Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Side 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Side 3
Hlutafjárútboð Eikar fasteignafélags Eik fasteignafélag hf. birtir lýsingu í tengslum við almennt hlutafjárútboð og umsókn um að öll útgefin hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland Eik fasteignafélag hf. birti lýsingu þann 8. apríl 2015, í tengslum við almennt útboð á hlutum í félaginu og ósk stjórnar félagsins um að öll útgefin hlutabréf í Eik fasteignafélagi hf. verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Heildarfjöldi útgefinna hluta í Eik fasteignafélagi hf. nemur 3.465.180.435. Eik fasteignafélag hf. á 8.800.000 eigin hluti. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir í félaginu eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Auðkenni hlutanna hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. er EIK og er óskað eftir sama auðkenni í kerfum Nasdaq Iceland. ISIN númer þeirra er IS0000020709. Arion banki hyggst selja 14,0% hlutafjár í félaginu með almennu útboði 17.–20. apríl Arion banki hf. hyggst selja þegar útgefna hluti í Eik fasteignafélagi hf. í almennu útboði sem fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingar- bankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með. Markmið seljenda með útboðinu er annars vegar að gera Eik fasteignafélagi hf. kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði og hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Stærð útboðsins nemur 485.125.261 hlutum eða 14,0% hlutafjár í félaginu og nemur söluandvirði þeirra að lágmarki 3.032 milljónum króna. Á vef umsjónaraðila útboðsins, arionbanki.is, verður tekið við áskriftum frá og með föstudeginum 17. apríl 2015 klukkan 10.00 til og með mánudagsins 20. apríl 2015 klukkan 16.00. Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verði birtar opinberlega 21. apríl 2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland opinberlega ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 27. apríl 2015 og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 29. apríl 2015. Tilboðsbók A Tilboðsbók B Hver áskrift að andvirði 100.000–10.000.000 kr. Áskrift að andvirði yfir 10.000.000 kr. Verðbil 6,25–6,95kr./hlut Lágmarksverð 6,25 kr./hlut Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu hlutabréfa og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestingabankasviðs Arion banka eða hjá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í síma 444 7000 og tölvupóstfanginu EIKIPO@arionbanki.is. Nánari upplýsingar Útgefandi lýsingar hlutabréfa er Eik fasteignafélag hf., kennitala 590902-3730, Álfheimum 74, 104 Reykjavík. Fyrirtækjaráð- gjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hlutabréf félagsins tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar um félagið og skilmála almenna útboðsins má finna í lýsingu Eikar fasteignafélags hf. Lýsingin er dagsett 8. apríl 2015, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, www.eik.is/fjarfestar. Lýsinguna má nálgast hjá félaginu næstu 12 mánuði. Lýsinguna má einnig nálgast á vefsíðu Arion banka hf., umsjónaraðila almenna útboðsins, á vefsíðunni www.arionbanki.is. Frá 10. apríl 2015 má jafnframt nálgast innbundin eintök lýsingarinnar hjá Eik fasteignafélagi hf. á skrifstofu félagsins í Álfheimum 74, Reykjavík og hjá Arion banka hf. í Borgartúni 19, Reykjavík. Reykjavík, 9. apríl 2015 Stjórn Eikar fasteignafélags hf.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.