Bókasafnið - 01.05.2013, Qupperneq 55
55
bókasafnið 37. árg. 2013
Anna Torfadóttir var fædd í Reykjavík 25. janúar 1949. Hún
lauk BA-prófi í bókasafnsfræði og almennri bókmenntasögu
frá Háskóla Íslands 1976 og meistaragráðu í stjórnun frá Uni-
versity of Wales, Aberystwyth, árið 1995. Fyrstu tvö árin eftir
að hún lauk prófi í bókasafnsfræði starfaði hún á Amtsbóka-
safninu á Akureyri. Í viðtali sem birtist við hana í Bókasafninu
vorið 2012 sagði hún: „Það var mikil gæfa fyrir mig að lenda
einmitt þar, sannkallað háskólanám, því Amtsbókasafnið var
og er blanda af rannsóknarbókasafni og almenningsbóka-
safni“.
Í nóvember 1978 hóf Anna störf í Bústaðasafni Borgar-
bókasafns Reykjavíkur en tók svo 1. júní 1979 við stöðu deild-
arstjóra í aðalsafni, sem þá var í Þingholtsstræti 29a. Í fyrr-
nefndu viðtali lýsti hún því hvernig tímarnir voru að breytast.
Ungir bókasafnsfræðingar voru að taka við grónum stofnun-
um, í Bústaðasafni var mikil gróska, starfsmenn í yngri kant-
inum og útibússtjórar höfðu verið þrír ungir bókasafnsfræð-
ingar. Í aðalsafni var allt í fastari skorðum, „þannig að það var
erfi tt fyrir mig að koma inn, rétt orðin þrítug, og fara að hrófl a
við“, segir hún í viðtalinu. Eftir á að hyggja, sagði hún, var
þetta „ef til vill erfi ðasta árið á mínum vinnuferli“. En ung
kona var þá orðin borgarbókavörður, Elfa-Björk Gunnars-
dóttir, og hjá henni fékk Anna góðan stuðning.
Það má segja að húsnæðismálin hafi löngum staðið þróun
Borgarbókasafns fyrir þrifum, ekki síst í fallega húsinu við
Þingholtsstræti þar sem aðalsafnið var til húsa. Þegar skriður
komst á málið um miðjan tíunda áratuginn kom það í hlut
Önnu að hafa umsjón með því ásamt þáverandi borgarbóka-
verði Þórdísi Þorvaldsdóttur. Anna tók svo við starfi borgar-
bókavarðar í ársbyrjun 1998 en þá var hafi n vinna við að
breyta húsinu að Tryggvagötu 15, sem fékk nafnið Grófarhús,
í bókasafn í sambýli við Borgarskjalasafn og Ljósmyndasafn
Reykjavíkur. Þar lagði hún áherslu á að saman færi hentug
útfærsla og fallegt útlit. Hún var ákafl ega stolt af listaverkun-
um sem fl éttað var inn í innréttingarnar á fyrstu hæð hússins.
„Ég hef alltaf talið að myndlist eigi að vera sem víðast í um-
hverfi nu“ sagði hún. Og í samræmi við það hafði hún frum-
kvæði að því að listamenn voru fengnir til að skreyta nýja
bókabílinn sem var tekinn í notkun árið 2001 og sögubílinn
Æringja sem rann af stað árið 2007. Og útlán á listaverkum
hófust í Artótekinu sem tók til starfa árið 2004.
Reykjavík varð ein af níu menningarborgum Evrópu árið
2000. Anna sýndi því verkefni mikinn áhuga og eitt afsprengi
þess sem enn lifi r er bókmenntavefur Borgarbókasafns, bok-
menntir.is, „ein af skrautfj öðrunum okkar“ eins og Anna orð-
aði það sjálf. Og Borgarbókasafn tók mikinn þátt í metnaðar-
fullu umsóknarferli sem leiddi til þess að Reykjavík var út-
nefnd Bókmenntaborg UNESCO í ágúst 2011.
„Ég hef stundum sagt að almenningsbókasafn væri starfs-
mennirnir, safnkosturinn og húsnæðið eða rýmið í þessari
röð“ sagði Anna í áðurnefndu viðtali. Og átti reyndar ekki
bara við rýmið innan veggja bókasafnsins, „við lítum æ meir á
alla borgina sem almenningsrými þar sem Borgarbókasafn er
mótandi og tekur þátt“. Og undir hennar stjórn fór Borgar-
bókasafnið í útrás, fyrirmyndarútrás ef svo má segja, sögubíll-
inn Æringi geysist nú um alla borg, starfsmenn bókasafnsins
leiða fólk í bókmenntagöngur um stræti borgarinnar, inn í
kirkjugarða og krár og í skólum og leikskólum hófust menn-
ingarmót á vegum bókasafnins. Inni á söfnunum er barna-
starf, ritsmiðjur, fj ölskyldumorgnar, leshringir, prjónaklúbbar,
söguhringir kvenna og svo mætti áfram telja, sumt með
gamlar rætur svo sem barnastarfi ð, annað nýtt. Anna hafði
sterkar skoðanir og lá ekki á þeim, laus við yfi rborðsmennsku.
Hún var stjórnsöm en um leið var henni lagið að láta starfs-
fólkið hafa frumkvæði, þannig að uppbygging og þróun
Borgarbókasafns að undanförnu og æ fj ölbreyttari starfsemi
þess var ekki bara hennar verk, þetta var og er verk okkar allra
starfsmanna safnsins. Og svo er Borgarbókasafnið ekki bara
eitt safn með útibúum heldur samanstendur það af sex söfn-
um, það er í senn bókasafn og bókasöfn sem felur í sér jafnt
samræmi sem fj ölbreytni.
Minning
Anna Torfadóttir 1949-2012