Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Síða 6
föstudagur 16. janúar 20096 Fréttir
Sandkorn
n Guðni Ágústsson, fyrrverandi
formaður Framsóknarflokks-
ins, hefur farið með löndum
undanfarið. Hann opnaði sig
þó í viðtali við Sunnlenska
fréttablaðið í vikunni og nefndi
landráð í
samhengi
við aðgerð-
arleysi ríkis-
stjórnarinn-
ar. „Stærstu
mistökin, og
á þeim vakti
ég athygli í
fjölmiðlum
strax, voru þegar Brown setti
hryðjuverkalögin á íslensku
bankana í Bretlandi þann 8.
október og seinna kom í ljós að
lögin náðu yfir lýðveldið sjálft,
Seðlabankann og ríkisstjórn-
ina. Að bregðast ekki kröftug-
lega við þessari árás stappar
trúlega nærri því að vera land-
ráð, trúlega af vangá eða hugs-
unarleysi.“
n Stríð Ara Edwald, forstjóra
365, og mótmælenda tók
óvænta stefnu í gær. Ari hafði
fjallað um það áfall sem starfs-
fólk Stöðvar
2 varð fyrir á
gamlársdag
þegar mót-
mælendur
ruddust þar
inn. Sagði
forstjórinn
að sumir
starfsmanna
hans hefðu misst svefn vegna
aðfararinnar og margir fengið
áfall. Líkti hann reynslu þeirra
við þá sem fórnarlömb nauð-
gana ganga í gegnum. Reiði
braust út vegna þeirra orða
forstjórans sem í gær bað fórn-
arlömb nauðgana afsökunar á
samlíkingunni.
n Sú kenning er uppi að
heimastjórnararmur Sjálf-
stæðisflokksins undir andlegri
leiðsögn Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra hyggist gera
Geir H.
Haarde
formanni
skráveifu
á lands-
fundinum
eftir rúma
viku. Um
það er rætt
að Davíðs-
armurinn muni hvetja lands-
fundarmenn til þess að kjósa
annan en Geir í formanns-
stólinn en allir eru jú í fram-
boði til formanns. Hermt er að
hvatt verði til þess að setja nafn
Bjarna Benediktssonar, verð-
andi ráðherra, á kjörseðilinn og
freista þess að veikja Geir.
n Mikael Torfason, bókaútgef-
andi og fyrrverandi ritstjóri DV,
gerir víst hosur sínar grænar
fyrir Ragn-
hildi Magn-
úsdóttur,
dagskrár-
gerðarkonu
á Bylgjunni.
Heyrst hefur
að þau hafi
farið á nokk-
ur stefnu-
mót en sambandið sé enn á
byrjunarstigi. Hafa fjölmiðla-
dúfurnar aðeins hist í stutt-
an tíma enda ekki langt síðan
Mikael skildi við barnsmóður
sína, Maríu Unu Ólafsdóttur.
„Ég var eiginlega gapandi yfir
þessu,“ segir 33 ára atvinnulaus
karlmaður í Kópavogi sem fékk
óvænt svör frá bæjarfélaginu þegar
hann leitaði á náðir félagsþjónustu
þess í fjárhagskröggum sínum.
Manninum, sem óskaði nafnleynd-
ar vegna barna sinna og verður hér
eftir kallaður Geir, var sagt að hann
gæti ekki fengið fjárhagsaðstoð þar
sem brúttólaun hans voru yfir fjár-
hagsaðstoðarkvarða bæjarins. Fé-
lagsráðgjafi bæjarins benti honum
því næst á að hann gæti drýgt at-
vinnuleysisbætur sínar með því að
hætta að leigja íbúð sína í Kópavogi
og leigja þess í stað herbergi í iðn-
aðarhúsnæði í Reykjavík. Það er að
segja bærinn gat ekki aðstoðað
hann og ætlaði að færa hann yfir á
Reykjavík. DV hefur afrit af tölvu-
póstsamskiptum Geirs við félags-
þjónustu bæjarins undir höndum.
Sagt upp án uppsagnarfrests
Geir missti vinnu sína í haust þar
sem honum var sagt upp án upp-
sagnarfrests. „Ég hafði verið veik-
ur í svolítinn tíma, þeir sendu mér
uppsagnarbréf þar sem þeir sögðu
að ég ætti ekki að koma aftur. Ég fór
á þeirra fund en á þeim tímapunkti
var allt hrunið hjá þessu fyrirtæki
sem hafði starfað mest fyrir Lands-
bankann. Ég ákvað því að láta þar
við sitja enda var ég á þessum tíma í
rannsóknum hjá spítalanum vegna
magakvilla sem hafði haldið mér frá
vinnu löngum stundum. Útkoman
úr því var að hann var tilkominn
vegna álags í vinnunni. Ég ákvað
því að taka því rólega og skráði mig
á atvinnuleysisbætur.“
Aðeins hálfar bætur
Þar sem Geir hafði unnið tæpa
sex mánuði á árinu fékk hann ekki
nema hálfar atvinnuleysisbætur.
Það þýðir tæpar 40 þúsund krón-
ur. „Þá sá ég ekki fram á að eiga
fyrir leigu og leitaði því til félags-
málaþjónustu Kópavogs. Þar var
enga aðstoð að fá þar sem ég hafði
samkvæmt tveimur síðustu launa-
seðlum farið yfir fjárhagsaðstoðar-
kvarða bæjarins með brúttólaun,“
segir Geir. Brúttótekjur hans voru
yfir 100.950 króna viðmiðinu, að-
eins 1.070 krónum á seinni launa-
seðlinum, og því var enga aðstoð
að fá.
