Bókasafnið - 01.05.2013, Page 42

Bókasafnið - 01.05.2013, Page 42
42   Útdráttur Greinin er byggð á rannsókn sem gerð var sem lokaverkefni til MLIS-gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Ís- lands. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að komast að því hvort innleiðingarferli á rafrænu skjalastjórnarkerfi eða aðrar breytur hefðu áhrif á viðhorf starfsfólks gagnvart þeim. Hins vegar að komast að því hvaða þarfir starfsfólk ríkisstofn- ana hefur við flokkun skjala og hvort munur væri á markmið- um starfsfólks við utanumhald skjala og markmiðum með hinni opinberu skjalastjórn stofnunarinnar. Notaðar voru bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Megin- dlega rannsóknin fólst í að leggja spurningalista fyrir starfs- fólk þriggja ríkisstofnana sem allar nota sama skjalastjórnar- kerfið. Eigindlega rannsóknin fólst í tilviksathugun. Opin við- töl voru tekin við átta starfsmenn einnar af stofnunum þrem- ur, ein þátttökuathugun fór fram auk greiningar fyrirliggjandi gagna varðandi innra og ytra umhverfi skjalamála stofnunar- innar. Niðurstöðurnar benda til þess að innleiðing hafi áhrif á viðhorf starfsmanna gagnvart rafrænum skjalastjórnarkerf- um. Aðrir þættir sem virðast hafa áhrif eru þátttaka starfs- manna í áframhaldandi þróun skjalamála, fræðsla starfs- manna varðandi skjalamál og starfshættir stjórnenda. Ekki virtist grundvallarmunur á markmiðum starfsfólks við flokkun og utanumhald skjala og markmiðum með hinni opinberu skjalastjórn stofnunarinnar þó svo að starfsfólk kysi sér oft aðrar leiðir en verklagsreglur mæltu með. Inngangur Skjalastjórn hefur lengi verið við lýði og má segja að þar sem viðskipti hafa verið stunduð hefur skjalastjórn í einhverjum mæli verið nauðsynleg (Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2006a). En eftir því sem upplýsinga- og þekkingarsamfélaginu hefur vaxið fiskur um hrygg hefur mikilvægi skjalastjórnar aukist. Til þess að einfalda utanumhald upplýsinga hafa víða verið innleidd rafræn skjalastjórnarkerfi (skammstafað RSSK). Þetta eru gjarnan hópvinnukerfi en í verkahring skjalastjóra er að skipuleggja skjölin innan kerfanna. Við skipulagningu skjala innan RSSK er nauðsynlegt að út- búa skjalaflokkunarkerfi sem raðar öllum skjölum skipulags- heildarinnar á rökrænan hátt. Skjöl sem fjalla um svipað efni þurfa að geymast saman og eiga notendur að geta sótt upp- lýsingar í skjölin þegar á þarf að halda og án erfiðleika (Robek o.fl., 1995). Öll kerfi standa og falla með fólkinu sem á að nota þau. Inn- leiðing er stór hluti af velgengni RSSK innan skipulagsheildar en oft misheppnast hún (Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2007). Þegar innleiðingarferlið er skoðað virðast þrír þættir vera mikilvægastir, eigi innleiðing RSSK að heppnast. Í fyrsta lagi þurfa stjórnendur að sýna verkefninu stuðning með því að nota kerfið sjálfir ásamt því að hvetja starfsfólkið áfram og umbuna því. Í öðru lagi er þátttaka notenda hvað varðar kröfugreiningu, val á kerfi og þróun á því mikilvæg. Í þriðja lagi skiptir leiðsögn og þjálfun máli, bæði varðandi skjala- stjórn skipulagsheildarinnar í víðu samhengi og það RSSK Jónella Sigurjónsdóttir útskrifaðist með MLIS-gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands í júní 2010. Hún starfar sem skjalastjóri hjá Umferðarstofu. Skjalastjórn frá sjónarhóli almennra starfsmanna Ritrýnd grein

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.