Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Síða 17
föstudagur 16. janúar 2009 17Umræða
Hver er maðurinn? „Ómar örn
Hauksson.“
Hvað drífur þig áfram? „Ég veit
það ekki satt að segja, áhuginn og
sköpunargleðin og að reyna að gera
eitthvað skemmtilegt.“
Hvar ólstu upp? „Í Breiðholtinu.“
Hvað lékstu þér helst við sem
barn? „Ég glápti ofboðslega mikið á
sjónvarpið og teiknaði mjög mikið.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Á svo sem ekki neinn einn en
góður matur er mitt uppáhald.“
Hvernig kom það til að þú fórst
að hanna veggspjöld? „Það var
enginn sem var að gera þetta hérna
heima sem lagði einhvern metnað í
að gera flott plakat. Ég hef sjálfur
mikinn áhuga á bíóplakötum, safna
þeim og pæli í þeim og ég ákvað bara
að bjóða fram mína þjónustu. Það
hefur bara gengið ágætlega.“
Ertu búinn að vera lengi í þessu?
„fyrsta plakatið gerði ég í kringum
2005. Var í sjónvarpsviðtali og var
eitthvað að bölva íslenskum
bíóplakötum. sagði að ég gæti gert
þetta betur sjálfur. Óli Palli í Popplandi
hringdi svo í mig stuttu seinna og
vildi taka mig á orðinu og ég varð
bara að standa við mitt.“
Hefurðu hitt einhverja fræga eftir
að þú fórst að vinna í þessu?
„jaaa, þegar ég fór á kvikmyndahátíð í
texas í fyrra hitti ég leikstjóra sem er
mikil kempa í bransanum en hinn
venjulegi maður hefur örugglega ekki
hugmynd um hver þetta er. Ég hitti
hann fyrir tilviljun en í kjölfarið fór ég
að vinna fyrir hann.“
Ertu kominn í draumastarfið þitt?
„Þetta er voðalega gaman og þegar
maður er svona kvikmyndanörd eins
og ég er gaman að vera partur af
þessu. En það er takmarkaður
markaður hérna heima, aðeins
handfylli af myndum gerð en ég er
búin að koma mér upp fastakúnnum.“
Hver er draumurinn? „að lifa góðu
lífi og losna við þetta volæði sem er í
gangi hérna núna.“
Hvað finnst þér um borgarafundina í Háskólabíói?
„Mér finnst þessir fundir mjög góðir og
hef horft á þá í sjónvarpinu. En ég vil
ekki ofbeldi og þessi læti, mér finnst
þetta vera fara pínulítið úr böndunum.“
Bylgja Hauksdóttir
44 Ára starfsMaður Í fiskútflutningi
„Þetta er alveg nauðsynlegt, ég hef
ekki mætt á fundi hér í reykjavík en
hef mætt á fundi á sauðárkróki þar
sem ég bý. Ég held að ofbeldi og
skemmdarverk skili engu, en
friðsamleg mótmæli eiga rétt á sér.“
sigríður Elín Þórðardóttir
48 Ára starfsMaður HjÁ Byggðastofnun
„Ég hef nú bara horft á þá í sjónvarpinu
og finnst þetta mjög gott framtak. Mér
finnst að þeir sem mótmæla eiga að
koma fram og sýna andlit sitt.“
anna sigríður Árnadóttir
62 Ára fyrrVErandi kEnnari
„Ég hef ekki farið á slíkan fund en þeir
eru alveg sjálfsagður hlutur. Ég hef
mætt á austurvöll og gæti alveg
hugsað mér að mæta áfram þangað,
það má ekki slaka á og út með þetta
hyski eins og er verið að fara fram á.“
jónas skaftason
68 Ára lEiguBÍlstjÓri
Dómstóll götunnar
ómar Örn Hauksson,
fyrrverandi liðsmaður hljómsveitarinn-
ar Quarashi, hefur verið duglegur að
koma sér áfram í gerð veggspjalda fyrir
kvikmyndir. um þessar mundir er hann
að hanna plakat fyrir ekki ómerkari
mann en þann sem lék freddie kruger
í nightmare on Elm street.
