Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Side 20
föstudagur 16. janúar 200920 Helgarblað
É
g hef fremur kosið að
mæta með börnin mín
á mótmælin heldur en
að fá pössun. Mér finnst
líka gott að börnin fái sitt
tækifæri til að vera við-
stödd mótmælin og geti horft til baka
stolt af að hafa tekið þátt í þeim,“ segir
Þórarinn Einarsson mótmælandi.
Þórarinn hefur skorið sig úr í mót-
mælunum fyrir þær sakir að vera iðu-
lega með sex mánaða dóttur sína í
fanginu eða tveggja ára son í kerru í
miðjum mótmælunum.
„Ég hef reynt að mæta á öll mót-
mæli sem skipulögð hafa verið og
gerði það jafnvel fyrir hrunið.“
Þórarinn og barnsmóðir hans búa
ekki saman og því skiptast þau á að
vera með börnin. Hann segir barns-
móðurina fullkomlega sátta við að
börnin mæti með föður sínum á mót-
mælin. „Barnsmóðir mín er ítölsk
og var mjög pólitísk á sínum tíma. Í
dag skiptir hún sér hins vegar ekki af
þessum málum lengur. Hún hefur, að
mér finnst, misst svolítið trúna á fólki
og einbeitir sér því mest að hag fjöl-
skyldunnar.“
Hrint með barnið í fanginu
Aðspurður hvort hann hafi aldrei ver-
ið hræddur um börnin þegar mót-
mæli standa sem hæst segist Þórar-
inn einu sinni hafa óttast um dóttur
sína. „Það var þegar Bónusfánanum
var flaggað. Þá var ég þar að fylgjast
með og sá aukalið lögreglunnar koma
á vettvang. Ég stillti mér upp við vegg
með dóttur mína í fanginu og það
kom lögreglumaður aðvífandi og
hrinti mér. Ég datt og lögreglumann-
inum sjálfum var mjög brugðið þeg-
ar hann sá að ég var með stelpuna í
fanginu.“
Sjálfur staðhæfir Þórarinn að það
eina sem hann þurfi að varast með
barnið í mótmælunum sé lögreglan.
„Ég veit það að mótmælendur beita
ekki ofbeldi. Allt ofbeldi í mótmæl-
unum er fyrst og fremst lögreglunn-
ar og eða afleiðing af því. Lögreglan
er mjög aðgangshörð og beitir ofbeldi
að óþörfu. Lögreglan getur verið mjög
varasöm svo ég hef passað mig á því
að halda mig frá þegar ég sé að lög-
regluofbeldið er að byrja. Ég skilgreini
rúðubrot mótmælenda og brennda
kapla ekki sem ofbeldi.“
Fyrirgefur ekki
utanríkisráðherra
Aðspurður hverju hann sé að mót-
mæla leggur Þórarinn ríka áherslu
á að hann sé alls ekki að mótmæla
kreppunni. „Það geta nú ýmis áföll
dunið yfir okkur og það er jafnvel
fyrirgefanlegt að stjórnmálamenn
og menn í viðskiptalífinu af gáleysi
kalli svona yfir þjóðir. Aðallega er ég
að mótmæla því að menn taki ekki
ábyrgð og stjórnmálamenn sitji í sín-
um stöðum eins og þeir séu algjör-
lega ómissandi,“ segir Þórarinn og
hitnar í hamsi þegar hann minnist á
formann Samfylkingarinnar og ut-
anríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur.
„Við erum orðin nokkuð meðvit-
uð um spillinguna í samfélaginu en
mér finnst gjörsamlega ófyrirgefan-
legt af formanni Samfylkingarinnar,
miðað við allar þær lýðræðishugsanir
sem hún fór með í pólitíkina og barð-
ist mikið á móti ægivaldi og spilling-
arvaldi Sjálfstæðisflokksins, að nú er
hún orðin meðlimur í spillingarlið-
inu sjálf. Ég veit ekki hvers vegna hún
valdi að fara þessa leið og mér sýnist
hún vera að misnota aðstöðu sína og
aðstöðuna í þjóðfélaginu til að láta
gamlan draum rætast, að fara inn í
Evrópusambandið,“ en sjálfur er Þór-
arinn mikið á móti inngöngu Íslands
í ESB.
Hentar ekki að
vera í föstu starfi
Þórarinn er nýhættur í fæðingarorlofi
og sér ekki fram á að fara í fasta vinnu
á næstunni.
„Ég hef ekki verið mikið í föst-
um störfum. Hef frekar tekið vinnu-
tarnir sem hentar mínum lífsstíl.
Síðast starfaði ég í garðyrkju og þar
MótMælir
Með barnið
í fanginu
Þórarinn Einarsson mætir á öll mótmæli með sex mánaða dóttur sína
í fanginu eða tveggja ára son í kerru. Hann segir að það eina sem hann
þurfi að óttast með börnin í miðjum mótmælum sé lögreglan.