Reykjalundur - 01.06.1972, Page 55
borð í þotunni. Þau sem fyrstu verðlaun
hlutu voru Stefánía H. Stefánsdóttir frá
Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit og Tryggvi
Guðmundsson frá Tryggvaskála á Seltiarn-
arnesi. Auk þeirra tóku Jseir Grímur Engil-
berts og Árni Einarsson þátt í ferðinni og
undirritaður.
Þar er skemmst frá að segja að ferðin öll,
heimsóknin til Billund, sem og skoðunar-
ferðir um Jótland voru með eindæmum vel
undirbúnar af gestgjöfunum, Lego Dan-
mark með þá Gottfred K. Christiansen for-
stjóra og Arne Bödtker sölustjóra í broddi
fylkingar. Svo og hinar elskulegu frúr
þeirra, sem létu sér mjög annt um að heið-
ursgestirnir, þau Stefanía og Tryggvi nytu
ferðarinnar sem bezt, og að )>au færu einskis
á mis, sem l.ego hafði upp á að bjóða. Það
er einnig óhætt að fullyrða, að börnin
skemmtu sér vel og ekki dró Jiað úr ánægj-
unni að Lára Thorarenson, sem staifaði
lengi hjá S.Í.B.S. í Reykjavík, en vinnur
nú á Hotel Færgegaarden í Svejbæk slóst í
hópinn ásamt sonardóttur sinni, sem var á
svipuðum aldri og verðlaunabörnin fiá fs-
landi. Auk allra ævintýra Legolands, sem
bæði börn og fullorðnir upplifðu og nutu,
gengu börnin á Himinbjargið og óku um
hinn einstæða Ljónagarð. Það var skemmti-
legt að fylgjast með háttalagi dýranna, sem
lifa þarna frjáls og láta sig litlu skipta Jiótt
bílarnir aki um og forvitin andlit allra
aldursflokka gægjast út um bílgluggana.
Heimsókn í I.ego fyrirtækið var mjög
fróðleg og nutum við hin (>ar Árna Einars-
sonar forstjóra á Reykjalundi, sem var
þarna hinn mesti aufúsugestur. Ghristian-
sen forstjóri sagði undirrituðum, meðan
gengið var um Jietta stóra og vel rekna
fyrirtæki, að samvinna Lego og Reykjalund-
ar væri orðin bæði löng og góð. Hann
kvaðst hafa mikinn áhuga fyrir því starfi
sem fram færi á Reykjalundi og þeirri hug-
sjón, sem að baki lægi. Hann rifjaði upp
gömul og góð kynni við þá Odd Ólafsson
yfirlækni og Árna forstjóra og fyrstu sam-
skipti Lego og Reykjalundar.
Bærinn Billund er fyrir ýmsa hluti
merkilegur. Segja má að hann hafi byggst
utan um Lego fyrirtækið. Við fyrstu sýn er
Jietta hálfgerð hulduborg, vegna Jiess að
húsin, sem öll eru einnar hæðar eru hulin
trjágróðri. Þetta er einkar vinalegur bær,
friðsæll og hreinlegur.
Það er eftirtektarvert að Lego fyrirtækið,
hefur ekki farið út í framleiðslu leikfanga
hernaðarlegs eðlis. Sama er að segja um
Legoland. Þar fyrirfinnast eftirlíkingar af
flestu, sem auganu mætir í daglegu lífi, svo
sem bílum, skipum, flugvélum og járn-
brautum. £g kom Innsvegar ltvergi auga á
eftirlíkingar af liernaðartækjum. Þetta
sannar mál Jieirra, sem framleiða Jiessi vin-
sælu leikföng, að Jrau eru fyrst og fremst
þroskandi fyrir börnin, sem hafa Jian með
höndum.
Heim komu verðlaunabörnin, Jiau
Tryggvi og Stefanía, að kveldi l(i. júní og
var vel fagnað af vinum og vandamönnum
við komuna til Reykjavíkur.
Þannig endaði þessi ævintýraferð barn-
anna að norðan og sunnan. Þau Stefanía
úr Mývatnssveitinni og Tryggvi af Seltjarn-
arnesinu reyndust bæði góðir og duglegir
ferðafélagar og ég held að þau hafi notið
ferðarinnar, og Jreirra margvíslegu ævintýra
sem Jiau upplifðu. Á heimleiðinni gafst
Jieim tækifæri til Jiess að skoða Kaupmanna-
höfn og fara í Tivolí. Án J>ess að vilja gera
veg Jress mikla skemmtigarðs minni en efni
standa til, J>á voru J>au Stelanía og Tryggvi
sammála um að Legoland væri miklu
skemmtilegra. Heimsóknin Jiangað myndi
verða þeim éjgleymanleg.
Að endingu sendi ég ferðafélögum mín-
um beztu Jiakkir fyrir ánægjulega ferð og
öll sendum við kveðjur og Jiakkir til Lego
í Billund fyrir konnnglegar móttökur.
REYKJALUNDUR
55