Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 32
32
bókasafnið 35. árg. 2011
ennfremur hægt að velja hluti sem tilheyra ákveðinni
sögu, t.d. hluti sem tilheyra sögunni um Rauðhettu og
úlfinn, hluti sem tengjast ákveðnu þema eða hluti af
handahófi.6
Eins og lesa má í þessari grein hafa sögupokar margþætta
notkunarmöguleika og auðvelt er að búa þá til án mikils til-
kostnaðar. Bókasafn Reykjanesbæjar er stolt af því að geta
boðið upp á þá tegund samverustunda sem sögupokarnir
gefa möguleika á.
þar sem handbrúður og hlutir sem fara vel í hendi eru gjarnan
notaðir. Með þessu móti má auka gæðasamverustundir fjöl-
skyldunnar og njóta skemmtilegrar upplifunar við iðju sem
kostar ekki neitt.
Nýting hérlendis sem erlendis
Það var breski kennarinn og rithöfundurinn Neil Griffiths sem
átti hugmyndina að sögupokunum (e. storysacks) en honum
fannst að hægt væri að gera lestrarupplifun meira lifandi og
áhugaverðari fyrir börn og foreldra. Honum leist ekki á hvað
foreldrar og kennarar lögðu of lítinn metnaði í að segja sögu.3
Á undanförnum árum hefur notkun sögupoka í leikskól-
um, skólum og bókasöfnum aukist til muna og það tíðkast
í Bretlandi að sveitarfélög láni út sögupoka, t.d. til mennta-
stofnana, og leikskólar og bókasöfn til almennings.4 Sögu-
pokar hafa verið notaðir af bókasöfnum til að ná til félagslega
einangraðra samfélagshópa, svo sem í fátækrahverfum og
fólks af ólíkum uppruna, sem er einangrað vegna tungumála-
örðugleika.5
Einnig hefur tíðkast að nota sögupoka í sérkennslu til að
efla lestrarfærni og auka áhuga á sögum og lestri og ekki
síður í kennslu tvítyngdra barna. Það er meðal annars gert hjá
Reykjavíkurborg og í verkefni frá Huldu Karen Daníelsdóttur,
„Við kunnum að kenna íslensku“, eru sögupokar nefndir undir
góðum ráðum fyrir þá sem kenna íslensku sem annað mál:
Notið sögupoka með hjálparhlutum. Útbúið
sögupoka með heimilishlutum, verkfærum, fötum,
snyrtivörum, fígúrum eða hverju öðru sem hægt er að
nota til að styðja við sögur og bækur. Í sögupokann er
Mæðginin Svala Björk Reynisdóttir og Tómas Tómasson voru með þeim fyrstu að nota sögupokana á Bókasafni Reykjanesbæjar.
Hér bregða þau á leik með Rauðhettu og úlfinn.
Í sögupokanum með Örkinni hans Nóa er grænt og blátt efni úr
saumakassa starfsmanna fyrir land og haf, plastörk og plaststigi sem
fannst á markaði sem seldi notaðan fatnað og dót, Ficher Price tré sem
kom úr dótasafni sona starfsmanns og hluti af leikmunum úr stórri
tréörk sem innihélt Nóa og frú og par af nokkrum dýrategundum og
var til á safninu.
3. Af http://www.nationalliteracytrust.net/Pubs/griffiths2.html. Sótt 22. nóvember 2010.
4. Af http://www.cambridgeshire.gov.uk/leisure/libraries/children/storysacks.htm. Sótt 22. nóvember 2010.
5. Af http://www.nationalliteracytrust.net/socialinclusion/earlyyears/storysackspractice.html. Sótt 22. nóvember 2010.
6. Af http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-2332/4197_view-74. Sótt 19. nóvember 2010.