Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 5

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 5
5 bókasafnið 35. árg. 2011 Hugmyndin um ritver sem hluta af starfsemi skóla breidd- ist snemma út um öll Bandaríkin, bæði á framhaldsskóla- og háskólastigi, og á tíunda áratug síðustu aldar nam hún land á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu, en hefur kannski fyrst komist á flug eftir þúsaldamótin. Nú starfa alþjóðleg samtök ritvera (IWCA) í mörgum undirdeildum eftir heims- álfum, svæðum og löndum. Evrópsku samtökunum (EWCA) hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu árin og sama má segja um evrópsk samtök háskólakennara sem kenna fræðileg skrif (EATAW). Útgáfa bóka og tímarita á þessu sviði hefur farið vaxandi. Við á Menntavísindasviði gátum sótt í digran sjóð reynslu og þekkingar um hvernig staðið skyldi að stofnun ritvers. Höf- undur þessarar greinar fór í kynnisferð til háskólans í Mary- land í Bandaríkjunum og aflaði sér gagna úr ýmsum áttum en skorinorðustu leiðbeiningarnar um stofnun nýs ritvers komu frá Lottu Rienecker, stofnanda og forstöðukonu ritversins við Kaupmannahafnarháskóla sem stofnað var árið 2002. Leið- beiningar hennar taka mið af stofnanagerð og hugsunarhætti sem við þekkjum í okkar menningu og því var nærtækt að fylgja þeim að svo miklu leyti sem þær áttu við hugmyndir okkar og aðstæður. Að öðru leyti var tekið mið af hálfrar aldar reynslu Bandaríkjamanna og annarra sem sett hafa ritver á laggirnar og svo af sérstöðu okkar, fámenni og takmörkuðum fjárráðum. Þegar ritveri er valinn staður er mikilvægt að gera upp við sig hvers konar hlutverki það á að gegna. Möguleikarnir eru að minnsta kosti þrír. • Í fyrsta lagi getur ritverið verið einhvers konar angi af íslenskudeild skólans, mannað íslenskukennurum sem fyrst og fremst hugsa um að stúdentar skrifi rétt og gott mál. Þegar fyrstu ritverin sáu dagsins ljós í bandarískum háskólum var algengt að þau tengdust enskudeildum skólanna og enn í dag eru mjög mörg þeirra (líklega flest, nákvæma tölu hef ég ekki) tengd starfsemi enskudeildar. Á stórri háskólalóð er ritverið þá gjarnan staðsett í námunda við enskudeildina. Þessi tenging er hluti þeirrar arfleifðar að móðurmálskenn- arar hvers lands hafa séð um ritgerðarkennsluna en víða hefur þessi arfur haft þær afleiðingar að tengslin við aðrar deildir og fræðasvið verða ekki sem skyldi. • Í öðru lagi getur ritverið verið hluti af stoðþjónustu skólans, líkt og til dæmis þjónusta námsráðgjafa eða hjúkrunarfræðinga. Í samræmi við þá hugmynd er ritverið staðsett á sama gangi eða í sömu byggingu og námsráðgjöfin. Þessi tenging hefur það í för með sér að stúdentar líta á ritverið sem „úrræði“ fyrir þá sem eiga í sértækum örðugleikum og þorri stúdenta telur slíka þjónustu ekki eiga erindi við sig. • Í þriðja og síðasta lagi getur ritverið verið hluti af almennri þjónustu skólans við stúdenta og kennara, líkt og bókasafn eða tölvuþjónusta, þjónusta sem allir þurfa á að halda, án þess endilega að eiga í sérstökum vandræðum. Viðtölin fara fram við skrifborð forstöðumanns, fyrir opnum tjöldum, ef svo má segja. Fyrir framan skrifborðið er eitt af mörgum vinnusvæðum stúdenta á bókasafninu með nokkrum borðum og nemendur að störfum, en lágvær kliður í lofti af samræðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.