Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 29
getur leitt til einangrunar og uppgjafar.
Þarna geta íþróttaiðkanir komið að lialdi,
bæði fyrirbyggjandi og læknandi, fyrir-
byggjandi á þann hátt, að viðlialda þeirri
orku, sem eftir er og það, sem ekki er síður
mikilvægt, að skapa hæfileg viðlangsefni,
einbeita sér að því jákvæða. Vinna gegn
einangrun og uppgjöf. Læknandi á þann
hátt að stæla og efla þá líkamshluta, sem
lamazt hafa og að láta heilbrigðu hlutana
taka að sér verkefni þeirra, er tapazt hafa.
SAGA
Þótt skipulagðar íþróttir fyrir fatlaða
eigi sér ekki sérlega langa sögu, þá er þeirra
þó snemma getið.
Um 1550 ráðlagði spánskur læknir fötl-
nðum að stunda íþróttir.
Á 19. öldinni var skrifað um leikfimi og
íþróttir fyrir blinda og alllengi hefur verið
skipulögð íþróttastarfsemi fyrir heyrnar-
sljóa, þótt hún væri ekki útbreidd. Eins og
um svo margt annað, þá voru það fyrst og
fremst áhugasamir einstaklingar, sem vöktu
athygli á þörfinni, en tölnðu lengst af fyrir
daufum eyrum. Þó smáþokaðist í áttina;
1922 stofnuðu lamaðir ökumenn í Eng-
landi sérstakt keppnisfélag og einhentir
golfáhugamenn stofnuðu með sér félag í
Glasgow 1936.
Fjörkipp, sem um munaði, tók þetta
merka málefni, er Sir Edwin Guttman varð
yfirlæknir Stoke Manderville sjúkraluissins
í Aylesbury á Englandi árið 1944. Sir Gutt-
man hefur helgað þeim, sem lamaðir eru
upp að mitti eða hærra, meginhluta starfs-
krafta sinna. Þeim frábæra árangri hefur
hann náð, að þegar hann tók við sjúkra-
húsinu þá dóu 80% slíkra sjúklinga innan
5 ára, en nú hafa þau gleðilegu umskipti
orðið, að nú lifa 80% lengur en 5 ár. Svo
viðurkennt er starf hans, að hann var aðl-
aður vegna afreka. Sir Guttman sá, að með
auknu langlífi hinna lömuðu skapaðist þörf
fyrir aukna fjölbreytni í lifnaðarháttum og
stöðuga hreyfingu og þjálfun. Hann sá, að
íþróttirnar voru leiðin til úrbóta. Hann lét
byggja leikvang við sjúkrahúsið, sem hæfði
fötluðum og síðan 1952 hafa larið þar fram
árlega landskeppnir í íþróttum fyrir fatl-
aða. Þetta þýddi að sjálfsögðu stöðuga
þjálfun árið um kring til undirbúnings.
Barátta og kynning Sir Guttmans á iþrótt-
nm fyrir fatlaða hélt áfram og 1960 héldu
400 hjólastólaíþróttamenn frá 22 löndnm
sína Olympíuleika í Róm á sama tíma og
hinir venjulegu Olmpíuleikar voru haldnir
þar. Þessir leikar voru haldnir við sömu
skilyrði og skilmála. Síðan hafa fatlaðir
haldið sína eigin Olympíuleika í sama
landi og á sama tíma og venjulegir Olymp-
íuleikar hafa farið fram.
íþróttir fatlaðra hafa því hlotið alþjóð-
lega viðurkenningu.
Margar þjóðir leggja nú áherzlu á að
efla íþróttir fatlaðra, þar má nefna Norð-
urlandaþjóðirnar, og í V-Þýzkalandi stund-
uðu 60.000 fatlaðir skipulagðar íþróttir
undir leiðsögn 2000 kennara og 1500 lækna
árið 1967. Hér á landi hefur engin skipu-
lögð íþróttastarfsemi fyrir fatlaða farið
fram. Fatlaðir hafa þó iðkað sund og
sjúkraleikfimi. Reiðmennska hefur verið
ástunduð á Reykjalund. Auk þess taka fatl-
aðir þátt í ýmsum leikjum.
TEGUND FÖTLUNAR OG FJÖLDI
Hér á landi eru nokkrar þúsundir fatl-
aðra, er mundu hafa gagn af skipulögðum
íþróttaiðkunum. Orsakir fötlunar eru
margvíslegar:
1) Meðfædd fötlun, sem hefur í för með
sér ýmis konar lamanir og truflanir á
starfsemi heilans. Þessu fólki er stöðug
þjálfun frá barnsaldri mikil nauðsyn.
RHVKJALUNDUR
29