Morgunblaðið - 04.06.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Kiwanisklúbburinn Esja afhenti ný-
lega barna- og unglingageðdeild
Landspítalans (BUGL) fjórar millj-
ónir króna, sem safnast höfðu með
sölu á mynddiski með kvikmynd-
inni Nonna og Manna.
Fyrirhugað er að nota styrkinn
til að auka varnir og fræðslu til
handa þeim sem eru í áhættuhópi
vegna sjálfskaða og sjálfsvígs-
hættu.
Fram kemur í tilkynningu að
rannsóknir hafi sýnt að tengsla-
miðuð fjölskyldumeðferð skili þar
bestum árangri. Til að geta boðið
markvisst upp á slíka meðferð þurfi
fleiri starfsmenn að fá þjálfun.
Fyrirhugað sé að nýta styrkinn frá
Esju til að fá erlenda sérfræðinga
til að kenna og þjálfa starfsmenn
BUGL. Einnig er áætlað að nýta
styrkinn til að innleiða notkun á
hreyfiþroskamati hjá börnum 4-16
ára og til að þjálfa starfsmenn í
notkun líftemprunartækni, m.a. hjá
börnum og unglingum með ADHD.
Styrkveiting Fulltrúar Kíwanisklúbbsins
Esju og BUGL við afhendingu styrksins.
Esja styrkti BUGL
um 4 milljónir
Árlegir
Grímseyj-
ardagar
verða
haldnir 5.-7.
júní. Þá
gera Gríms-
eyingar sér
glaðan dag,
taka á móti
gestum úr
landi, bjóða upp á hnossgæti úr haf-
inu og kynna fyrir fólki grímseyska
siði og venjur. „Á þessum tíma árs
er einmitt mjög góður tími til að
heimsækja eyjuna og skoða sig þar
um. Nú er fuglalífið í miklum blóma
og auðvelt að skoða svartfuglinn,
m.a. lunda, langvíu og álku,“ segir í
tilkynningu. Margt verður í boði,
t.d. sjómannadagskrá við bryggj-
una á laugardag og leikir í fram-
haldi af henni.
Grímseyingar bjóða
heim um helgina
Grímseyjarlundi
Myndlistarsýning Kjuregej Alex-
öndru í MÍR-salnum, Hverfisgötu
105, sem ljúka átti 6. júní, hefur
verið framlengd um einn dag og
verður því opin sunnudaginn 7. júní
kl. 14-18. Fram að helginni verður
sýningin opin eins og áður, daglega
kl. 14-17. Kjuregej Alexandra Arg-
únova rekur ættir sínar til lýðveld-
isins Sakha, Jakútíu. Aðgangur að
sýningu Kjuregej er ókeypis.
Sýning framlengd
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Hvert stórafmælið rekur annað í
höfuðstað Norðurlands. Örn Ingi
Gíslason, fjöllistamaður, fagnaði sjö-
tugsafmælinu í fyrradag og á laug-
ardaginn fyllir Þór, elsta íþrótta-
félag bæjarins, tíunda tuginn.
100 ára afmæli Þórs verður
fagnað með margvíslegum hætti. Á
morgun verður afmælismót í golfi að
Jaðri og á laugardaginn verður dag-
skrá á Þórssvæðinu frá hádegi og
langt fram á kvöld, með hléi yfir
miðjan daginn. Þar verða íþrótta-
greinar félagsins kynntar, fjöldi
skemmtiatriða og öllum boðið upp á
grillsmakk.
Meðal þeirra sem koma fram er
Kristján Jóhannsson, óperusöngvari
og Þórsari, og vert að nefna sér-
staklega að um kvöldið frumflytur
Páll Rósinkrans nýtt Þórslag.
Íþróttafélagið Þór var stofnað
6. júní 1915 af nokkrum unglingum.
Stofnandinn og fyrsti formaður fé-
lagsins, Friðrik Sigurður Einarsson,
var aðeins 15 ára og með Friðrik í
félaginu frá byrjun var bróðir hans,
Einar Malmquist Einarsson, seinna
einnig formaður Þórs.
Gaman er að segja frá því að
Einar Malmquist Einarsson er
langafi núverandi landsliðsfyrirliða
Íslands í fótbolta, Arons Einars
Gunnarssonar, og Arnórs Þór Gunn-
arssonar, landsliðsmanns í hand-
bolta, sem báðir stigu fyrstu íþrótta-
skref sín í félaginu.
Örn Ingi blés í fyrrakvöld til
veislu í sal á heimili sínu, þar sem
hann rekur myndlistarskóla, og þar
hefur hann komið upp sýningu á
málverkum og ljósmyndum, sem
verður formlega opnuð á laugardag-
inn. Hún stendur fram á mitt sumar
og um helgar verður hann á staðn-
um, væntanlega með trönur og
striga. „Einhverjar myndir verð ég
með í vinnslu, ég verð líka með auð-
an striga og langar að spjalla við
fólk um það hvernig er best að byrja
á málverki heima og hver eru aðal-
atriði málsins; þetta verður eins og
skyndihjálp hjá björgunarsveit og
það er hægt að læra svakalega
margt á fimm mínútum í þessum
efnum!“
Örn Ingi gekk út úr Landsbank-
anum fyrir margt löngu; hætti þá að
vinna, eins og sagt var og snéri sér
að listinni. „Ég er ánægðastur með
að hafa aldrei misst frelsið, ég hef
aldrei fengið neina styrki og því ekki
verið með samviskubit gagnvart ein-
um né neinum,“ sagði hann í gær.