Bent á að leigja herbergi í
Reykjavík
Ljóst var að aðstæður Geirs voru
afar slæmar og var hann þá spurð-
ur hvort mögulegt væri fyrir hann fá
inni hjá fjölskyldu eða ættingjum.
Í svari sem honum barst frá Kópa-
vogsbæ segir: „Ég geri mér grein
fyrir því að þetta er mjög lág útborg-
un en eina sem mig dettur í hug, er
hvort þú eigir einhvern lánamögu-
leika hjá banka með tímabundna
aðstoð á meðan þú ert atvinnulaus
eða hvort foreldrar eða ættingjar
eru tilbúnir að styðja við þig tíma-
bundið hvort sem það er að bjóða
þér í mat eða eitthvað slíkt.“ Þá var
honum síðar í sama pósti bent á
að hægt er að leigja herbergi með
öllum nauðsynjum en sameigin-
legri salernisaðstöðu fyrir 55 þús-
und krónur á mánuði. Eftir húsa-
leigubætur myndi það veita honum
auka 35 þúsund krónur milli hand-
anna. Það húsnæði sem þar er til-
greint er í 110 Reykjavík.
Með tvö börn
Geir hefur leigt íbúð í Kópavogi
ásamt öðrum einstaklingi þar sem
hvor um sig borgar 80 þúsund krón-
ur í leigu á mánuði. „Ég á tvö börn
sem ég fæ aðra hverja helgi og þarf
að geta boðið þeim upp á meira
en eitt herbergi einhvers staðar úti
í buska. Fyrir utan það að ég fengi
aldrei krakkana ef ég gæti ekki boð-
ið betur. Sá möguleiki var því úti-
lokaður,“ segir Geir.
Á ekki að vísa fólki milli sveit-
arfélaga
„Nú veit ég ekki forsöguna í þessu
máli en það er afar mikilvægt að
sveitarfélögin fari eftir þeim fjár-
hagsaðstoðarreglum sem þeim er
gert að fara eftir. Og það sé ekki ver-
ið að vísa milli sveitarfélaga,“ segir
Aðalsteinn Sigfússon, félagsmála-
stjóri Kópavogsbæjar, þegar hann
er spurður út í svörin sem Geir fékk
frá bænum. „Hvert sveitarfélag á
auðvitað að sinna réttindum sinna
íbúa og það er algjört grundvallar-
atriði. En að vísa einstaklingi milli
sveitarfélaga kemur ekki til greina.
En ef það er gert undir einhverjum
kringumstæðum er ekki rétt að gera
slíkt,“ bætir Aðalsteinn við.
Lifir á 20 þúsund krónum
1. desember öðlaðist Geir rétt á
því að fá mismun greiddan frá
Kópavogsbæ ef brúttóupphæð at-
vinnuleysisbóta hans færi ekki yfir
100.950 krónur. Þar sem hann fær
aðeins hálfar atvinnuleysisbætur
var hann gjaldgengur. Það þýðir að
hann fær nú með uppbótinni frá
Kópavogsbæ 110 þúsund krónur á
mánuði. „Þegar ég fæ peningana
um mánaðamótin borga ég leiguna
mína og þarf síðan að teygja 20
þúsund krónur út mánuðinn.“ Það
hefur hins vegar reynst honum
ómögulegt í núverandi árferði þeg-
ar allt hefur hækkað og hefur hann
þurft að fá lánað hjá fjölskyldunni
til að komast af.
„Ég er búinn með þennan 20
þúsund kall, og mánuðurinn er
hálfnaður,“ segir Geir. Óvíst er með
framhaldið þar sem reglur hafa nú
breyst. Núna eru atvinnuleysisbæt-
ur hans tekjutengdar og hljóða nú
upp á rúmlega 100 þúsund krónur,
hann efast því um að fá frekari að-
stoð frá félagsþjónustunni.
Með skuldabagga á bakinu
Eins og áður segir á Geir tvö börn
sem búa úti á landi. Hann hafði
verið með bíl á leigusamningi frá
því í ársbyrjun 2007 sem hann hef-
ur þurft að skila þar sem engin leið
er fyrir hann að halda honum. Að
eigin sögn situr hann uppi með ein-
hverjar milljónir í skuld vegna bíls-
ins. Bíllaus getur hann ekki nálgast
börnin sín, það er vandamál sem
hann segist enn eiga eftir að leysa.
„Þegar ég fæ peningana um mánaðamótin
borga ég leiguna mína og þarf síðan að teygja
20 þúsund krónur út mánuðinn.“
SiguRðuR MikAeL jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Vísað á Reykjavík geir fékk þau svör að
hugsanlega væri hagkvæmast fyrir hann að flytja
úr Kópavogi í leiguherbergi í reykjavík. Ekki rétt að
gera slíkt segir félagsmálastjóri Kópavogsbæjar.
Mynd gunnAR gunnARSSon
33 ára atvinnulaus karlmaður í Kópavogi er óánægður með svör sem hann fékk frá
félagsþjónustu bæjarins í haust. Bærinn gat ekki orðið við beiðni hans um fjárhags-
aðstoð og benti honum á hagstætt leiguherbergi í Reykjavík. Það á ekki að vísa á
milli sveitarfélaga, segir Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogsbæjar.
FÁTÆKUM BEINT
TIL REYKJAVÍKUR