Húnavaka - 01.05.1965, Side 80
Fréttir og fró&leikur
Fréttir úr Höfðakaupstað.
I Höfðakaupstað eru nú 140
skólaskyld börn og unglingar og
er þar einnig starfandi miðskóla-
deild (landspróf). Á síðastliðnum
vetri fékk skólinn húsgögn í her-
bergi skólastjóra og kennara.
Hafnar eru framkvæmdir við
girðingu um lóð skólans, þá var
einnig gerð girðing kringnm lóð
Hólaneskirkju fyrir forgöngu
formanns sóknarnefndar As-
mundar Magnússonar. Er girð-
ingin hin vandaðasta, að mestu
úr steinsteypu, lóð kirkjunnar
var um leið löguð.
Hafin var bygging á íbúðar-
húsi handa héraðslækni, og er
hún komin undir þak. Miklar
umbætur fóru Irarn á liúsi pósts
og síma. Þá var unnið við þau
sjö íbúðarhús, sem eru í smíð-
um.
Fiskiveiðar voru með lélegra
móti eins og annars staðar fyrir
Norðvesturlandi. Síldarafli brást
algerlega á heimamiðum, haust-
vertíð var eigi aflasæl vegna lé-
legs afla og ógæfta. Á Húnaflóa
voru nú leyfðar veiðar með
snuruvoð, eltir friðun Húnaflóa
á annan tug ára. Stunduðu þess-
ar veiðar á sumrinu 4 hinir
minni bátar frá Höfðakaupstað
og öfluðu vel. Mestan afla fékk
,,Vísir“ formaður Sigurður
Árnason. Aflaði þetta þorpsbú-
um er heima sátu atvinnu.
I febrúar fóru hinir stærri bát-
ar suður til fiskiveiða, voru það
fjórir bátar, auk þess bátur frá
Húsavík að mestu mannaður
Skagstrendingum, sem reri á ver-
tíð fyrir sunnan.
Fjöldi manna fór til verstöðva
á Suðurlandi og stundaði at-
vinnu einkum í Grindavík.
Heima reru hinir minni bátar.
Fjórir bátar fóru á síldveiðar.
Mestan afla fékk Húni IF, skip-
stjóri á honiun er Hákon Magn-
ússon. Margt manna fór einnig
í síldarvinnu til Austfjarða.
Innveginn fiskur hjá frystihúsi
Kaupfélags Skagstrendinga árið
1964 var 783 tonn.
Heyskapur í Höfðakaupstað