Bókasafnið - 01.06.2011, Side 13
13
bókasafnið 35. árg. 2011
Peter Morville og IA Institute stóðu saman að keppni í byrjun
ársins 2010 þar sem fólk var beðið um útskýra upplýsingaarki-
tektúr. Veitt voru peningaverðlaun fyrir bestu útskýringuna á
upplýsingaarkitektúr, besta myndbandið sem lýsti heitinu og
bestu skýringarmyndina. Þegar myndböndin og skýringar-
myndirnar eru skoðuð sést að skilgreining á upplýsingaarki-
tektúr er enn sú sama og Morville og Rosenfeld (2006) nota.
Fyrstu verðlaun fyrir bestu útskýringuna fékk myndband þar
sem risaeðlumamma er í smá erfi ðleikum með að útskýra fyrir
unganum sínum hvað upplýsingaarkitektar gera. Í verðlaun-
unum fyrir besta myndbandið er upplýsingaarkitektum líkt
við Hróa Hött þar sem þeir „stela“ eða fá lánaðar hugmyndir
og verkfæri annarra starfstétta til að gera vefsetur auðveld-
ari í notkun fyrir notendur. Tveir fengu verðlaun fyrir bestu
skýringarmyndina, önnur útskýrir að upplýsingaarkitektar
tengi fólkið við innihald vefsetra og hin skýringarmyndin
sýnir hvernig fi mm ára sonur keppandans lýsir á myndrænan
hátt hvað pabbi hans gerir. Vinningshafarnir voru kynntir 21.
febrúar 2010 og má sjá verk þeirra á vefsetri The Information
Architecture Institute (2010, 21. febrúar).
Hvort þetta sé rétt aðferð til að hressa upp á starfsheitið
skal ósagt látið en margar skemmtilegar tillögur bárust í
keppnina. Á Íslandi hefur starfsheitið upplýsingaarkitekt ekki
náð fótfestu á meðal bókasafns- og upplýsingafræðinga þó
nokkrir starfi við það. Í könnun sem Óskar Þór Þráinsson gerði
árið 2008 á starfsvettvangi bókasafns- og upplýsingafræðinga
kom fram að tæp 17% vinna við kerfi svinnu (viðhald, hönnun
eða þróun rafrænna upplýsinga) og tæp 25% vinna við vef-
stjórnun (umsjón eða ritstjórn vefsíðu) (bls. 32).
Nothæfi
Í allri umfj öllun um hvernig fólk notar Internetið er oftast vísað
í orðið notendur. Hér er farið stuttlega yfi r hvað felst í orða-
notkuninni.
Mýtan um meðalnotanda er í raun og veru röng, allir
vefnotendur eru sérstakir og öll vefnotkun er sérkenni hvers
og eins (Krug, 2006). Það sem skiptir máli er að fi nna út hver
markhópur viðkomandi vefsíðu er og
fá notendur úr honum til að taka þátt í
notendaprófunum (Thurow og Musica,
2009). Það er ekkert sem getur komið í
stað notendaprófana (Krug, 2006). Fjallað
verður nánar um notendaprófanir síðar.
Nielsen og Loranger (2006) skipta not-
endum í tvo hópa eftir því hversu lengi
fólk hefur notað Internetið. Þau miða við
hvað fólk er að gera á netinu, til dæmis
netspjall, setja inn nýjan vafra, hvort það
noti bókamerkingar og fl eira. Þeir spyrja
hvort fólk hafi búið til sína eigin vefsíðu,
hvort það geti sjálft lagað vandamál tengt
tölvunni og hversu mikið notendur eltast
við allt það nýjasta á netinu. Notendur
eru þó alltaf allir sem nota netið og þegar
vísað er í notendur þá er nauðsynlegt að
hafa það í huga þegar vefsíður eru hannaðar.
Samkvæmt ODLIS (e. Online Dictionary for Library and
Information Science) er nothæfi útskýrt sem:
„Hversu vel óvönum notanda líður við að nota tölvu-
viðmót á skilvirkan og árangursríkan hátt. Það fyrsta sem
huga þarf að við hönnun með notagildi að leiðarljósi er
skýrt samræmt leiðakerfi með innihaldi“ (Reitz, 2007,
Usability).
Nielsen og Loranger útskýra nothæfi á eftirfarandi hátt:
„Nothæfi er nokkurskonar gæðastimpill á hversu auð-
velt er að nota eitthvað. Nánar tiltekið hversu fl jótt fólk
getur lært það, hversu árangursríkt það er, hversu auðvelt
er að muna það, hversu laust við villur það er og hversu vel
notandinn naut þess að nota það. Ef fólk vill ekki eða getur
ekki notað þá möguleika sem í boði eru, gætu þeir alveg
eins ekki verið til“ (Nielsen and Loranger, 2006, bls. xvi).
Upplýsingahegðun notenda
Þegar notkun leitarvéla er skoðuð kemur í ljós að notendur
nota vefi nn ekki alltaf eins og búast má við. Margir slá inn vef-
slóðir í leitarvélar í stað þess að slá það inn í vafrann. Spyrja má
hvers vegna það sé? Svarið er að þetta virkar og er það oftast
nóg fyrir fl esta þó að þetta sé lengri leið. Þetta á við um alla
hópa og oft eru ótrúleg göt í þekkingu sérfræðinga rétt eins
og nýgræðinga. Þetta snýst um fólk sem þarf að komast að
settu marki og það skiptir það ekki máli hvernig það fer að því
(Krug, 2006).
En er þetta þá ekki bara allt í lagi? Ekki samkvæmt Krug
(2006) sem vill meina að þó að fólk nái oft að bjarga sér með
þessum hætti þá er það ekkert sérlega árangursríkt fyrir not-
andann sjálfan þegar upp er staðið. Þess vegna er mikilvægt
að notendur skilji vefsetrin sem þeir vafra á því það eykur
líkurnar á að þeir fi nni það sem þeir leita að. Þeir skilja einnig
betur hvað er hægt að gera á viðkomandi vefsetri án þess að
Mynd 2 – Þróun starfa