Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 56
I risaklóm
(ÞJÓÐSAGA)
Endur fyrir löngu bjuggu hjón á bæ
þeim, skammt frá Krýsuvík, er Vigdísar-
vellir liét. Sá bær er nú í eyði. Þau hjón
áttu sér eina dóttur. Hún liét Guðrún.
Guðrún var forkunnar fögur. Svo fögur að
hennar líki fannst enginn á öllu íslandi.
Ekki er þess getið að þau hjón hafi átt
lleira barna. Og bjuggu þau með dóttur
sinni einni á Vigdísarvöllum.
Þegar þessi saga gerðist eru hjónin hnig-
in mjög á efri aldur, en dóttir þeirra gjaf-
vaxta. Fregnir um fegurð Guðrúnar og
gjörvuleik fóru víða. Menn komu víðs veg-
ar að til þess að biðja hennar. En allt var
það árangurslaust. Hversu fríðir og föngu-
legir og fémiklir sem biðlarnir voru, neit-
aði Guðrún þeim öllum. Og getur sagan
ekki um ástæðu fyrir því. Gekk svo um
langan tíma.
Eitt kviild síðla sumars er barið allharka-
lega á bæjardyrnar á Vigdísarvöllum. Verð-
ur þeim hjónum og Guðrún bilt við, og
hikaði bóndi við að fara til dyra. Er þá
aftur barið og enn þunglegar en áður.
Verður bónda nú ekki um sel og fer hvergi.
Þess er þá skammt að bíða, að barin eru
þrjú bylmingshögg á bæjardyrnar. Og þor-
ir bóndi nú eigi annað en út að ganga.
Nokkuð var farið að rökkva. Koldimmt var
í göngum. Uggur var í bónda. Þreifaði
hann sig fram eftir göngunum, fálmaði eft-
ir slagbrandinum, tók hann gætilega frá
dyrunum og gægðist út. Sá hann þá hvar
56
stór maður, ferlegur útlits og ófríður, stóð
frammi fyrir honum. Fannst bónda mað-
urinn mikilúðlegur og illa vaxinn. Þóttist
hann aldrei hafa séð svo ljótan mann fyrr
á ævi sinni. Sýndist honum hann meira lík-
ur risa en mennskum manni. Hugði nú
bóndi að hér væri ekki allt með felldu, en
reyndi sem allra minnst að láta á ótta sín-
um bera. Heilsaði hann manni þessum,
spurði um heiti hans og innti hann eftir
erindi hans, og livaðan hann væri. Kvaðst
maðurinn heita Ögmundur og vera kom-
inn til Jiess að biðja dóttur hans. Ekki sagð-
ist hann geta sagt hvaðan hann væri. Svo
óttasleginn sem bóndi var fyrir, varð hann
hálfu hræddari, er hann heyrði erindi
komumanns og hinn hrikalega málróm
hans. Bóndi varð fár við í fyrstu en sá fljótt
að nú var annaðhvort að duga eða drepast.
Bað hann komumann liinkra ögn við með-
an hann brygði sér í baðstofu og færði þetta
í tal við konu sína og dóttur.
Þarf ekki að orðlengja það, að bónda
þótti nú þunglega horfa, og að konu hans
REYKJALUNDUR