Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2009, Side 24
föstudagur 16. janúar 200924 Helgarblað S tóra verkefnið í dag er að gera allt hvað hægt er til að bæta stöðu þess mikla fjölda fólks sem nú er komið í öngstræti vegna húsnæðisskulda. Og ég hef trú á því að árangur náist. Staða fyrirtækja í landinu er mjög bág og þau munu skila ríkissjóði litlum tekj- um næstu ár. Því verður fólkið í land- inu með sköttunum sjálft að standa undir velferðarkerfinu næstu árin – og þess vegna þurfum við róttækar aðgerðir vegna hrikalegrar skulda- stöðu þúsunda heimila. Miklir hags- munir eru í húfi,“ segir Vésteinn. Ég vil líf í tuskunum Vésteinn er uppalinn í Árbænum í Reykjavík. Eiginkona hans er Hildi- gunnur Árnadóttir félagsráðgjafi og eiga þau tólf ára son og þriggja ára dóttur. Hann hefur víða komið við í atvinnulífinu, var á sínum tíma sölu- stjóri DV og var útgefandi Dagskrár vikunnar. Knattspyrnan er samt sem áður aðaláhugamálið. „Ég er Fylkismaður og stend með félaginu af heilum hug. Reyndar er sonurinn kominn í FH svo ég mæti oft í Kaplakrika. Slíkt breytir hins vegar ekki því að stuðningur minn við Árbæjarliðið er í blóðinu. Eitt- hvað sem alltaf verður. Svo hef ég líka verið að þjálfa, svo þú heyrir að fótboltinn leikur ansi stórt hlutverk. En ég á fjölmörg fleiri áhugamál. Ég fer í leikfimi eldsnemma á morgnana þrjá daga í viku og fæ mikið út úr því, bæði fyrir líkama og sál. Þá stunda ég mótorkrossakstur og á haustin geng ég til rjúpna. Af þessu má ráða að ég vil hafa líf í tuskunum,“ segir Vé- steinn og bætir við að aðkoma hans að hagsmunasamtökunum sé vissu- lega til marks um lifandi áhuga hans á því samfélagi sem hann lifir í. Óðaverðbólga fram undan Stofnfundur Hagsmunasamtaka heimilanna var haldinn í gærkvöldi á fjölsóttum fundi í Háskólanum í Reykjavík. Segja má að í þeirri með- göngu hafi tillegg Vésteins skipt miklu. Í sjónvarpsviðtali í desem- ber síðastliðnum lýsti hann fjár- hagsstöðu sinni og fór fram á að Landsbankinn keypti íbúð sína í Hafnarfirði á nauðungaruppboði. Sagði þar íbúðina ekki standa und- ir lánum og því bæri hann kvíðboga gagnvart því að fjölskyldan væri að sökkva í fen enn dýpri skulda. Höfuðstóll skulda Vésteins er í kringum 25 milljónir króna en verði verðbólga svipuð og verið hefur, og þar með verðtrygging, verður skuld- in 37 til 38 milljónir króna í lok þessa árs. Þetta segir Vésteinn að þýði í raun og veru tæknilegt gjaldþrot, því íbúðin myndi ekki seljast nema á um 25 milljónir króna miðað við nú- verandi árferði á fasteignamarkaði. Hann hefur ekkert greitt af áhvílandi skuldum á íbúð sinni síðastliðna fjóra mánuði og er með því að þrýsta á viðskiptabanka sinn um aðgerð- ir. Með þessu kveðst Vésteinn halda skaða sínum í lágmarki enda sé óða- verðbólga fram undan, að hans mati. Aldrei standi þó annað til af hans hálfu en greiða bankanum mismun söluverðs og áhvílandi skuldar. Bankarnir ábyrgðarlausir Sagan geymir mörg dæmi um að fé- lagsmálaþátttaka af þessum toga sé upptaktur stjórnmálaafskipta í fyll- ingu tímans. „Ég er ekki á leiðinni í stjórnmál, hvað sem svo verður ef hnykillinn vefur upp á sig. Að minnsta kosti er ekkert slíkt á dagskrá,“ segir Vésteinn sem væntir þess að Hagsmunasam- tök heimilanna geti breytt ýmsu á þessum síðustu og verstu tímum. „Þúsundir einstaklinga eru að sligast undan skuldum sem hækka stöðugt og sumir hafa enga landsýn. Meðan best lét lánuðu bankarnir viðskipavinum sínum fjármuni, án þess að sýna nokkra samfélagslega ábyrgð. Skeyttu um það eitt að há- marka útlánasafnið í von um aukn- ar tekjur. Allt lagalegt aðhald skorti. Meðal ástæðna þess að svona sé komið fyrir heimilunum er í landinu er að þau hefur skort málsvara. Kröft- uga rödd í umræðunni sem hefur áhrif. „Ég vænti að Hagsmunasam- tök heimilanna geti breytt þessu.