Morgunblaðið - 04.06.2015, Síða 17

Morgunblaðið - 04.06.2015, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 Íbúar indónesísku eyjunnar Súmötru á leið til vinnu á uxakerru í grennd við eldfjallið Sinabung. Íbúum ná- lægra byggða hefur verið sagt að forða sér þaðan vegna aukinnar eldvirkni í fjallinu. Gos sem hófst þar í febrúar í fyrra kostaði 17 manns lífið og þurftu 33.000 að flýja heimili sín. Þetta er annað gosið í Sinabung-fjalli frá árinu 2010, þegar það tók að gjósa eftir að hafa legið í dvala í fjórar aldir. Indónesía er á svæði sem hefur verið nefnt „Eldhringurinn“ og liggur umhverfis Kyrrahaf. Þar eru meira en 75% eldfjalla heimsins. Eyjarskeggjum á Súmötru stafar hætta af eldgosi AFP Íbúunum sagt að flýja heimkynni sín Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hélt í gær til Brussel til að ræða skulda- vanda landsins við Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmda- stjórnar Evrópu- sambandsins. Tsipras kvaðst ætla að leggja fram „raunhæfa til- lögu“ til að leysa deiluna við lánar- drottna um himinháar skuldir Grikklands. „Ég er bjartsýnn og álít að leiðtogar Evrópusambandsins íhugi tillögur okkar af alvöru,“ sagði hann. Efnahagur Grikkja er á heljar- þröm og þeir hafa á síðustu árum fengið samanlagt yfir 240 milljarða evra lán frá ESB og Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, AGS. Á morgun eiga þeir að borga af þessum lánum lið- lega 300 milljónir evra, rúma 44 milljarða króna, og alls 1,5 milljarða evra fyrir lok júní. Mjög ólíklegt er að það takist og óvíst hver viðbrögð lánardrottna verða þá. Á mánudagskvöld áttu leiðtogar Þýskalands og Frakklands fund í Berlín með lánardrottnum Grikkja, Mario Draghi, yfirmanni Seðla- banka ESB, og Christine Lagarde, yfirmanni AGS. Náðist eining um lausn sem boðin yrði Grikkjum en ekki hefur verið upplýst hver hún er. Reynt að leysa vanda Grikklands  Eiga að greiða stóra afborgun á morgun Alexis Tsipras Meira en 10.000 liðsmenn Ríkis íslams, samtaka íslamista, hafa beðið bana í loft- árásum Banda- ríkjanna og fleiri landa frá því að þær hófust fyrir níu mánuðum, að sögn Antonys Blinken, að- stoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Bandaríkjastjórn hefur verið gagnrýnd fyrir að hefja ekki landhernað gegn samtökunum en Blinken lagði áherslu á að loftárás- irnar hefðu borið „verulegan ár- angur“. Yfirráðasvæði samtakanna í Írak og Sýrlandi hefðu minnkað um 25% og mörg af vopnum þeirra hefðu verið eyðilögð. ÍRAK OG SÝRLAND Meira en 10.000 íslamistar fallnir Antony Blinken Ríkisstjórn Tékklands samþykkti í gær að leggja fram frumvarp til laga um bann við reykingum á kaffi- og veitingahúsum frá og með árinu 2016. Slíkt bann hefur verið sett í mörgum Evrópulöndum. Reykingamenn sem brjóta bann- ið verða sektaðir um 5.000 tékk- neskar krónur (tæpar 27.000 ís- lenskar) en veitingastaðirnir gætu þurft að greiða tíu sinnum hærri sekt, verði frumvarpið að lögum. Samkvæmt Eurobarometer- könnun frá árinu 2012 reykja um 29% Tékka. Meðaltalið í Evrópu er 28%. TÉKKLAND Vill banna reykingar á veitingastöðum Módel: Kristjana Dögg Jónsdóttir RayBan model: ClubmasterOPIÐ Í DAG, FIMMTUDAG, FRÁ KL. 10 – 24 20% afsláttur af öllum vörum MIÐNÆTUROPNUN Í SMÁRALIND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.