Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 22
TÓMAS HELGASON
prófessor, dr. med.
Samvinna
Geðverndarfélags Islands
og S.Í.B.S.
Maðurinn verður aldrei meðhöndlaður
sem vél svo vel fari. Nauðsynlegt er að taka
tillit til þess að hngur hans og líkami mynda
heild, sem aðlagast verður aðstæðum. Sé það
ekki gert skapar það vanlíðan hjá mannin-
um og hvorki lækning né endurhæfing
tekst eins vel og til er ætlast. Flestir játa
þetta í orði kveðnu, en mörgum reynist
erfiðara að framfylgja því. Læknirinn með-
höndlar fyrst og fremst {:>að, sem er á hans
sérsviði og sjúklingurinn hjálpar til með
Jrað, sem hann telur máli skipta, en af-
neitar oft ýmsu öð,ru sem veruleg áhrif
hefur á líf hans og heilsu. Sérstaklega á
þetta við um ýmis geðræn einkenni, sem oft
eru samfara líkamlegum einkennum. Sé
ekki tekið tillit til hvoru tveggja einkenn-
anna við meðferð og endurhæfingu, verður
árangurinn ekki sem skyldi og hætt við að
örorkan verði meiri eða varanlegri en ella
jDyrfti að verða.
Þegar af þeirri ástæðu, að oftast fara sam-
an fleiri en einn kvilli hjá sama sjúklingi,
er eðlilegt að veita sjúklingum með mis-
munandi sjúkdóma eða örkuml, meðferð
á sömu stofnun. Samferð berkla og geð-
sjúkdóma hefur verið áberandi og skapaði
oft sérstök vandamál fvrr á árum. Þess
j
vegna er mjög eðlilegt að S.f.B.S. og Geð-
veindarfélag íslands hafi tekið upp nána
samvinnu.
ALHLIÐA
EN DURHÆFIN (i ARSTOFNUN
Þegar Geðverdarfélag fslands ákvað
haustið 1966 að koma upp bættri aðstöðu til
endurhæfingar geðsjúkra var strax ákveðið
að leita samvinnu við S.Í.B.S. Forráðameun
S.I.B.S. tóku Geðverndarfélaginu mjög vel
og varð fljótt að samkomulagi að Geðvernd-
arfélagið skyldi reisa þrjii lítil vistmanna-
hús með 12 rúmum að Reykjalundi, en S.í.
B.S. síðan sjá um reksturinn. Að Reykja-
lnndi var þá þegar fengin all nokkur reynsla
við endurhæfingn geðsjúkra, sem ýmist
höfðu leitað Jiangað fyrst og fremst vegna
geðsjúkdóms, eða leitað þangað af einhverj-
um öðrum ástæðum, en geðsjúkdómurinn
verið verulegur Jráttur í örorku viðkomandi
22
REYKJALUNDUU