Bókasafnið - 01.05.2013, Side 56
56
bókasafnið 37. árg. 2013
En það voru ekki bara húsnæðimálin, sem Anna fékk í fang-
ið sem deildarstjóri og síðan borgarbókavörður, heldur einnig
tæknimálin, tölvuvæðingin. Þar var Anna í fararbroddi. Hún sat
í stjórn Landskerfi s bókasafna frá 2002 til haustsins 2012 og
beitti sér mjög fyrir því að bókasöfn landsins tækju í notkun
eitt sameiginlegt bókasafnskerfi , Gegni. Einnig sat hún í stjórn
Landsaðgangsins hvar.is sem er ekki síður merkilegt verkefni á
sviði upplýsingafræða.
Þegar tækifæri bauðst til að fara í meistaranám í fj arnámi
skráði Anna sig til náms við Háskólann í Aberystwyth í Wales
og þaðan lauk hún prófi í stjórnun 1995. Ritgerð hennar fj allaði
um ákvarðanatöku og hvernig nýta má upplýsingar til að
undirbyggja ákvarðanir. Anna tók virkan þátt í félags- og
fræðslustarfi stéttarinnar og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Bókavarðafélag Íslands og Félag bókasafnsfræðinga og
síðar í sameinuðu félagi, Upplýsingu, en þar var hún gerð að
heiðursfélaga á aðalfundi félagsins vorið 2012. Um árabil sinnti
hún kennslu í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Ís-
lands og átti sæti í ýmsum nefndum og starfshópum varðandi
starfsemi og þróun á vettvangi bókasafns- og upplýsinga-
fræða. Hún sat í stjórn Landsbókasafns Íslands - Háskólabóka-
safns 1997 til 1998 og var varamaður í stjórn safnsins um árabil.
Sem borgarbókavörður hafði Anna mikil tengsl við almenn-
ingsbókasöfn erlendis, einkum á Norðurlöndum, og fylgdist
vel með þróun og nýjungum í starfsemi þeirra. Á árunum 2010
til 2012 tók Borgarbókasafnið ásamt Amtsbókasafninu á Akur-
eyri og Bókasafni Kópavogs þátt í samstarfsverkefni bókasafna
á öllum Norðurlöndum sem kallað var Next Library eða Nordic
Camps, verkefni sem að mörgu leyti var í anda Önnu, djarft og
lífl egt hugarfl æði. Þetta var liður í hugmyndavinnu um þróun
almenningsbókasafnanna til framtíðar. Það er nærtækt að líta
á hinar öru tæknibreytingar við framsetningu lesefnis, svo sem
rafbókavæðinguna, sem ógn við bókasöfnin. En þegar bóka-
safnið er orðið að lifandi upplýsinga- og menningarmiðstöð
býr það ekki við þá ógn. Á þeirri vegferð skildi Anna við Borgar-
bókasafn Reykjavíkur.
Anna var í fararbroddi á vegferð almenningsbókasafnanna
til nýrra tíma þegar hún veiktist. Hún var á miðri leið og hélt
áfram svo lengi sem heilsan leyfði. Vegna veikinda lét hún af
störfum sem borgarbókavörður 1. september 2012. Hún lést
tveim mánuðum seinna, 30. nóvember.
Einar Ólafsson
Mun erfi ðara
en maður gæti haldið.
Bara að vera,
í augnablikinu, núinu
ósnortin
af væntingum,
laus
við fi ngraför annarra.
Tær
eins og glerrúða
hleypi birtunni
í gegn,
nýt ylsins.
Ingunn V. Sigmarsdóttir
Vera
Minning