Bókasafnið - 01.05.2013, Síða 3
bókasafnið 37. árg. 2013Efnisyfirlit
4 Anna María Sverrisdóttir
Ritrýni og gildi hennar:
staða Bókasafnsins með hliðsjón
af Matskerfi opinberra háskóla.
10 Hrafn H. Malmquist
Tæknivæðing þekkingar
15 Ingibjörg S. Sverrisdóttir
Bókasafnalög 2012 – eitt bókasafnakerfi
18 Hrafn A. Harðarson og
Margrét Sigurgeirsdóttir
Um rafbækur og bókasöfn
22 Sólveig Þorsteinsdóttir
Sérfræðibókasöfn á breyttum tímum
28 Þorvaldur Bragason
Landræn gögn á Íslandi:
um skort á heildstæðri varðveislu-
stefnu og þverfaglegu námi
32 Óli Gneisti Sóleyjarson
Stafræn endurgerð texta: höfundaréttur
og lýðvistun
36 Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar
WikiLeaks og frelsi til upplýsinga:
rannsókn á umfjöllun þriggja íslenskra
fréttavefmiðla um WikiLeaks
42 Jónella Sigurjónsdóttir
Skjalastjórn frá sjónarhóli almennra
starfsmanna
48 Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
Flökkusögur og fúlar kellur - Þekkir þú
ekki einhvern sem getur svindlað fyrir þig?
50 Dóróthea J. Siglaugsdóttir
Á bókasafninu slær hjarta skólans
52 Kristján Sigurjónsson - Bækur og líf
Bókahlátur
54 Kristín Indriðadóttir
Minningarorð um
Kristínu Gústafsdóttur
55 Einar Ólafsson
Minningarorð um Önnu Torfadótur
57 Afgreiðslutími bókasafna
Frá ritstjóra
Nú sem áður birtist í Bókasafninu efni af margvíslegu tagi: frumsamin ljóð, almennar greinar, flökkusaga úr nútímanum, pistill um Bókasafn
Tækniskólans, bókaumfjöllun sem kitlar hláturtaugarnar og að síðustu tvær greinar sem byggjast á lokaverkefnum nemenda í bókasafns- og
upplýsingafræði. Önnur þeirra er byggð á BA-rannsókn á umfjöllun þriggja íslenskra fréttavefmiðla um hin umdeildu WikiLeaks samtök. Hin
greinin er ritrýnd og byggist á MLIS-rannsókn þar sem greint er frá viðhorfum og þörfum almennra starfsmanna til rafrænnar skjalastjórn-
unar og helstu áhrifaþætti. Þetta er í annað sinn sem ritrýnd grein af þessu tagi er birt í tímaritinu frá 2011 þegar fyrst var ákveðið að birta
ritrýndar greinar í bland við aðrar. Ritnefnd ætlar að halda áfram á þeirri braut sem sú fyrri lagði grunn að og stefnir að því að efla ritrýni enn
frekar með því að hvetja fólk til að senda inn meira af fræðigreinum. Í því sambandi þótti ritstjóra við hæfi að skrifa grein í þetta tölublað um
fræðiskrif, ritrýni og gildi hennar fyrir Bókasafnið, fagstéttina og háskólasamfélagið.
Aðrar greinar í þessu blaði taka á málefnum sem hafa verið ofarlega á baugi í upplýsingamálum síðustu misserin. Þótt viðfangsefni þeirra
sé um margt ólíkt má segja að rauði þráðurinn í flestum þeirra sé upplýsingatækni og hagnýting, frelsi til upplýsinga á Netinu og opið aðgengi
að vísindaefni. Má þar nefna grein um varanleg varðveislusöfn rafræns efnis eins og Rafhlöðuna og hugbúnað sem styður þau, umræðuna um
mikilvægi opins aðgangs fyrir vísindasamfélagið sem stuðlar meðal annars að því að allir hafi jafnan aðgang að vísindum og þekkingu þeim
að kostnaðarlausu. Mörgum er hugleikið hvernig upplýsingatækni hefur haft áhrif á starfsemi bókasafna og starfsmanna þeirra. Staða sér-
fræðibókasafna er rædd með hliðsjón af tæknilegum og samfélagslegum breytingum þar sem niðurskurður hefur sett sitt mark á starfsemi
þeirra eftir efnahagshrunið 2008. Þá er fróðleg grein og þörf umræða um varðveislu fyrir landfræðileg gögn og gagnaöryggi á Íslandi. Raf-
bækur koma einnig við sögu, bæði í tengslum við bókasöfn og stafræna endurgerð texta. Að síðustu er ein grein um aðdraganda að endur-
skoðun laga um bókasöfn í landinu, en eins og flestum er kunnugt tóku ný bókasafnalög gildi í árslok 2012.
Ritnefnd hefur unnið að nokkrum breytingum í útgáfumálum Upplýsingar frá því hún hóf störf síðastliðið haust. Fregnir hóf aftur göngu
sína í formi bloggsíðu og vefsíða Bókasafnsins sem er rekin af Upplýsingu var endurskoðuð og uppfærð af ritnefnd. Umsjón með vefsíðunni
er nú í höndum ritnefndar, sem gefur henni aukið svigrúm til að vinna í henni þegar þörf krefur. Ábendingar um það sem má betur fara eru
því vel þegnar. Jafnframt er minnt á að Bókasafnið og Fregnir eru aðgengileg á Timarit.is og á vef Upplýsingar.
Fyrir hönd ritnefndar langar mig að þakka öllum þeim sem lögðu til efni í blaðið svo og ónefndum ritrýni og öðrum álitsgjöfum fyrir þeirra
umsagnir. Þetta er fyrsta tölublaðið sem ég ritstýri og er það von mín að lesendur verði ánægðir að loknum lestri.
Anna María Sverrisdóttir
Útgefandi: Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræða
Lyngási 18 | 210 Garðabæ | Sími 864-6220 | Netfang: upplysing@upplysing.is
Veffang: www.upplysing.is
Prentun: GuðjónÓ – vistvæn prentsmiðja
©Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýsingafræða áskilur
sér rétt til að birta og geyma efni tímaritsins Bókasafnið
á rafrænu formi. Óheimilt er að afrita á nokkurn hátt efni
tímaritsins að hluta eða í heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritnefndar.
Forsíðumynd: Stærðfræðibók eftir Sigfríði Örnu Pálmarsdóttur og myndsögubók eftir Ragnheiði Ágústu Árnadóttur. Bóklistaverkin eru búin til af
nemendum á Hönnunarbraut í Tækniskólanum. Verkin eru unnin í áfanga AHL213 – Myndræn tjáning og kallast pappírsbrot sem nemendur vinna
undir stjórn Önnu Snædísar Sigmarsdóttur kennara. Ljósmyndin er eftir Helga Sigurbjörnsson, 2013.
Bókasafnið • 37. árgangur
maí 2013 • ISSN 0257-6775
Ritnefnd:
Anna María Sverrisdóttir, ritstjóri: bokasafnið.timarit@gmail.com
Kristín Ingunnardóttir, gjaldkeri: kingunnar@gmail.com
Erlendur Már Antonsson, umsjón með vef Fregna og Bókasafnsins:
erlendur@landsbokasafn.is
Helgi Sigurbjörnsson, umsjón með vef Fregna og Bókasafnsins:
helgi.sigurbjornsson@mk.is
Brynhildur Jónsdóttir: kopsson@simnet.is
Ólína Rakel Þorvaldsdóttir: olina@hefkapital.is
Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í
Library & Information Science Abstracts (LISA)