“ Fjárhagsleg staða margra er lík því sem Vésteinn lýsir. Verðtryggðu lán- in hækka stöðugt og greiðslubyrði af erlendum myntkörfulánum. lánum eins og margir slógu, hafi hækkað um helming og jafnvel meira. Þúsundir fjölskyldna eru í kröppum dansi og nauðsynlegt er að stjórnvöld komi til móts við þann hóp. Vésteinn er sömuleiðis að horfa á rót vandans, sem sé sú að bankarnir hafi á góðær- istímanum sýnt algjört ábyrgðarleysi í lánveitingum. Hundeltir ævina út „Stjórnvöld þurfa að setja lög sem setja bönkunum ákveðnar skorður. Hvert samfélag byggist á ákveðnum óskráðum sáttmála fólksins um sam- eiginlega hagsmuni. Í dag þegar litið er til baka er hins vegar engu líkara en bankarnir hafi staðið utan þessa alls. Það má ímynda sér að fjármála- fyrirtækin hafi ætlað sér koma af stað verðbólgu með falli krónunn- ar. Urðu hins vegar gjaldþrota áður en dæmið gekk upp,“ segir Vésteinn sem gagnrýnir að verði einstakling- ur gjaldþrota geti bankarnir hundelt viðkomandi árum saman - og jafnvel ævina á enda. Skynsamlegt sé því að hérlendis yrðu sett sett lög lík þeim sem gilda í Bandaríkjunum, sem kveða á um að ef fjármálastofnun lánar til íbúðakaupa verði fasteignin að duga fyrir skuldinni. Lánastofnun geti ekki elt viðskiptavininn umfram það sem hann lagði í íbúðakaupin. Með slíkum lögum hefðu bankarnir ef til vill sýnt meiri aðgát í útlánum – og slíku væru margir fegnir í dag. „Fólk þykir undir öllum kringum- stæðum slæmt að vera í vanskilum. Reynir alltaf að berjast fyrir því að hreinsa nafn sitt en er fast í gildru,“ segir Vésteinn sem gagnrýnir það sjónarmið að erfiða staða þeirra sem tóku erlend lán sem nú hafa hækk- að vegna falls krónunnar sé sjálf- skaparvíti. Bankarnir hefðu alltjent átt að upplýsa viðskiptavini sína um að þegar þeir fengju laun í íslensk- um krónum væri vogunarspil að taka lán í erlendri mynt með tilliti til gengisáhættu. Almenningur verði að geta treyst ráðum starfsmanna við- skiptabanka sinna. Öðru máli gegni um fagfjárfesta eins og lífeyrissjóði sem hafi fjölda sérfræðinga á sínum snærum, sem geti í krafti þekkingar lagt sjálfstætt og óháð mat á hluti. Engar töfralausnir „Ég heyrði á sínum tíma margar sög- ur um að þjónustufulltrúar bankanna hefðu boðið viðskiptavinum að taka rífleg lán, hvort heldur er verðtryggð eða í erlendri mynt – svo viðkom- andi gæti keypt sér jeppa, fellihýsi eða farið í heimsreisu svo eitthvað sé nefnt. Lengi framan af lagði ég eng- an sérstakan trúnað á þessar sögur – sem ég hef síðan fengið staðfest að undanförnu þar sem fólk sýnir mér himinháa greiðsluseðla og upphæð- ir sem venjulegu fólki er ógerlegt að kljúfa,“ segir Vésteinn Gauti. Á undirbúningsfundum vegna stofnunar Hagsmunasamtaka heim- ilanna hefur það viðhorf verið mjög áberandi að fólki sem skuldar í er- lendri mynd vegna íbúða eða bíla- kaupa verði gert kleift að fá lánun- um breytt yfir í íslenskar krónur á því gengi sem gilti á lántökudegi. Slík tæknileg útfærsla er gerleg en vissulega verði tölurnar kreditmeg- in á reikningunum í hinum gjald- þrota bönkum hærri. Á þessu þurfi hins vegar að finna raunhæfa og ásættanlega lausn, því þúsundir fólks eru í mikilli neyð vegna þess erfiða ástands sem skapast hefur. Þó sé ljóst að engar töfralausnir séu til því á fundunum undanfarið hafi fólk komið með hvert sína reynslusög- una, sem hver sé annarri ólíkari og allar jafnslæmar, hver á sinn hátt. – Fjöldi fólks hefur farið algjörlega með löndum í öllum fjárfestingum, sýnt ráðdeild og sparað. Er réttlátt gagnvart þessu fólki að skuldbreyta hjá þeim sem fóru með himinskaut- um í fjárfestingum og lántökum? „Auðvitað er munur á hlutunum eftir því hvort þú tókst lán til kaupa á húsnæði eða hlutabréfum. Þú verð- ur að hafa í huga að þeir sem eiga sínar fasteignir skuldlitlar eru líka í slæmri stöðu því meðan núverandi aðstæður í efnahagslífinu eru uppi er markaðurinn algjörlega frosinn. Verðmyndunin er engin og hrein eign gufar upp. Ég efast um að fast- eignamarkaðurinn lifni við meðan verðtryggingingin er við lýði,“ seg- ir Vésteinn sem segir baráttu gegn verðtryggingu líkast til verða eitt af baráttumálum Hagsmunasamtaka heimilanna. Virðingarleysi Spyrja má hver sé þörfin fyrir hags- munasamtök heimilanna í landinu þegar fyrir eru starfandi verkalýðs- félög og margs konar félagasamtök önnur sem gefa sig út fyrir að starfa í þágu þeirra sem á brattann eiga að sækja með einhverju móti. Vésteinn telur þörfina þó vera til staðar, þeir sem síst skyldi hafi brugðist. „Þeir sem við teljum að eigi að standa með okkur hafa ekki reynst Baráttujaxl Vésteinn hefur lifað tímana tvenna og er sannfærður um að Hagsmuna- samtök heimilanna geti breytt ýmsu á Íslandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.