Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 5
HAUKUR ÞÓRÐARSON
yfirlæknir:
Starfsemin að
Reykjalundi,
byggingaframkvæmdir
og áform
I>að hlýðir, að nokkuð sé sagt frá Vinnu-
heimili S.Í.B.S. að Reykjalundi í blaði S.í.
B.S., sem nú kemur út í 20. skipti og ber
nafn stofnunarinnar. Málgagn í formi ár-
legs blaðs á berklavarnardegi, fyrsta sunnu-
dag í október, hefur S.f.B.S. þó gefið út
oftar. Blaðið Berklavörn kom út í átta ár-
göngum á tímabilinu 1939—1946. Þetta
blað, Reykjalundur, kom hins vegar fyrst út
1947. Þáverandi stjórn S.Í.B.S. hefur að lík-
um þótt tilhlýðilegt að kenna blað sitt við
aðalverkefni sambandsins, Vinnuheimilið
að Reykjalundi, sem þá hafði starfað í rúm
tvö ár og lofaði góðu í baráttunni við
berklaveikina.
STARFSEMIN
Sífellt gerast einhverjar breytingar á
starfsemi og rekstri stofnunar á borð við
Reykjalund. Eðlilegt er, að breytingar
verði til samræmis við breytta tíma, þarfir,
óskir, þekkingu og reynslu í þeim málum,
sem stofunuin fjallar um og lætur sig skipta.
Hins vegar hefur ekki orðið breyting á
tilgangi starfseminnar að Reykjalundi frá
upphafi, eða frá j)ví starfsemin hófst þar
1. febrúar 1945. Tilgangur S.Í.B.S. með
Reykjalundi frá upphafi var endurhœfing,
nánar tiltekið endurhæfing fyrir berkla-
sjúklinga. Þörf berklasjúklinga fyrir end-
urhæfingu á þeim tíma var fyrst og fremst
á sviði atvinnu- og starfsþjálfunar. Sú stað-
reynd réði m. a. opinberu heiti stofnunar-
innar, Vinnuheimiíi S.Í.B.S.
Starfsemin miðaðist eingöngu við þarfir
berklasjúklinga fyrstu 12—13 árin. Þá var
svo blessunarlega komið í berklamálum hér
á landi, að berklasjúklingar þurftu ekki
lengur á öllu vistrými Reykjalundar að
halda. Af þeim sökum gerði 11. þing S.í.
B.S. 1958 samþykkt um starfssvið Reykja-
lundar, þ. e. gaf heimild „að taka að Reykja-
lundi almenna öryrkja til tímabundinnar
dvalar“ samkvæmt nánari reglum, sem þar
REYKJALUNDUR
5