingalæsis meðal landsmanna. Hér að ofan hefur þróun og áherslubreytingar í stefnu- mörkun ríkisstjórnarinnar í upplýsingamálum verið rakin og í ljós kemur að stefnan verður sífellt styttri og ágripskenndari. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatæknina sem slíka en einnig kemur fram góður skilningur á að hún sé verkfæri sem nýta má til að ná fram auknum lífsgæðum. Æskilegt væri að leggja meiri áherslu á efnisinnihald, upplýsingalæsi og upplýsingaleiðir og vonandi verður svo gert í framtíðinni, til dæmis til þess að landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum, sem aðgengilegur er á vefnum hvar.is, nýtist þjóðinni sem best. Endurspeglun stefnu ríkisstjórnarinnar í upplýsingamálum í skólakerfinu Samkvæmt Pragyfirlýsingunni (2003) ætti upplýsingalæsi „að vera órofa hluti af menntun“ (bls. 16). Forvitnilegt er að skoða hvernig stefna Ríkisstjórnar Íslands endurspeglast í lögum um grunnskóla og framhaldsskóla, bæði í fyrri lögum (nr. 66/1995 og nr. 80/1996) og í nýjum lögum (nr. 91/2008 og nr. 92/2008) með gildistöku haustið 2008. Athygli vekur að í nýju lögunum hafa verið felldar út greinar um skólasöfn sem var að finna í fyrri lögum (54. gr. í grunnskólalögunum og 36. gr. í framhaldsskólalögunum) og ekkert er heldur fjallað um upplýsingaþjónustu við nemendur og verður það að teljast mikil afturför. Samstarfs- hópur bókasafnsfræðinga í framhaldsskólum (2008) hvatti í athugasemdum sínum við framhaldsskólafrumvarpið ein- dregið til þess að kjarna lagagreinarinnar um bókasöfnin væri haldið inni í nýju lögunum. Það var ekki tekið til greina, sem er áhyggjuefni, sérstaklega í ljósi þess að við nýjustu framhaldsskólana hafa ekki verið stofnuð öflug bókasöfn. Í 24. gr. nýju grunnskólalaganna (nr. 911 2008) segir reyndar að í aðalnámskrá skuli meðal annars leggja áherslu á: „margvíslegar leiðir við öflun þekkingar með notkun tæknimiðla, upplýsingatækni og safna og heimildavinnu“ (k-liður). Félag fagfólks á skólasöfnum (2008-9) hefur lýst yfir mikilli óánægju með að ákvæði um skólasöfn hafi verið fellt út í nýju grunnskólalögunum og telur að ekkert í starfi grunnskóla kalli á að ákvæðið sé fellt niður heldur hafi mikilvægi skólasafna aukist. Siggerður Ólöf Sigurðardóttir (2008-9) tekur í sama streng og telur þetta ekki viðunandi stöðu og stefni í að það „metnaðarfulla starf sem víða fer fram á skólasöfnum landsins verði að engu og ef til vill hverfi skólasöfn alveg ef ekki verið brugðist við þessum breytingum.“ Við endurskoðun laga um grunn- og framhaldsskóla þurfa skólasöfnin að öðlast fyrri stöðu og tilvist þeirra að vera staðfest í lögum sem sérstakur þáttur í starfsemi skólanna. Nú á tímum samdráttar og aukins sparnaðar í menntakerfinu er sérstaklega mikilvægt að söfnin í grunn- og framhaldsskólum eigi sér styrka lagastoð þannig að sú mikilvæga starfsemi sem þar fer fram standi á traustum grunni. Fróðlegt er að skoða þær áherslur á upplýsingalæsi sem koma fram í aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla (Menntamálaráðuneytið, 2006 og 2004) og hvort samsvaranir eru á milli stefnu ríkisstjórnarinnar í upplýsingamálum og áherslna í námskrám grunn- og framhaldsskóla í upp- lýsingalæsi. Lausleg athugun sýnir að hugtakið upp- lýsinga læsi er ekki að finna í almenna hluta námskránna. Í Aðalnámskrá grunnskóla – Upplýsinga og tæknimennt frá 2007 er upplýsingalæsi hins vegar hluti af námsmarkmiðum. Í samnefndri námskrá fyrir framhaldsskólann frá 1999 er í námskeiðinu UTN 103 Notkun upplýsinga og tölva í námi komið inn á upplýsingalæsi (bls. 28) en ekki taka allir framhaldsskólanemendur þann áfanga. Við ofangreinda athugun sýnist að skerpa þurfi á skilgreiningu á upplýsingalæsi og tryggja að allir nemendur fái kennslu í upplýsingalæsi miðað við þroska og getu. Einnig væri áhugavert að skoða skólanámskrá skólanna með tilliti til áherslna þeirra á menntun í upplýsingalæsi. Þá er og áhugavert að skoða nánar menntun í háskólum hér á landi á sviði upplýsingalæsis. Nánari umfjöllun og skoðun á ofangreindum atriðum verður að bíða betri tíma. Lokaorð Með tilkomu upplýsingatækninnar og Netsins hefur orðið gífurleg bylting í aðgengi að upplýsingum. Efni, einkum skýrslur og stjórnarprent, sem áður var aðeins til á prentuðu formi og safnaði gjarnan ryki í hillum ráðuneyta og stofnana, er nú til á rafrænu formi og aðgengilegt á Netinu. Möguleikarnir á að finna ýmis konar efni á Netinu, bæði í opnum og lokuðum aðgangi, eru í reynd byltingarkenndir. Hugsunarhátturinn hefur líka breyst til muna. Nú á dögum er það mörgum fyrirtækjum, stofnunum og ráðuneytum metnaðarmál að halda úti vönduðum vefjum með miklu magni af áreiðanlegum upplýsingum. Einn kostur þeirra er að aðgengi er ekki háð opnunartíma eða álagi á starfsmenn heldur er Netið sívakandi og ávallt til þjónustu reiðubúið. Með tilkomu upplýsingalaganna nr. 50/1996 hefur sýnileiki upplýsinga og gagnsæi enn frekar verið styrkt. Reyndar virðist á stundum tregða hjá opinberum aðilum að draga fram í dagsljósið upplýsingar sem þeir vilja hafa í skugganum en þeir verða ítrekað að láta undan og ganga fjölmiðlar oft fram fyrir skjöldu við að nálgast slíkar upplýsingar. Allt þetta stuðlar að opnara þjóðfélagi, aðhaldi og betri stjórnsýslu. Í ljósi þess hve gífurlega mikið magn upplýsinga er að finna á Netinu er mikilvægt að sem flestir einstaklingar

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.