Fréttablaðið - 21.01.2015, Qupperneq 56
21. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 28
HANDBOLTI Hafi einhver efast þá
er öllum nú ljóst að íslenska lands-
liðið er komið á fullan skrið á HM
í handbolta. Loksins, eftir afar erf-
iða byrjun á mótinu hér í Katar.
Ísland sendi skýr skilaboð til
annarra liða í keppninni með því
að gera jafntefli gegn Evrópu-
meisturum Frakklands í Duhail-
keppnishöllinni í Doha í gær og
undirstrikaði það góða frammi-
stöðu þeirra að þeir gengu allir
sem einn svekktir af velli.
Úrslitin þýða að strákarnir eru
skrefi nær 16-liða úrslitunum og
eiga enn raunhæfa möguleika á
öðru sæti riðilsins. Fram undan eru
afar þýðingarmiklir leikir, fyrst
gegn Tékklandi og svo Egyptalandi
en miðað við frammistöðuna í gær
eru strákarnir til alls líklegir haldi
þeir uppteknum hætti.
Trúin alltaf til staðar
Leikurinn í gær var spennandi en
hann byrjaði á óþægilega kunnug-
legum nótum. Strákarnir voru að
spila sig í færi en aðeins eitt skot
af fyrstu sex rataði á rammann.
En þökk sé góðri vörn og frábærri
markvörslu Björgvins Páls Gúst-
avssonar fengu sóknarmennirnir
tækifæri til að koma sér í gang,
sem þeir og gerðu.
„Þetta segir allt um þeirra skap-
gerð og sýnir úr hverju þeir eru
gerðir. Þeir eru með hjartað á rétt-
um stað og með gríðarlegan sigur-
vilja. Við vitum vel að þeir geta
þetta og trúin er til staðar. Þetta
var bara tímaspursmál enda kom
þetta á endanum,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn Aron Kristjánsson.
Aron Pálmarsson átti frábæran
leik og sýndi enn og aftur hversu
gríðarlega mikilvægur hann er lið-
inu. Björgvin Páll Gústavsson var
magnaður, Alexander Petersson
byrjaði hægt en honum óx ásmeg-
in og þá átti Snorri Steinn Guðjóns-
son sinn langbesta leik í keppn-
inni. Vörnin var frábær í leiknum
og margir lögðu hönd á plóg. Aron
hrósaði svo Ásgeiri Erni Hall-
grímssyni fyrir hans framlag í
sókninni. „Hann steig upp og tók
mikla ábyrgð í kvöld. Það var gott
að sjá það. Björgvin var svo sterk-
ur í markinu sem var lykilatriði
fyrir okkur.“
Frakkar héldu sér inni í leiknum
með markvörslu Thierry Omeyer
og kröftugum sóknarleik þegar
mest á reyndi í síðari hálfleik.
Ísland var þá í miklu basli með að
feta þá þröngu línu sem varnar-
mönnum er sett í þessari keppni
og það nýttu Frakkar sér. En allra
erfiðast var að eiga við línuspil
Frakkanna og hinn ógnarsterka
Cedric Sorhaindo á línunni.
Ísskápurinn var erfiður
„Ísskápurinn er hann kallaður,“
bendir Aron á og hristir haus-
inn. „Hann þarf ekki mikið pláss
og þegar dómgæslan er svona er
gríðarlega erfitt að finna lausn á
þessu. Kannski er hægt að vera
klókari en við vorum en strák-
arnir sýndu mikla þolinmæði. Við
náðum að taka þá oft úr jafnvægi
með því að breyta nokkrum smá-
atriðum hjá okkur. Það var gott að
hafa klárað þetta með þessu jafn-
tefli þrátt fyrir allt.“
Sýna sama vilja gegn Tékkum
Eftir hina bagalegu byrjun Íslands
á mótinu þar sem strákarnir stein-
lágu fyrir Svíum tóku þeir sig
saman í andlitinu og gerðu nóg
til að vinna Alsír í næsta leik. En
leikurinn í gær var í allt öðrum og
miklu betri gæðaflokki.
