Reykjalundur - 01.06.1972, Síða 11

Reykjalundur - 01.06.1972, Síða 11
nefnd. Síðan er byrjað að safna fé. í marz 1944 kaupir S.I.B.S. 30 hektara landspildu í Mosfellssveit. 5. apríl 1944 ræður S.Í.B.S. tvo arkitekta til að gera tillögu að bygging- um og skipulagi, og hefur annar þeirra, Gunnlaugur Halldórsson, starfað að þeim málum ætíð síðan. Á skömmum tíma er til- lögum skilað, svo að byggingar- og skipu- lagsáformin eru samþykkt á 4. þingi S.Í.B.S. 6. maí 1944. 10. maí 1944 setur stjórn S.í. B.S. sérstaka byggingarnefnd. Framkvæmd- ir hefjast síðan 3. júní 1944 með því, að stjórnarmenn í S.I.B.S. og nokkrir aðrir berklasjúklingar grafa með hökum og skófl- um grunn að fyrsta húsinu, smáhýsi, sem nú er númer 3 við Efribraut. Byggingarfram- kvæmdir gengu vel miðað við byggingar- tækni á þeim tíma, svo að við opnun Reykjalundar 1. febrúar 1945 voru fimm smáhýsi tilbúin til notkunar og ýmissi annarri undirbúningsvinnu lokið. Síðan er haldið áfram byggingu fleiri smáhýsa, hafin bygging starfsmannahúsa og 2. apríl 1946 hafin bygging aðalhússins að Reykjalundi, sent á mælikvarða þeirra tíma var mikil framkvæmd og byggð með meiri glæsibrag en tíðkaðist um húsakynni þá. 1. febrúar 1950 var aðalhúsið svo tekið í notkun, fimm árum eftir að starfsemin hófst að Reykja- lundi. 1952 hófst bygging fyrsta vinnu- skálans, næsta ár bygging annars skálans og 1957 bygging hins Jrriðja. Önnur hús eru jafnframt byggð, t. d. er árið 1955 haf- in bygging á svonefndri Lengju og bygging á núverandi skrifstofu og vörugeymslu. Ennfremur á allmiklu húsbákni, sem upp- runalega skyldi vera samkomusalur, en orð- ið hefur að nota fyrir geymslurými undan- farin ár. Sex smáhýsi eru reist á árunum 1963—1968, þar af þrjú byggð af Geðvernd- arfélagi íslands. Þannig má áfram rekja byggingarsögu Reykjalundar eftir upp- runalegri áætlun allt fram í maímánuð 1971, að tekið er í notkun nýjasta smáhýsið, sem þá eru orðin 18 að tölu. Furðanlega lítil frávik hafa verið gerð á upphaflegum bygginga- og skipulagsáformum, þótt ýms- ar breytingar hafi að sjálfsögðu verið gerðar á notkun húsnæðis í samræmi við þarfir og hagræði í þeim efnum. Þegar líða tók að Jdví, að upphaflegum byggingaáformum að Reykjalundi var að ljúka, var ljóst, að ástæða var til að yfirvega ný byggingaáform með hliðsjón af starfs- sviði Reykjalundar í endurhæfingarmálum í dag og um næstu framtíð. Sýnt þótti, að réttmætt væri að setja á laggirnar nýja byggingaáætlun og má m. a. tilfæra eftir- taldar ástæður fyrir Jrví: 1. Eftirspurn eftir vistun að Reykjalundi til endurhæfingar af ýmsu tagi hefur verið stórum meiri á síðari árum en hægt hefur verið að sinna. Ýmsar ástæður eru fyrir jDeirri eftirspurn, m. a. J:>að hlutverk, sem Reykjalundur hefur valið sér og skapað sem almenn endurhæfingarstofnun. Það er því brýn þörf að auka vistrýmið að Reykjalundi til Jress að stofnunin geti rækt hlutverk sitt í endurhæfingarþjón- ustu landsins. 2. Samhliða aukningu á vistrými á síðari ár- um hefur ekki komið samsvarandi aukn- ing á ýmsu jDjónustuhúsnæði, t. d. dag- stofu- og borðstofurými, starfsrými til hjúkrunar og annarar umönnunar- þjónustu, o. fl. Umbætur á Jressum vett- vangi eru því nauðsynlegar. 3. Ýmsar starfsgreinar endurhæfingarþjón- ustu hafa lítt verið fáanlegar hér á landi og veldur ýmist skortur húsnæðis, sér- hæfðs starfsliðs eða hvorttveggja. Ein Jiessara starfsgreina er iðjujajálfun, en fyrir iðjuþjálfun hefur skapazt mikil þörf að Reykjalundi. Nauðsynlegt virðist að ætla þessum starfsgreinum húsnæði að Reykjalundi í framtíðinni. REYKJALUNDUR 11

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.