Minn eða þinn sjóhattur? er yf-
irskrift tónleika sem verða í Hofi
annað kvöld, en þeir eru tileinkaðir
sjómennsku og sjómönnum. Þar
leiða saman hesta sína Karlakór Ak-
ureyrar-Geysir, Bogomil Font og
hljómsveit. Sérstakur gestur er
Óskar Pétursson. Yfirskriftin er
öðruvísi en venjulega á tónleikum
karlakórsins enda prógrammið
mjög ólíkt því sem hann hefur áður
boðið upp á.
Kórinn flytur karlakórslög í nýj-
um búningi og popp og rokk í karla-
kórsbúningi. Syngur á íslensku,
ensku, sænsku. Lög með Bogomil
Font, Bubba Morthens, Rod Stew-
art, Hauki Mortens og Ólafi Þór-
arinssyni. Svo koma við sögu m.a.
Davíð Stefánsson, Páll Ísólfsson,
Áskell Jónsson og Sigfús Hall-
dórsson. Stjórnandi KAG, Hjörleif-
ur Örn Jónsson, hefur útsett flest
laganna fyrir kórinn á þessum tón-
leikum.
Júníus Meyvant og hljómsveit
og Teitur Magnússon eru með tón-
leika á Græna hattinum í kvöld, á
morgun verður Lára Rúnarsdóttir
með útgáfutónleika og Sixties troða
þar upp á laugardagskvöldið.
70 Örn Ingi ávarpar gesti í afmæl-
ishófi sínu á þriðjudagskvöldið.
Þórsarar fagna aldarafmæli félagsins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
40 ár í Þorpinu Þór, sem verður 100 ára á laugardaginn, var stofnaður á Oddeyri og fyrstu vellir félagsins voru þar. Félagið var á hrakhólum um nokkurt
árabil þegar aðstaðan var nánast engin en um þesssar mundir eru 40 ár síðan Þór fékk aðstöðu í Glerárhverfi og hefur uppbygging verið mikil síðustu árin.
Norður Jakki afmælisbarnsins var
vel merktur: Alltaf fór ég norður
Páll
Rósinkranz
Kristján
Jóhannsson
Að norðan Bræðurnir Aron Einar
og Arnór Þór Gunnarssynir.
Hvalasýningin við Fiskislóð var opn-
uð í febrúar eftir nokkra bið. Upp-
haflega stóð til að opna síðastliðið
sumar en nokkrar tafir urðu á því,
m.a. eftir að eldur kviknaði í einum
sýningargripnum. Safnið státar af því
að vera hið stærsta sinnar tegundar í
Evrópu en það hýsir 23 eftirlíkingar í
fullri stærð af hvalategundum sem
finnast við strendur landsins.
Aðsóknin hefur verið góð að sögn
Sædísar Guðmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Hvala Íslands, en hún
telur að 20-25 þúsund manns hafi
komið á sýninguna. Viðtökur hafi
verið vonum framar hjá Íslending-
um, sem hafi verið ívið fleiri en er-
lendir gestir en búist er við að er-
lendum gestum fjölgi þegar líður á
sumarið. Eftir þær tafir sem urðu á
opnun sýningarinnar, sem hafi einn-
ig sett markaðsstarf úr skorðum, sé
það mjög góður árangur á fyrstu
mánuðum sýningarinnar.
Skólar hafa nýtt sér sýninguna og
hefur verið tekið á móti hópum frá
þeim nær daglega. Gestir virðast al-
mennt hafa tekið sýningunni vel en
hún hefur t.d. hlotið ágæta dóma á
vefsíðu TripAdvisor.
Gagnrýnt fyrir miðaverð
Safnið hefur þó verið gagnrýnt
fyrir hátt aðgangsverð miðað við það
sem fólk hefur mátt venjast á söfn-
um í borginni. Miðaverð á hvalasýn-
inguna er 2.900 kr. fyrir einstakling
og 5.800 fyrir tveggja barna fjöl-
skyldu. Algengt miðaverð er á milli
1.000 og 2.000 kr. á safnsýningar í
Reykjavík fyrir fullorðna og u.þ.b.
tvöfalt það fyrir sömu fjölskyldu
(kostnaður er mjög breytilegur eftir
aldri barna) samkvæmt óformlegri
verðkönnun blaðamanns.
Sædís bendir hins vegar á, að ekki
sé alltaf sama þjónusta á bak við
verðið og komi Hvalir Íslands til
móts við ýmsa hópa, s.s. aldraða og
fjölskyldur, með aðgreindu verði.
Hún neitar því að verðið sé ákveðið
með erlenda ferðamenn aðallega í
huga heldur sé það sniðið fyrir
markaðinn í heild. Þá standi einnig
til að bjóða upp á leiðsögn allan dag-
inn fyrir gesti.
Glöggir gestir geta þó sparað
nokkuð við innganginn borgi þeir
uppsett verð með evrum en um-
reiknað í krónur á gengi Seðlabank-
ans þegar þetta er ritað kostar stak-
ur miði 18 evrur eða 2.664 kr. Ætli
gestir hins vegar að greiða í banda-
ríkjadal er komið álag á miðann og
25 dala miðinn kostar 3.350 krónur.
Aðspurð um misræmið í verðlagn-
ingu segir Sædís þetta líklega vera
eitthvað sem hafi verið ákveðið fyrir
einhverju síðan og málið sé í skoðun.
Hvalasafnið er í meirihlutaeigu
ITF I-sjóðs (Icelandic Tourism
Fund) Landsbréfa. Sjóðurinn hefur
m.a. einnig fjárfest í íshellinum í
Langjökli og Hestagarðinum Fáka-
seli. bso@mbl.is
Ánægð með opnun
hvalasýningarinnar
Áætlað að 20-25 þúsund manns hafi séð sýninguna
Morgunblaðið/Golli
Sýning Á sýningunni eru 23 hvala-
tegundir endurgerðar í fullri stærð.