Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 7
Sltrd II.
Legudagafjöldi að' Reykjalundi 1967—1971.
Ár Lcgudagar
1967 44835
1968 46840
1969 49364
1970 52598
1971 52497
Hve lengi dvelja vistmenn að Reykja-
lundi? Þeirri spurningu er erfitt að svara,
þar eð dvalartíminn er mjög misjafn, allt
frá einum degi upp í dvöl til margra ára.
Hér að neðan er skrá um meðaldvalartíma,
sem reiknaður er út frá lieildartölu vist-
manna ár hvert og legudagafjölda ársins.
Skrá 111.
Meðallegudagafjöldi. vistmanna að Reykja-
lundi 1967-1971.
Ár Mcðalfjöldi lcgudaga
1967 109.4
1968 109.7
1969 117.2
1970 126.1
1971 122.4
Þessi meðaltöl legudaga gefa þó ekki rétt-
ar upplýsingar um meðaldvalartíma, þar
sem inn í þeim er reiknuð einnig dvöl
þeirra, sem eru árum saman að Reykja-
lundi. Réttara væri að tilgreina 4—12 vikur
sem venjulegan og algengan dvalartíma
þeirra, sem ekki eru „fastir“ vistmenn. Það
er ljóst, að ástæður fyrir komu ráða talsvert
um tímalengd dvalar vistmanna. Ýmsir
koma eingöngu eða fyrst og fremst til
sjúkraþjálfunar og æfingarmeðferðar, aðrir
eingöngu eða fyrst og fremst til starfs- og
vinnuþjálfunar, sumir til hvorutveggja.
Enn aðrir koma í sérstöku athugunarskyni,
nokkrir til hvíldar og almennrar hressingar
og þannig mætti áfram telja.
Varðandi „fasta“ vistmenn er rétt að vísa
til reglugerðar Reykjalundar frá 1965, þar
sem er að finna ákvæði um berklasjúklinga
samkvæmt lögum S.Í.B.S. lrá 1960 um
rétt jreirra til vistar að Reykjalundi.
Ennfremur er ákvæði í sömu reglugerð um
„öryrkja til framhaldsvistar .. . sem nýtast
við störf á atvinnustöðum stofnunarinnar,
en eiga erfitt með að fá varanlega atvinnu
á almennum vinnumarkaði . . . þeir mega
]:>ó aldrei vera fleiri en 25% allra vist-
manna“. Þess má geta, að um mitt ár 1972
teljast 27 vistmenn til þessa hóps, þar af
9 berklasjúklingar. Heildartala berklasjúk-
linga, sem dveljast að Reykjalundi á sama
tíma, er hins vegar 35.
Dvalartími Jressara tveggja hópa er tíðast
langur, einkum berklasjúklinga, en Jró fer
]>ví fjarri, að það sé sama fólkið, sem ávallt
fyllir Jressa tvo liópa vistmanna. Breytingar
verða á högum og aðstæðum, bæði heilsu-
farslegum og félagslegum, jafnt meðal
berklasjúklinganna og hinna, sem gera það
að verkum, að eðlilegt og sjálfsagt telst, að
Jreir útskrifist.
Af ýmsum ástæðum, sem kalla má að-
steðjandi vandamál samtíðarinnar, og ekki
er á færi stofnunarinnar að leysa, er alltaf
nokkur hluti vistmanna að Reykjalundi til
langvalar, sem ekki fellur undir ákvæði
reglugerðarinnar um áðurnefnda tvö hópa.
Einkanlega veldur þessu mikill skortur um
allt landið á dvalarstöðum fyrir langdvalar-
sjúklinga og á hjúkrunarheimilum. Allt
bendir Jró til þess, að úr þessum málum ræt-
ist nokkuð á næstu árum, m. a. vegna hús-
bygginga Öryrkjabandalags íslands.
í neðangreindri skrá eru taldir helztu
sjúkdómshóparnir, sem töldust ástæða fyrir
komu vistmanna að Reykjalundi síðustu
fimm árin, 1967—1971.
REYKJALUNDUR
7