Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Blaðsíða 18
föstudagur 16. janúar 200918 Fókus u m h e l g i n a Einar Valur Scheving er einn af hæfileikaríkustu tónlistarmönnum okkar þjóðar og sonur hins þekkta Árna Scheving sem lést fyrir rúmu ári. Einar, sem er afar hæfileikaríkur í djassheiminum, fer yfir á nýjan vettvang núna en hann er að taka þátt í Eurovision í fyrsta skipti. Lag hans Fósturjörð verður flutt um helgina af ekki ómerkari söngvara en Páli Rósinkranz.Pönkari með prestsdrauma myndbandsverk eftir Curver Curver Thoroddsen sýnir tvö ný myndbandsverk eftir sig á laugardaginn í Kling og Bang gallerí. Verkin heita untitled shaving piece og Empire/fatherhood og vann hann þau í new York í fyrra þar sem hann hefur verið búsettur síðastliðin tvö ár. sýningin mun einungis standa þennan dag og mun standa frá 18 til 20 Einnig verður sýning Baldurs geirs Bragasonar, Yfirborðskennd, opin á meðan. aðgangur er ókeypis. Nýtt íslenskt leikverk, Falið fylgi eft- ir Bjarna Jónsson leikskáld, verður frumsýnt fyrir Leikfélag Akureyrar í Rýminu í kvöld. Falið fylgi var samið af höfundin- um sérstaklega fyrir leikfélagið og er verk sem endurspeglar samtímann eins og fólk þekkir hann í dag. „Leikritið fjallar um manneskju, Ellen, sem er að fara í kosningabar- áttu sem frambjóðandi í prófkjöri. Hún er að opna kosningaskrifstofu og gerist verkið í raun í aðdraganda opnunarinnar. Hún fær til sín krakka til að vinna fyrir sig sem eru, þegar allt kemur til alls, ekki nógu sam- hentir. Svo aukast vandræðin þegar dularfullur karl reynir að koma sér niður þarna á skrifstofunni. Hann er í raun lykillinn að sögu Ellenar og er ekkert mjög hrifinn af því sem hún er að gera,“ segir Bjarni Jónsson, höfundur verksins. „Svo kemur rest- in bara í ljós.“ Bjarni skrifaði leikritið fyrir nokkrum mánuðum en breytti og bætti í kjölfar efnahagshrunsins en þá breyttist íslenskt samfélag vægast sagt. „Það voru alveg svakaleg tíma- mót þar og þá þurfti að endurskoða allt. Sumt tók ég út því það passaði ekki lengur við,“ segir Bjarni. Leikstjórn er í höndum Jóns Gunnars Þórðarsonar og leikarar eru Anna Svava Knútsdóttir, Guð- mundur Ólafsson, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir og Viktor Már Bjarnason og mun Andrea Gylfadóttir sjá um tónlistina. Nýtt íslenskt samtímaverk, Falið fylgi, frumsýnt: Leiftrandi húmor fyrir norðan sýningaropnun í 101 projeCts Listamaðurinn Davíð Örn Halldórs- son verður með sýningaropnun í 101 Project næstkomandi laugar- dag. Davíð er útskrifaður frá Mynd- listadeild LHÍ árið 2002 og hefur unnið við óhefðbundna málaralist síðan. Í stað málningar notar hann skipalakk, úðabrúsalakk, tússliti sem hann notar á fundnar tréplötur, pappa eða beint á veggi, auk þess að nota litrík límbönd á veggi. Verk sem eru unnin út frá fyrirbærum frá fyrri tímum. Davíð sýnir nú verk unnin á árunum 2007 til 2008. Sýningin opnuð klukkan 18 og stendur til 22. febrúar næstkomandi. ljósmyndir úr lofti Sýningin Abstrakt náttúra eftir Thomas Graics stendur nú yfir í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykja- víkur. Thomas er ljósmyndari og flugmaður sem hefur komið marg- oft til landsins í leit að myndefni. Ljósmyndirnar eru allar teknar úr lofti og sýna form og mynstur sem finna má í náttúrunni ásamt þokukenndri birtu sem einkennir myndirnar. Ljósmyndarinn tekur á móti gestum og segir frá sýning- unni á laugardaginn milli 15 og 17. Aðgangur er ókeypis. metsala á kardemommu- bæinn Uppselt er á fyrstu 25 sýningarnar á Kardemommubænum en enn er mánuður þangað til leikritið verður frumsýnt. Verkið sem verður frumsýnt 21. febrúar næstkomandi er í leikstjórn Selmu Björnsdóttur og ekkert lát virðist á vinsældum hins ástsæla fjölskyldusöngleiks Thorbjörns Egner. Þetta er í fimmta sinn sem leikritið er sett upp í Þjóðleikhúsinu en alls hafa um 160 þúsund manns séð sýninguna í gegnum tíðina frá árinu 1960. Hægt er að panta miða í gegnum miðasölu Þjóðleikhússins. kameljón í eðli mínu M YN D H EI Ð A H EL G A D Ó TT IR Hamagangur á kosningaskrifstof- unni falið fylgi er nýtt leikrit eftir Bjarna jónsson og verður frumsýnt í rýminu á akureyri í kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.