Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.09.2009, Qupperneq 27

Bókasafnið - 01.09.2009, Qupperneq 27
27 bókasafnið öll mismunandi áherslur þó þau starfi á sama fræðasviði. Eitt þeirra styður háskólamenntun, annað miðar þjónustu við framhaldsskólanema og námskeiðsfólk á öllum aldri og það þriðja starfar samkvæmt lögum með það að markmiði að vera rannsóknarbókasafn fyrir íslenska myndlist. Öll þessi söfn skrá nú safnkost sinn í Gegni, samskrá íslenskra bókasafna og notfæra sér landsaðgang að gagnasöfnum. Það er reyndar viðtekin skoðun meðal starfsmanna að landsaðgangurinn komi listbókasöfnum að takmörkuðum notum því þar vanti sérhæfð gagnasöfn á sviði lista, að frátöldu Grove alfræðisafninu. Háskólasafnið er eina safnið sem hefur bolmagn til þess að kaupa sérhæfð gagnasöfn á sviði myndlistar og hönnunar, en eins og Collins (2003) bendir á er það ekkert einsdæmi að slíkt sé helst á færi listbókasafna innan háskóla. Viðskiptavinir safnanna eru listfræðingar, starfandi listamenn, nemendur og listáhugafólk. Þeir eiga það sameiginlegt að leggja mikla áherslu á myndrænar heimildir og hafa oft á tíðum síður áhuga á rafrænu efni eins og rafrænum tímaritum. Það sem skilur notendur listbókasafna frá notendum annarra safna er einmitt sú sérstaða að rannsóknir í listum eru rannsóknir á myndefni (Freitag, 1982; Lucker, 2003). Rannsókn sem gerð var á bókasafnsnotkun myndlistarnema í Minnesota leiddi t.d. í ljós að listnemendur notuðu bókasöfn mikið til að leita hugmynda og útlit og sjónræn upplifun skipti þá verulegu máli (Frank, 1999). Notendum er því afar mikilvægt að fá tækifæri til að skoða og fletta án þess að leita að einhverju ákveðnu heldur til að auðga hugarflugið og taka þá oft prentuð gögn fram yfir rafræn. Rafræn tímarit koma því ekki í stað prentaðra enn sem komið er, heldur eru viðbót við safnkostinn. Stofnanamenning eða staðblær er einnig mikilvægur þáttur þegar kemur að stefnumótun og er einkum talin skipta máli varðandi stefnur með sjálfsprottna nálgun (Mintzberg o.fl., 1998). Stofnanamenning getur verið margslungin og flókin. Með hliðsjón af kenningum Cameron og Quinns (1999) má greina menningu listbókasafna með því að líta á sérkenni stofnunar, stjórnunarfyrirkomulag og hvað það er sem einkennir hópinn eða færir honum samkennd. Einnig má taka mið af starfsvenjum, því eins og van den Berg og Wilderom (2004) benda á, skipta þær ekki síður máli. Þá telur Schneider (1987) að menning geti dregið dám af því að ákveðin tegund starfsfólks veljist á tiltekna vinnustaði. Menning listbókasafns dregur dám af því tungumáli sem tíðkast innan bókasafnsfræðinnar og því sem einkennir fræða- og starfssvið viðskiptavina. Starfsemin byggist á þeirri bókasafnsmenningu sem leggur áherslu á ákveðin gildi eins og góða þjónustu og að viðhafa nákvæm vinnubrögð. Listbókasöfn þurfa einnig að samsama sig þeim gildum sem móðurstofnun stendur fyrir og geta átt við starfsemi listastofnana, skapandi hugsun og listrænt frelsi. Á söfnunum má merkja ákveðinn anda sem tengist því að starfsmenn stofnananna hafa svipaðan bakgrunn og birtist m.a. í frumkvæði og einingu. Jafningjalýðræði með samráð að leiðarljósi einkennir starfsandann innan listbókasafna. Samstarf milli safnanna, innan þeirra og við sérfræðinga skiptir miklu máli. Allir starfsmennirnir sem rætt var við upplifa sjálfstæði í vinnubrögðum og sveigjanleika, telja starfsandann góðan og lýsa umhverfinu sem bæði lifandi og skemmtilegu. Áhersla á samvinnu, samráð og sveigjanleika bendir til að það sem Cameron og Quinn (1999) kalla heimilislega menningu (e. clan oriented) sé einkennandi fyrir söfnin. Þessar niðurstöður eru í samræmi við rannsókn sem gerð var á nokkrum tegundum bókasafna samkvæmt líkani Camerons og Quinns og leiddi í ljós að sveigjanleiki er yfirleitt einkennandi fyrir lítil háskóla- og stofnanabókasöfn (Kaarst- Brown, Nicholson, von Dran og Stanton, 2004). Þar segir að traust og opin samskipti séu mikilvæg meðal starfsmanna. Flest lítil bókasöfn veiti starfsmönnum sínum mikið svigrúm og treysti þar með á þekkingu og álit þeirra við úrlausn verkefna. Þessum bókasöfnum henti best fljótandi skipulag (e. adhocracy) eða heimilislegt, þar sem fljótandi skipulag einkennist af frumkvöðlahugmyndum, áhættu og nýsköpun og heimilislegt af gagnkvæmri ráðgjöf, þjálfun og þátttöku. Berrio (2003) kemst að þeirri niðurstöðu að til að verða skilvirk og árangursrík lærdómsstofnun3 þurfi stofnun að þróa menningu meira í átt að heimilislegu skipulagi. Þau gildi sem heimilisleg menning byggir á styðji betur nýjungar og áhættu í umhverfi sem annars er nokkuð stöðugt. Kaarst-Brown og félagar (2004) telja þetta ýta undir þá hugmynd að bókasöfn þurfi ekki endilega að vera markaðsmiðuð til að mæta kröfum samtímans. Heimilisleg menning nægi. Samanburður Það er ekki ætlun mín að greina hér nákvæmlega frá því hvernig niðurstöður rannsóknarinnar samrýmast sérhæfðum stefnum og kenningaskólum Mintzbergs og félaga (Mintzberg o.fl., 1998; Mintzberg og Waters, 1985). Í stuttu máli er þó rétt að benda á að stefnur listbókasafna og menningarstefna stjórnvalda eiga sér einkum hliðstæður í því sem þeir félagar kalla regnhlífarstefnu (e. umbrella strategy) þar sem yfirstjórn leggur línurnar, ferlistefnu (e. process strategy) sem gerir ráð fyrir að margir geti haft áhrif á stefnumótun og samkomulagsstefnu (e. consensus strategy) sem byggir á samráði. Stefna stjórnvalda í menningarmálum gerir ráð fyrir valddreifingu til stofnana í anda reglu hæfilegrar fjarlægðar. Fagaðilum hefur verið tryggð aðkoma í stjórnun allra þeirra listastofnana sem fyrrnefnd bókasöfn tilheyra og sjálfræði starfsmanna safnanna bendir til að starfsemi þeirra sé einnig í þeim anda. Með lærdómsstofnun er átt við stofnun sem setur lærdóm í forgang.3.

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.