Reykjalundur - 01.06.1972, Page 18
að reisa húsið og skila því tilbúnu undir
tréverk. Þá kom Reykjalundur enn við sögu.
Hann tók að sér tréverkið, einnig frágang
lóðarinnar. Hvernig að því var staðið sýna
bezt merkin verkin.
Hvaða aðstöðumun hefur lceknir hér á
Reykjalundi fram yfir héraðslcekni, sem
þjónar einn sér i læknishéraði úti á lands-
byggðinni?
Á því er reginmunur. Stofnun eins og
Reykjalundur er svo margfalt betur búin
tækjum, starfsliði og hvers kyns búnaði að
því verður ekki með nokkru móti jafnað
við það sem algengast er í afskekktari strjál-
býlishéruðum og eru þá ekki undanskilin
þau, sem bezt eru búin. Þar sem læknir
þjónar einn er hann á vakt alla daga og
nætur árið um kring. Hann verður að hlýða
kalli hvenær sem er, hvernig sem hann er
fyrirkallaður. Oft reyndist jafnvel harla
erfitt að fá afleysara í sumarleyfum og afar
illa séð „að stökkva í burtu, án þess að skilja
nokkurn eftir fyrir sig“. '
Hér vinnum við fleiri saman, skiptumst
á vöktum í héraðinu og á hælinu. Leysum
hvern annan af í leyfum. Leysum sameigin-
lega vanda, sem að höndum ber. Hjúkrun-
arkonurnar styðja mann og styrkja á alla
lund að ógleymdri ljósmóðurinni, sem að-
stoðar mig á stofunni við mæðraskoðun og
ungbarnaeftirlit. Þá hef ég aðgang að rann-
sóknarstofunni, en þar starfar meinatæknir
3 daga í viku, nokkuð sem er ómetanlegt.
Ritarar starfa með okkur oa: ekki má éa
gleyma sjúkraþjálfurunum, sent alltaf eru
reiðubúnir að liðsinna manni.
Þannig fer held ég ekki milli mála, að
við aðstæður eins og eru hér á Reykjalundi,
veitist héraðsbúum betri og öruggari lækn-
isjrjónusta en með nokkurri sanngirni væri
hægt að krefjast af lækni, sem Jyjónar einn
sér í læknishéraði úti á landsbyggðinni.
Hvert er þitt álit á þvi að starfa við
læknamiðstöð i samanburði við að þjóna i
stóru læknishéraði i dreifbýlinu?
Reynsla mín af því að hafa starfað einn í
liéraði um árabil og síðar í nokkur ár á
læknamiðstöð liefur sannfært mig um, að
fullkomin heilbrigðisþjónusta verður ekki
veitt nema með hópstarfi lækna og sér-
menntuðu starfsliði.
Þá ber að mínu viti að stefna að Jrví, að
allir landsmenn eigi kost slíkrar Jrjónustu
og fæ ég ekki betur séð, en frumvarp J)að
til laga um heilbrigðisþjónustu, sem nú
liggur fyrir Aljiingi, geti stuðlað mjög að
J)ví að svo verði, ef að lögum verður.
DÆMISAGA ÚR DREIFBÝLI
Levítinn kvaddi og lagði á drógar sinar
laust fyrir dag. Með afturbirtu hlýnar.
Riður hann skæting skemmstu leið út
sanda.
Á skuggsýnu kvöldi er hægt að rata i vanda.
Um sólarlagsbilið sá hann þústu eina.
Sárþjáður maður lá og var að kveina.
Ræningjar höfðu rifið hann og barið,
rúið hann inn að skyrtunni og farið.
Levitinn sagði: „Ljót eru á þér sárin.
Þig langar víst til að setjast upp á klárinn.
En dreifbýlið annast Drottinn einn að
sinni.
Dagleið er enn að læknamiðstöðinni.
Oddný Guðmundsdóttir.
18
REYKJALUNDUR