Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 25

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 25
25 Inngangur Íslenskt menningarsamfélag hefur tekið miklum stakka- skiptum frá fyrri hluta 20. aldar þegar lítið var um opinbera styrki til lista (Björn Th. Björnsson, 1964) og formlegt listnám varð að sækja til annarra landa. Forráðamenn þjóðarinnar töldu jafnvel óæskilegt að listamenn helguðu sig listum óskipt ef marka má minningargrein Jóns Þorlákssonar (18. júlí 1924) fjármálaráðherra um Þórarinn B. Þorláksson listmálara. En þar telur Jón það að Þórarinn málaði einungis í frístundum frá daglegum störfum, „hafi átt sinn þátt í því að halda listgáfu hans fullkomlega fölskvalausri til síðustu stundar“. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og listgreinar hafa nú hlotið viðurkenningu sem starfsvettvangur. Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar í menntamálum og ýmsir möguleikar opnast þeim sem leggja vilja fyrir sig listir. Enn fleiri framhaldsskólar bjóða nú upp á listnáms- og hönnunarbrautir en áður og hægt er að stunda háskólanám í listum hér heima. Með hliðsjón af þessu má álykta sem svo að áhugi og eftirspurn eftir listupplýsingum fari vaxandi og mikilvægi sérhæfðra bókasafna á sviði lista muni aukast. Íslensk listbókasöfn eru flest lítil og ekki mjög áberandi út á við. Þau eru öll hluti annarra og stærri skipulagsheilda. Sum þeirra eru sérhæfð á ákveðnu sviði, önnur einungis hluti af öðrum bókasöfnum eins og Þjóðarbókhlöðu og stærri almenningssöfnum. Umfjöllunin sem hér fer á eftir er byggð á MPA verkefni mínu í opinberri stjórnsýslu (2007) þar sem megintilgangur rannsóknar var að kanna hvort stefnumótun íslenskra listbókasafna endurspegli á einhvern hátt opinbera stefnu í menningarmálum. Rannsókn Þegar bera á saman opinbera stefnu í menningarmálum og stefnur listbókasafna liggur beinast við að kanna hvaða eiginleikar eru mest áberandi og hvaða aðferðir eða áherslur liggja að baki stefnumótun. Í rannsókninni er þetta gert með því að skoða stefnu stjórnvalda í menningarmálum, bakgrunn hennar og helstu einkenni, út frá sögulegu samhengi, ákvarðanatöku og hvernig fjárhagslegum stuðningi við listir og menningu er háttað. Þá er mótun og framkvæmd stefnu listbókasafna könnuð og leitað svara við því hvaða þættir hafa einkum áhrif á stefnumótun þeirra. Í því skyni voru þrjú listbókasöfn athuguð sérstaklega, bókasöfn Listaháskóla Íslands, Listasafns Íslands og Myndlistaskólans í Reykjavík, en þau eru helstu bókasöfnin á þessu sviði hér á landi. Við rannsóknina var stuðst við eigindlegar aðferðir þar sem rætt var við forstöðumenn listbókasafna og fulltrúa úr menntamálaráðuneyti. Niðurstöður voru skoðaðar í ljósi kenninga um stefnu og stefnumótun og þá einkum með áherslu á stefnumótun með tilliti til forskrifaðrar og sjálfsprottinnar nálgunar (Mintzberg, Ahlstrand og Lampel, 1998; Mintzberg og Waters, 1985). Með forskrifaðri nálgun er átt við formlega stefnumótun og stefnu sem hefur nákvæmar útlistanir. Sjálfsprottin nálgun á við stefnu sem verður til án þess að vera fyrirfram mótuð, oft vegna utanaðkomandi áhrifa og er opin, sveigjanleg og móttækileg, án þess þó að fela í sér stjórnleysi. Með hliðsjón af þessu hafa þeir Mintzberg og félagar skilgreint mismunandi stefnur og kenningaskóla sem m.a. voru hafðar til hliðsjónar við greiningu á niðurstöðum. Menningarstefnan var auk þess skoðuð út frá kenningum um ákvarðanatöku í stjórnsýslu og hugmyndum um opinberan stuðning við listir. 1 Þá var starfsandi listbókasafna skoðaður með tilliti til kenninga um stofnanamenningu. 2 Menningarstefna Hugtakið menning getur haft víðtæka merkingu. Menningu Menningarstefna og listbókasöfn Gunnhildur Björnsdóttir Einkum smáskrefakenning Lindbloms (1979) og kenningar Kingdons (2003) um ákvarðanatöku og menningarstefnulíkan Cartrands og 1. McCaugheys (1989). Má þar nefna Cameron og Quinn (1999), Kaarst-Brown o.fl. (2004).2.

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.