„Við verðum að vera sáttir við
svona frammistöðu. En samt ekk-
ert sáttari en svo að þetta er bara
eitt framfaraskref. Næst kemur
lykilleikur gegn Tékkum og við
verðum að sýna sama sigurvilja og
við gerðum í kvöld strax frá fyrstu
sekúndu.“
Þetta var bara tímaspursmál
Strákarnir okkar náðu loksins að sýna sitt rétta andlit á HM í Katar en Ísland var hársbreidd frá því að landa
sigri gegn Evrópumeisturum Frakka. „Skref, en bara eitt skref, í rétta átt,“ segir landsliðsþjálfarinn eft ir leik.
ÞAÐ MUNAÐI SVO LITLU Þessi svipur leikstjórnandans Snorra Steins Guðjónssonar segir meira en mörg orð. Íslenska liðið
spilaði mjög góðan leik á móti Ólympíu- og Evrópumeisturum Frakka í gær og var svo nálægt sigri. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
SPORT
HANDBOLTI Hans Lindberg tryggði Dönum 30-30 jafntefli á móti
Þýskalandi á HM í gær og urðu íslensku þjálfararnir Guðmundur
Guðmundsson (þjálfari Danmerkur) og Dagur Sigurðsson (þjálfari
Þýskalands) því að skipta á milli sín stigunum í fyrsta Íslendinga-
slagnum (kannski af nokkrum) á heimsmeistaramótinu í Katar.
Jöfnunarmark Lindbergs, sem á íslenska foreldra, kom af víta-
punktinum rúmri mínútu fyrir leikslok en Þjóðverjar fengu
lokasókn leiksins þar sem danska vörnin tók tvö skot. Þýska liðið
var þremur mörkum yfir þegar níu mínútur voru eftir af leiknum
en annars var jafnt á nær öllum tölum. Þjóðverjar eru nú með
fimm stig á toppi D-riðils og eru komnir langt með að tryggja sér
efsta sæti hans. Danir koma næstir með þrjú stig en þeir eiga tvo
erfiða leiki eftir, gegn Póllandi og Rússlandi. Dagur og Guðmundur
hafa þar með gert jafntefli í bæði skiptin sem þeir hafa mæst á
stórmótum en Ísland (Guðmundur) og Austurríki (Dagur) gerðu
jafntefli undir þeirra stjórn á EM í Austurríki 2010. -óój
„Íslendingurinn“ tryggði Dönum jafntefl i í Íslendingaslagnum
STIG Á MANN Guðmundur Guðmundsson og Dagur
Sigurðsson eftir jafnteflið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN
Aron Pálmarsson hefur komið að flestum mörkum af
öllum leikmönnum heimsmeistaramótsins í Katar eftir
þrjár fyrstu umferðirnar samkvæmt tölfræði móts-
haldara. Aron er í þrettánda sæti yfir flest mörk
(16) og í öðru sæti yfir flestar stoðsendingar
(17) en enginn hefur átt þátt í fleiri mörkum,
mörk+stoðsendingar (33). Daninn Mikkel
Hansen er efstur í stoðsendingum en hann
hefur gefið einni fleiri en Aron. Aron hefur eitt
mark í forskot á Makedóníumanninn Kiril Lazarov
(22+10) þegar kemur að því að eiga þátt í flestum
mörkum en Mikkel Hansen (11+18) er þar í
þriðja sæti fjórum mörkum á eftir Aroni. Með
Hansen í þriðja sætinu eru Nikola Karabatic frá
Frakklandi, Zarko Markovic frá Katar og Steffen
Weinhold frá Þýskalandi.
Aron hefur átt þátt í fl estum mörkum
ÚRSLIT
C RIÐILL
Tékkland - Egyptaland 24 - 27 (10-13)
Ísland - Frakkland 26 - 26 (14-12)
Mörk Íslands (Skot): Ásgeir Örn Hallgrímsson 5
(7), Aron Pálmarsson 5 (11), Snorri Steinn Guð-
jónsson 4 (5), Alexander Petersson 4 (12), Guðjón
Valur Sigurðsson 3/2 (5/2), Róbert Gunnarsson
2 (3), Arnór Þór Gunnarsson 2 (4), Kári Kristján
Kristjánsson 1 (2), Arnór Atlason (2).
