Bókasafnið


Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 10

Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 10
10 Flokkunarhugtakið er tekið til athugunar og bókfræðileg flokkunarkerfi skoðuð í sögulegu samhengi út frá straumum og stefnum í þekkingarfræði á Vesturlöndum. Lýst er breyti- legri hugmyndafræði og viðhorfum til flokkunar á hverjum tíma. Loks er fjallað er um nýjar hugmyndir og þörf fyrir sveigjanleg flokkunarkerfi í rafrænu umhverfi. Flokkunarhugtakið Á hverri öld eða hverjum tíma kemur fram ný heimsmynd og nýjar hugmyndir um flokkun mannlegrar þekkingar. Heimsmyndin og hugmyndafræðin er ekki sú sama í hinum vestræna heimi sem hér er til umfjöllunar og í öðrum heims- hlutum. Fyrir tíma ritlistar í hverju samfélagi geymdu menn þekkingu í minni sínu, og til að geta kallað hana fram hafa menn þurft að flokka hana þar niður á ákveðinn hátt. Hægt er að gera sér grein fyrir þessu með því að athuga kvæði og sögur og annan fróðleik sem upphaflega hefur verið í munnlegri geymd en síðan verið festur á blað. Færð hafa verið rök fyrir því að kvæði, sögur og frásagnir í munnlegri geymd séu aðferðir til að miðla þekkingu áfram til komandi kynslóða. Þessi þekkingarmiðlun er að miklu leyti bundin við ákveðnar persónur og hlutverk þeirra í þjóðfélagsmyndinni (Anderssen, Jack, 2003). Meðal gömlu heimspekinganna var flokkun mikilvægt hugtak í þekkingarfræði. Aristóteles, lærisveinn Platons og faðir frumspekinnar, taldi það hlutverk heimspekinnar að flokka hugtök, sem var forsenda rökfræðikenninga hans. Hann taldi að flokka yrði frá hinu einstaka til hins almenna og hann skipaði hugtökum í stigveldi (Ólafur Jens Pétursson, 1989, s. 50-61). Flokkun er aðferð til að skipa þekkingu í kerfi. Hægt er að tala um þrenns konar flokkun þekkingar, þ.e. í fyrsta lagi einfalda tegundaflokkun sem allir nota í daglegu lífi, í öðru lagi þekkingarfræðilega flokkun, sem er millistig milli einfaldrar og vísindalegrar flokkunar. Í þriðja lagi er svo hin vísindalega flokkun, sem notuð er til að skipa vísindalegri þekkingu í kerfi (Hjørland, 1997). Einnig má tala um heimspekilega flokkun annarsvegar og bókfræðilega flokkun hins vegar (Graarup, 2003). Langridge (1976) greinir fjögur lögmál við flokkun þekkingar, þ.e. hugmyndafræðilega flokkun, félagslega flokkun, flokkun eftir altækum hugmyndum um skiptingu í vísindagreinar og flokkun eftir eðli þekkingar fremur en markmiðum eða viðfangsefnum menntunar. Flokkunarkerfi byggjast á því að tengja hugtök. Önnur mikilvæg atriði við flokkun eru reynsla og sérþekking (Graarup, 2003). Flokkun og flokkunarkerfi eru í hugmyndafræðilegu samhengi við félagsleg tjáskipti, heimsmynd og menningu á hverjum tíma. Tjáskiptatækni í ljósi sögunnar, þ.e. munnleg geymd, skrift, prentlist og tölvutækni hefur haft mikil áhrif á flokkun og flokkunarkerfi (Andersen, Jack, 2003). Hin bókfræðilega flokkun er viðfangsefni bókasafns- og upplýsingafræðinnar. Hún er undirskipuð og háð þeirri vísindalegu eða heimspekilegu. Hún er ekki flokkun fyrirbæra heldur rita eða gagna sem fjalla um þau. Bókfræðilegum flokkunarkerfum er yfirleitt skipt fyrst á rökrænan hátt í fræðasvið eða efnissvið en síðan í tegundir eða undirsvið sem tengjast innbyrðis. Flokkunarkerfið er fyrirfram ákveðið kerfi þar sem þekkingu er skipað niður í höfuðflokka, venjulega eftir fræðasviðum og innan þeirra eftir skyldleika eða tengslum. Þekkingarsviðið er þannig hlutað niður frá hinu stærra til hins smærra. Notandi flokkunarkerfis getur valið um fyrirfram ákveðna möguleika. Mikilvægur eiginleiki sem flokkunarkerfi hafa fram yfir efnisorðakerfi er að geta lýst hugtökum á almennan hátt með því að nota til þess yfirflokka. Hugmyndafræði flokkunar – straumar og stefnur Ólöf Benediktsdóttir

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.