Bókasafnið - 01.09.2009, Blaðsíða 40
40
bókasafnið
Styrkja ber sambandið við námsmenn og fræðimenn t.d. •
með því hvetja til samvinnu um ritgerðir, lokaverkefni
eða rannsóknir sem byggjast á stöðu eða hlutverki
bókasafnsins í stofnuninni eða innan stofnunarinnar.
Styrkja ber sambandið við þá sem hafa ákvörðunar-•
valdið, þ.e. yfirstjórn stofnunar /skóla eða pólitísk
stjórnvöld.
Bókasöfnin eða starfsmenn þeirra ættu að taka þátt •
í opinberum menningarviðburðum eða íþróttum
sem starfsmenn viðkomandi bókasafns og vekja
þannig jákvæða athygli á því. Nefna má til dæmis
vinnustaðakeppni eins og Hjólað í vinnuna og
Lífshlaupið, almenningsíþróttir af ýmsu tagi svo sem
götuhlaup eða skíðagöngu.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér sögu bókasafns KHÍ og
síðar Menntasmiðju KHÍ má benda á greinar í Bókasafninu, 27.
árg. 2003, í Fregnum 31. árg., 3. tbl. 2006 og í Aldarspegli. Rv. :
KHÍ, 2008.
Abstract
The Library of the School of Education
at the University of Iceland
The University of Iceland and the Iceland University of
Education merged on July 1st 2008. The latter became the
main part of the School of Education at the University of
Iceland. Most of its activities are located in the buildings of
the former Iceland University of Education. It was decided
that the library would still be run as the library at the School
of Education as one of the libraries of the University of Iceland,
for the time being at least. The library is open to all employees
and students at the University of Iceland as well as other
people that need access to the collection and the service of
the library. The library will operate in good cooperation with
the National and University Library of Iceland, as well as the
Library of Landspitali - The National and University Hospital.
Bókabíllinn
Hjón á áttræðisaldri komu að Bústaðaútibúi Borgarbókasafns. Maðurinn beið í bílnum, en þar sem bókabíllinn
stóð á hlaðinu ákvað konan að kíkja í hann og spyrja um ákveðna bók. Henni var vísað í safnið, en það sá
eiginmaðurinn ekki. Stuttu seinna ók bókabíllinn af stað og eiginmaðurinn elti. Alveg upp í Grafarvog. Þar kom sá
gamli upp í bókabílinn, mjög æstur: „Hvar er konan mín, hvar hafið þið hana?“ Hann var róaður og sagt að konan
væri í Bústaðasafni. En þá kom annað vandamál, maðurinn hafði aldrei í Grafarvog komið, og þurfti að lóðsa hann
út úr hverfinu. Þetta þótti lýsa miklum kærleik og hetjudáð, að elta konuna í alókunnugt hverfi, til að bjarga henni.
Eftir stóð konan, dálítið undrandi á tröppum Bústaðasafns og skildi ekki hvað hefði orðið af eiginmanninum.
Og urðu fagnaðarfundir þegar hann kom aftur.
Úr sögum af Borgarbókasafni Reykjavíkur