Stoðsendingar: Aron Pálmarsson 9, Alexander
Petersson 3, Snorri Steinn Guðjónsson 2, Ásgeir
Örn Hallgrímsson 1, Arnór Atlason 1, Guðjón
Valur Sigurðsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 14/2 (39/5,
36%), Aron Rafn Eðvarðsson (1/1, 0%),
Fiskuð víti: 2 (Róbert Gunnarsson, Vignir
Svavarsson).
Mörk Frakklands (skot): Nikola Karabatic 6 (6),
Cédric Sorhaindo 5 (7), Guillaume Joli 4/4 (6/5),
Daniel Narcisse 3 (5), William Accambray 3 (7),
Luka Karabatic 2 (4), Michaël Guigou 2 (4/1),
Valentin Porte 1 (2), Thierry Omeyer (1), Xavier
Barachet (2) .
Varin skot: Thierry Omeyer 18 (44/2, 41%),
Svíþjóð - Alsír 27 - 19 (15-6)
STAÐAN
Svíþjóð 3 3 0 0 87-57 6
Frakkland 3 2 1 0 84-77 5
Egyptland 3 2 0 1 85-72 4
Ísland 3 1 1 1 74-74 3
Tékkland 3 0 0 3 73-93 0
Alsír 3 0 0 3 63-93 0
D RIÐILL
Argentína - Sádí-Arabía 32 - 20 (13-11)
Pólland - Rússland 26 - 25 (12-13)
Danmörk - Pólland 30 - 30 (16-16)
STAÐAN
Þýskaland 3 2 1 0 86-82 5
Danmörk 3 1 2 0 92-72 4
Pólland 3 2 0 1 76-77 4
Argentína 3 1 1 1 79-68 3
Rússland 3 1 0 2 78-70 2
Sádí-Arabía 3 0 0 3 55-97 0
LEIKIR DAGSINS
A: Slóvenía - Brasilía kl. 14:00
A: Síle - Hvíta-Rússl. kl. 14:00
A: Katar - Spánn kl. 16:00
B: Íran - Austurríki kl. 14:00
B: Makedónía - Króatía kl. 16:00
B: Bosnía - Túnis kl. 16:00
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
ÍSLAND FRAKKLAND 26 - 26 (14 - 12)
Í HVAÐA STÖÐUM HAFÐI ÍSLAND BETUR
HRAÐAUPPHLAUP 5 5 ● 1. BYLGJA 2-0 (+2) ● 2. BYLGJA 3-5 (-2)
● 8 Í PLÚS Á HÆGRI VÆNGUR-
INN Ísland fékk átta mörk frá hægri
vængnum, fimm úr skyttustöðunni
og þrjú úr horni en Frakkar fengu
ekki mark úr þessum stöðum.
● HEITUR Í FYRRI HÁLFLEIK
Björgvin Páll Gústavsson varði 10 af
22 skotum Frakka í fyrri hálfleiknum
þar af sex þeirra maður gegn manni.
Þetta gerir 45 prósent markvörslu.
● SNORRA-MÍNÚTUR Snorri
Steinn Guðjónsson kom að fjórum
mörkum í röð í fyrri hálfleik (2 mörk
og 2 stoðsendingar) þegar Ísland
breytti stöðunni úr 4-6 í 8-7.
● NÍU STOÐSENDINGAR Aron
Pálmarsson átti níu stoðsendingar í
leiknum, þar af þrjár inn á línu, tvær
í fyrstu bylgju í hraðaupphlaupi og
eina niður í horn.
● OF MÖRG SKREF Nikola Karab-
atic missti boltann þrisvar sinnum
eftir að hann tók of mörg skref.
-2
35% 14-18 41%
-2
7-11
-1
14-10
0
0
+5
-2-1
+3
Aron Pálmars
Mörk 5
Skot 11
Stoðsendingar 9
Eina ráð Frakka var að
reyna að klippa hann út.
MARKVARSLAN
Brottvísanir (mín.)
Lína
Hraðaupphlaup Gegnumbrot
Tapaðir boltar
Víti
Ásgeir Örn
Mörk 5
Skot 7
Stoðsendingar 1
Frábær í vörninni og
nýtti færin sín vel.
Bestu menn íslenska liðsins
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
7
D
-6
F
A
C
1
7
7
D
-6
E
7
0
1
7
7
D
-6
D
3
4
1
7
7
D
-6
B
F
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K