Mikill kvik-
Myndanörd
„Mér líst mjög vel á þetta og fylgist
með þessu af og til í sjónvarpinu, ég
vona að fólkið fái svöru við því sem
það spyr en þetta er að sjálfsögðu svo
nýtt fyrir okkur.“
guðrún HÖgnadóttir
48 Ára afgrEiðslukona Í Casa
kringlunni
maður Dagsins
Ég gekk framhjá strætóskýli í gær
sem er ómerkilegt í sjálfu sér; það
eru strætóskýli úti um allan bæ þótt
vagnarnir séu sjaldgæfari og alltof oft
alltof seinir. Þannig var það einmitt í
gær, sýndist mér, vagninn hafði trú-
lega sleppt úr ferð og í horni skýlisins
sat norpandi kona. Ég bauð henni
góðan daginn af því að mér finnst
það svo góður siður jafnvel þótt mér
sé ekkert endilega svarað á móti, sér-
lega ekki síðustu mánuði, og líka þótt
ég viti svo sem ekkert um það hvort
dagurinn sé góður hjá þeim sem
verður fyrir kveðjunni eða eigi eftir
að verða það.
-Góðan daginn, sagði ég sem sé
við konuna.
-Ætli það ekki, svaraði hún með
útlendum hreim og bætti við að það
væri ekki hægt að treysta á strætó
frekar en annað hérna.
-Vagninn hlýtur að fara að koma,
hann fer alveg að koma, ég er viss um
að hann er á leiðinni, hann kemur
örugglega rétt bráðum, vertu viss.
-Þú þarft nú ekki að tyggja þetta
ofaní mig, það er óþarfi, ég heyri vel
þótt ég sé eldri en þú og ég skil ís-
lensku vel þótt ég sé þýsk.
-Fyrirgefðu, ég sagði nú bara
svona, sagði ég.
–Æ, Íslendingar eru alveg eins-
og börn og hegða sér einsog börn og
eru hræddir við svipuna einsog börn
og trúgjarnir einsog börn - en samt
eru Íslendingar engin börn, því mið-
ur, vegna þess að börn vita um hvað
kreppumálið snýst en það gera Ís-
lendingar ekki og nú eru þeir orðnir
svartsýnasta fólk í heimi með skottið
á milli lappanna og lafandi tunguna
og svo gerist þetta alltsaman sama
aftur, sagði konan og um leið kom
vagninn og hún nikkaði og hvarf og
ég vissi að ég var fulltrúi vonlausu
Íslendinganna en hún væri fulltrúi
vitru barnanna - og þá mundi ég eftir
línum úr bók Guðrúnar Helgadóttur
Saman í hring sem eru í raun lýsandi
fyrir örvæntingu þjóðar sem skilur
ekkert í því hvers vegna hún er sví-
virt, hneppt í ótta og þrældóm og síð-
an svift sannleikanum til að kóróna
vanvirðinguna.
Línurnar eru svona og það er
barnið Lóa Lóa sem á þær: „Henni
var kalt og hún var alein. Þetta
voru allt asnar. Ég skal aldrei segja
neinum neitt, hugsaði hún. Allir
segja að maður eigi að segja satt.
Samt skrökva allir að Öbbu hinni
og hún heldur bara að Lási komi
aftur, þessi bjáni. Svo þegar mað-
ur segir sjálfur alveg satt verð-
ur mamma bara reið. Og Heiða,
sem allir eru svo hrifnir af. Eins og
Lóa Lóa hefði ekki hundrað sinn-
um heyrt hana skrökva. Einu sinni
sagði hún Kristínu á 12 að mamma
og pabbi væru niðri í bæ og þá var
pabbi blindfullur heima hjá Lása
netamanni.“
Satt að segja held ég að ríkis-
stjórnin sé blindöskrandi full og
viti sínu fjær líka; hún segir að
minnsta kosti ekki satt og henni
vefst svo sannarlega tunga um tönn
í ótrúlegu aðgerðarleysi sínu. Það
er líka löngu kominn tími til að við
hættum allri meðvirkni og tökum
af henni völdin; með illu skal illt út
reka ef hið góða dugar ekki til! Við
lifum ekki á rjómabollutímum!
Með skottið á milli lappanna
kjallari
vigdís
grímsdóttir
rithöfundur skrifar
„Satt að segja held
ég að ríkisstjórnin
sé blindöskrandi full
og viti sínu fjær líka.“
mynDin
draugaHúsið tÓnlistarHúsið stEndur sEM lEgstEinn lÁnagÓðærisins Við innsiglinguna Í rEykjaVÍkurHöfn. mynd HEiða HElgadóttir