Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 24
24
bókasafnið
býður upp á jákvæða reynslu og hún getur líka lengt líf
okkar.“
Þessa þátttöku í samfélagsnetinu, sem eflir lýðræðisvit-
undina og hvetur til virkni, kallar dr. med. dósent Markku T.
Hyyppa við Nasjonalt folkehelseinstitutt í Finnlandi félagsleg
verðmæti. Bókasafnið er ein af þeim fáu stofnunum þar sem
fólk hittist með gagnkvæmri virðingu og tilliti. Því er það
heilsusamlegur staður fyrir fólk, samkvæmt athugunum
hans, sem staðið hafa yfir um skeið.
Heimildir
NN, kona, samtal.
Inga Gísladóttir, Hananú félagi í 25 ár, samtal.
Markku T. Hyyppa ofl. Leisure participation predicts survival: a
population-based study in Finland. Health Promotion International
Vol.21 No.1, 7. des. 2005.
Selja Kivi, frilansjournalist. Besök ofte ditt lokale bibliotek og lev lenger.
Bibliotekforum 2006 (7), s. 12-13.
Keith Oatley. The science of fiction. New Scientist Vol.198 Issue 2662,
28. júní 2008, s. 42-43
Abstract
One lives longer by visiting the public library.
Reading is a kind of sport. We must all learn to read; and then
practise reading for the rest of our lives. Scientific research
has shown that libraries and reading are likely to extend
life expectancy considerably more than any other physical
exercise. The brain is a body organ that needs work-out and
constant stimulation - and reading is the best activity for
this.
According to Keith Oatley, writing in the New Scientist,
fiction improves one’s IQ. The public library is therefore a
kind of health centre.
PAPAR á ÍSLANDI
eitt litið kenningarljóð um söguskoðun
Í óðagoti, ótta og köldu veðri
tóku þeir saman föggur sínar á ný
og héldu á haf út. Drúidar langt
að komnir á flótta. Á stöðugum flótta
með visku heimsins
undan ruddafengnum brautryðjendum
ríkisendurskoðunar - frá Noregi.
Aldrei friður til fræðimennsku
né fróðleiksleitar;
svo nærri hinum eina og sanna
sannleika sannleikans,
þrátt fyrir kalsann á þessum köldu
eyjum. Naumlega höfðu þeir náð
landi. Fyrsta sumarið kapphlaup
að þurrka bækur og handrit
og byggja hús mót veðri og vindum...
og nú, enn á ný að taka saman, búa um,
og leggja á flótta og finna stað
til að ljúka leit í friði og ró...
Á fyrsta degi siglingar frá Papey
rakst skipið á oddhvassa enda
öndvegissúlna;
„hverjum dettur í hug að láta
slíkar útskornar gersemar fljóta
í hafi fyrir veðri og vindum?“
Gat á skinnsíðu bátsins, fyllist af sjó,
ó, bækur, bækur,
hrópar stýrimaður um leið og bátnum hvolfir,
og sekkur með manni og mús.
Og bókum heimsins mestu fræða.
Í Alexandríu forðum brann
heimsins mesta bókasafn;
við Ísland sökk vísir að því næsta!
Hrafn Andrés Harðarson
Jarðúð?
Það er bannað með boðum
að bana mönnum.
Hundar eru heilög dýr
með hámenningarþjóðum
eins og hvalir.
En jörðin, móðir okkar allra
ærnar eru hennar kvalir:
Hún er stungin, grafin, troðin, skafin,
lamin og barin, brennd og sviðin
því við-
erum svo iðin!-
Hrafn Andrés Harðarson