Reykjalundur - 01.06.1972, Blaðsíða 58
kerlingar og varð lítið úr verki á Vigdísar-
völlum. Var sem enginn gæti innt af hendi
nokkurt verk til hlítar.
Tíðum varð þeim hjónum og Guðrúnu
gengið út á hólinn, einkum þó Guðrúnu.
Og var sem hún hefði enga eirð í sínum
beinum.
Risanum miðaði æ betur og betur. Eftir
því sem á daginn leið lengdist vegurinn,
og styttist nú óðum sá kafli er eftir var.
Leið nú dagurinn unz komið var fram
í myrkur. Tóku hjónin að örvænta að úr
þessu mundi rætast. Guðrún var orðin von-
laus. Fór hún að búa sig undir brottförina,
og gerði hún jrað ekki sársaukalaust. Hjart-
að barðist ótt í brjósti hennar. Bar hún sig
næsta aumlega, sem vonlegt var. Hafði hún
aldrei úr föðurgarði farið áður, enda ætlað
sér vænlegra hlutskipti en að lenda í risa-
klóm. Grét hún beisklega yl’ir örlögum sín-
um. Móðir hennar reyndi að hughreysta
hana þótt það kæmi einnig við lijarta henn-
ar að skilja svo við dóttur sína.
Bóndi horfði á dapur í bragði. Rann
honum svo til rifja að sjá örvæntingu dótt-
ur sinnar, að hann ákvað að gera eitthvað,
hvort sem það dygði eða dygði ekki. Æstur
í skapi, samanherptur og jrrútinn í andliti
af reiði, yfirgaf hann mæðgurnar í þcssu
ástandi.
Bóndi gekk út í skemmu. Hann tók
sveðju eina mikla og stóra og brýndi snarp-
lega.
Er hann hafði lokið því gekk hann rak-
leiðis út í hraunið. Stóð það heima að ris-
inn hafði lokið hlutverki sínu.
Greiðfær og allgóður vegur var nú kom-
inn yfir hraunið. Eins og bóndi bjóst við
var risinn yfirkominn af þreytu. Var hann
kominn miðja vegu til baka aftur og skjögr-
aði til beggja hliða, er liann gekk.
Bóndi beið risans við hraunjaðarinn.
Honum var órótt. Eftir alllanga stund
kom risinn að hraunjaðrinum. Gekk hann
upp og niður af mæði og var þreyttur
rnjög. Réðst bóndi J^egar að honum. Er
hann sveiflaði sveðjunni og sá blika á hana,
óx honum ásmegin. Ekki var allt afl Jorotið
úr æðurn risans. Var Jretta bæði harður
leikur og langur, en þó fór svo að bóndi
felldi risann. Var hann svo þjakaður eftir
viðureignina að hann gat sig hvergi hreyft.
Er hann hafði jafnað sig dysjaði hann ris-
ann þarna við hraunjaðarinn. Og heitir þar
síðan Ögmundardys og hraunið Ögmund-
arhraun. Má enn þann dag í dag sjá Ög-
mundardys við vegarendann í Ögmundar-
hrauni.
Er bóndi kom heim voru lieldur en ekki
fagnaðarfundir á Vigdísarvöllum.
Af Guðrúnu er J^að að segja að hún gift-
ist skömmu síðar og lifði við gæfu og gengi
allt sitt líf.
Og lýkur svo þessari sögu.
(V. J. færði í letur.)
58
REVKJALUNIHJK