Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 39

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 39
39 bókasafnið þykir einnig að tryggja að íslenskt efni á sviðinu sem einungis er gefið út á vef sé skráð og aðgengilegt og deilum við þeim áhuga með fleirum eins og fram kom á notendaráðstefnu Aleflis í byrjun maí. Rannsóknir krefjast aðgangs að upplýsingum hvort heldur eru upplýsingar um alþjóðlegar rannsóknarniðurstöður og kenningasmíði eða um stefnur og strauma í rannsóknum. Fræðimenn þurfa stöðugt að lesa sér til, skanna og kynna sér alls konar upplýsingaveitur, bækur, greinar og efni á Netinu til að halda þekkingu sinni við. Þetta er afskaplega tímafrekt og flókið og fræðimaðurinn þarf að finna leið til að halda utan um gríðarmikið efni. Þarna eiga starfsmenn bókasafnanna að koma til skjalanna með sína sérþekkingu og aðstoða fræðimennina við að finna bestu leiðirnar bæði að efninu sem máli skiptir og til að halda utan um heimildirnar. Svipað má segja um námsmenn, þeir þurfa að afla sér upplýsinga og vinna með margs konar heimildir og gera grein fyrir þeim. Notendafræðsla bókasafnsins miðast að því að gera nemendur læsa á upplýsingar og kenna þeim að leita, finna og meta réttu upplýsingarnar. Notendafræðsla fyrir nemendur í fyrrihlutanámi tengist tilteknum námskeiðum og er í samvinnu við kennara og á framhaldsleiðum eru það ýmist kennarar, nemendur eða starfsmenn bókasafnsins sem hafa frumkvæðið að kynningum. Á Menntavísindasviði hefur verið lagt til að koma á fót ritveri eða ritsmiðju sem hefur að markmiði að efla ritmenningu og samhæfa kennslu og leiðsögn um ritun og verður kallað eftir fulltrúa bókasafnsins í undirbúningshóp. Annað brýnt verkefni er að kanna hvers konar þjónusta kæmi doktorsnemum helst til góða og að færa stuðning við þennan hóp í fastara form. Sama gildir um allmargar rannsóknarstofur sem hafa verið stofnaðar á undanförnum árum og halda nú áfram á Menntavísindasviði. Samvinna Í starfsemi bókasafnsins hefur ævinlega verið lögð áhersla á góða samvinnu við önnur bókasöfn, þá ekki síst við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. T.d. er löng hefð fyrir samráði milli safnanna tveggja um áskriftir að tímaritum á sviði uppeldis- og menntamála. Í aðdraganda sameiningarinnar voru haldnir nokkrir samráðsfundir fulltrúa safnanna sem nú þjóna starfsmönnum og nemendum Háskóla Íslands, þ.e. Lbs-Hbs, bókasafns Landspítala og safns Menntasmiðju KHÍ, (sem nú er bókasafn Menntavísindasviðs), um samræmingu á ýmsum þáttum í þjónustunni og hagræðingu og var það í samræmi við tillögur verkefnishópsins sem lagði áherslu á að efla samvinnu safnanna til hagsbóta fyrir notendur. Til dæmis má nefna örfá atriði: Þessi söfn eru ekki í sömu stjórnunareiningu í Gegni • og var kannað hvort stefna ætti að því að sameina stjórnunareiningarnar. Á daginn kom að það yrði mjög dýrt og mikil vinna og var horfið frá því. Þess í stað voru ýmis atriði samræmd, s.s. gjaldskrá, og ákveðið hvernig nemendur og kennarar HÍ yrðu skráðir inn í lánþegaskrár og réttindi þeirra samræmd í söfnunum. Dagleg sendilsþjónusta á milli húsa Háskólans og Landsbókasafns flýtir fyrir í þjónustunni. Miklar auðlindir upplýsinga opnuðust nemendum og • kennurum Menntavísindasviðs með sameiningunni og tengingu við HÍ-netið og er stóraukinn aðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum mikil lyftistöng fyrir kennslu og rannsóknir á Menntavísindasviði. Rafrænar séráskriftir Menntavísindasviðs eru nú sömuleiðis aðgengilegar öllum á HÍ-netinu. Með tengingunni við HÍ-netið mátti spara eina áskrift að OECD-gagnasafninu og sömuleiðis gafst þá færi á að samnýta áskrift að rafrænu útgáfunni af Dewey- flokkunarkerfinu. Jafnframt tilboðum á bókasafni Menntavísindasviðs um • kynningar og fræðslu er athygli starfsmanna vakin á tilboðum um námskeið og fræðslu í Landsbókasafni. Skemman, rafræn geymsla fyrir lokaverkefni (www.• skemman.is) sem upphaflega var samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Kennaraháskólans, var í haust flutt til Landsbókasafns. Hún á hér eftir að hýsa öll lokaverkefni frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Í Skemmunni er einnig hægt að hýsa birt verk starfsmanna háskólanna og verður þess vonandi ekki langt að bíða að verk margra þeirra sjáist þar. Enn sem komið er eru einungis fáein verk starfsmanna Háskólans á Akureyri aðgengileg í Skemmuni. Áætlanir um að byggja yfir starfsemi Menntavísindasviðs á Melunum, á lóð Háskóla Íslands, hafa verið kynntar en óvíst er hvenær sú bygging rís. Ljóst þykir að bókasafnið verður ekki flutt neitt til á meðan mest öll kennslan á Menntavísindasviði fer fram í núverandi húsnæði á Rauðarárholti og verður verkefni starfsmanna safnsins að vinna að vexti og viðgangi sviðsins með ráðum og dáð en jafnframt að vinna með starfsmönnum annarra bókasafna sem þjóna HÍ að þeim verkefnum sem til hagsbóta horfa fyrir heildina. Lokaorð Í Idékatalog, fokus på forskningsbi bliotekerne sem Bibliotekar- forbundet og Danmarks forskningsbiblioteksforening gáfu út árið 2004 (www.bf.dk/files/dk/PDF/FagetogBibliotekaren/ F o r s k n i n g s b i b l i o t e ke r/ I d % C 3% A9 k a t a l o g _ B F - D F_ November_2004.pdf) er bent á ýmsar leiðir fyrir þarlend rannsóknar- og sérfræðisöfn til að vekja athygli á sér í samfélagi stofnunar eða skóla. Mér sýnast þær vel geta verið leiðarljós fyrir okkur líka: Söfnin skulu einbeita sér að því að vera sýnileg og láta til • sín taka á opinberum vettvangi. Það gera þau m.a. með virkri upplýsingastefnu sem þau beina bæði inn á við, milli safna, út á við til notenda eða líklegra notenda, til þeirra sem taka ákvarðanir og til þeirra sem hafa áhrif og geta mótað skoðanir fólks. Kynna skal vel innan stofnunar allar sýningar, viðburði • eða skemmtanir á vegum bókasafnsins eða starfsmanna þess og gæta þess að láta fjölmiðla líka vita.

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.